Julie Krystal Trnavsky skrifaði:
When you get to the sleeves in the english version the decrease directions are reversed. decrease 2 stitches toward the left BEFORE and 2 stitches to the right AFTER - follow the video not the instructions for this part and you will have happy knitting!
28.03.2022 - 20:03DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Krystal Trnavsky, thanks for your feedback, our design team has checked the decreases and they are correct like this, but you can of course decrease like you rather like them to be. Happy knitting!
29.03.2022 - 16:03
Elena skrifaði:
Sono di nuovo io.. nella spiegazione dice di lavorare sette giri di coste inglesi (dopo il collo) prima di fare i primi aumenti, ma guardando la foto sembrerebbe esserci un aumento subito al primo giro di coste.. è giusta la spiegazione scritta? grazie mille
22.01.2022 - 10:11DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, se sta facendo riferimento all'inizio del paragrafo RAGLAN, le spiegazioni sono corrette. Buon lavoro!
22.01.2022 - 18:54
Elena skrifaði:
Buongiorno, sarebbe possibile sapere che taglia veste la modella della foto e quanto è alta? grazie
17.01.2022 - 12:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, le modelle solitamente vestono una taglia M e hanno un'altezza media di 170 cm. Buon lavoro!
18.01.2022 - 22:57
Camilla skrifaði:
Hejsa. Jeg har svært ved at regne ud, hvordan de 2 udtagningsmasker, på hver side af raglanmaskerne, skal strikkes på den efterfølgende omgang. Håber i kan hjælpe med lidt klarhed over det. Mvh. Camilla.
16.10.2021 - 00:37DROPS Design svaraði:
Hei Camilla. Alle økningnene gjøres på en omgang hvor kastet og rettmasken skal strikkes rett sammen (= en omgang som strikkes med Air= partalls-omganger). Så da blir neste omgang / oddetalls-omganger strikket med DROPS Big Deligt. Videre strikkes de nye maskene i helpatent (A.1), men vær oppmerksom på at på første omgang etter en omgang med økninger, strikkes vrangmaskene i økningen vrang uten å strikkes sammen med kast fordi kastet ikke er lagd. mvh DROPS Design
18.10.2021 - 10:26
Mariëlle skrifaði:
Hallo, ik brei met de draad in mijn rechterhand, en krijg het patroon niet goed. Ik heb mijn werk inmiddels een aantal keer weer uitgehaald en opnieuw begonnen maar krijg het niet goed 😣Ook is voor mij de overgang van nld 2 naar nld 3 niet duidelijk. Het begin van mijn werk verspringt. Ik heb de instructiefilm bekeken maar daarin wordt gebreid met de draad in de linkerhand. Ik kom er niet uit. Kunt u mij helpen? Alvast bedankt. Hartelijke groet, Mariëlle
28.02.2021 - 13:35DROPS Design svaraði:
Dag Mariëlle,
Het kan inderdaad frustrerend zijn als het niet lukt en het is jammer dat ik niet mee kan kijken vanaf hier. Naald 3 is weer hetzelfde als naald 1, dus je breit 1 omslag en haalt 1 steek recht af, dan brei je de omslag en de afgehaalde steek averecht samen. Dit herhaal je steeds. Dus op de oneven naalden brei je steeds de averecht samen en op de even naalden brei je de omslag en de afgehaalde steek recht samen. Het maakt niet uit of je de draad in de rechter of linker hand houd. Misschien moet je even niet naar de video kijken, maar alleen het patroon (A.1) volgen
09.03.2021 - 10:43
Sonja Wijngaard skrifaði:
Kunt u mij uitleggen wat ik de eerste 7 naalden bij de markeerdraden moet doen? Het meerderen begint pas na naald 7 toch?
17.02.2021 - 12:15DROPS Design svaraði:
Dag Sonja,
Klopt, de eerste 7 naalden brei je volgens telpatroon A.1, daarna beginnen de raglanmeerderingen.
21.02.2021 - 10:41
Laila Sandaas skrifaði:
Det står ikke på målskissen hvor bred gjenseren er tvers over ,bare bredden på vragngbord. Dvs vanskelig å finne størrelse
04.02.2021 - 20:11DROPS Design svaraði:
Hej Laila, jo men målene nederst i måleskitsen stemmer nøjagtig med bredden af trøjen og altså ikke kun på vrangborden :)
05.02.2021 - 14:55
Anna Marciniak skrifaði:
Hej! De maskorna som markörerna sitter i, ska de stickas på annat att än A1? Jag får jag har stickat alla maskor enl A1 och ser att jag inte för ngn rand som på bilden längst med de markerade maskorna. Tack!
22.01.2021 - 17:17DROPS Design svaraði:
Hej Anna, om du gör såhär får du också en rand :) ÖKNING TILL RAGLAN: Öka till raglan på varje sida av avigmaskorna med markör i (= raglanmaskorna), dvs öka i rätmaskan och omslaget som ligger närmast raglanmaskan. Det ökas 2 maskor på varje sida av raglanmaskorna (= 16 maskor ökade på ökningsvarvet). Alla ökningarna görs på ett varv där omslaget och rätmaskan ska stickas räta tillsammans (= ett varv som stickas med Air).
29.01.2021 - 13:45
TORRI skrifaði:
Bonjour, Vous donnez la longueur des câbles 40-60-80 pour les côtes : 40 pour le col et les poignets . 60 et 80 pour quelles parties ? Je vais tricoter la taille S mais si je veux la taille L comment savoir la longueur du câble ?? Merci beaucoup pour votre aide Cordialement
20.01.2021 - 20:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Torri, une aiguille circulaire doit toujours être d'une longueur inférieure à la circonférence de l'ouvrage, ainsi, la 40 cm s'utilisera au tout début pour le col jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles augmentées pour passer à la 60 ou à la 80 cm - vos mailles seront plus serrées sur une 60 et moins sur une 80 cm. Bon tricot!
21.01.2021 - 07:54
Mariangela skrifaði:
Salve...una volta lavorato il collo per la taglia L non mi trovo con il conteggio delle maglie al giro di inserimento dei segnapunti...me ne avanzano 4
18.01.2021 - 02:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Mariangela, ha fatto attenzione a inserire i segnapunti NELLA maglia e non DI FIANCO alla maglia? Buon lavoro!
18.01.2021 - 19:00
Dancing Aurora#dancingaurorasweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í tveggja lita klukkuprjóni með laskalínu. Stærð S – XXXL.
DROPS 218-26 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allar umferðir í oddatölu eru prjónaðar með Big Delight. Allar umferðir í sléttri tölu eru prjónaðar með Air (sjá mynsturteikningu). ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við brugðnu lykkjurnar með prjónamerki í (= laskalínu lykkjur), þ.e.a.s. aukið út í sléttri lykkju og uppslátt sem liggur næst laskalínu lykkju. Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við laskalínu lykkjurnar (= 16 lykkjur fleiri í útaukningsumferð. Allar útaukningar eru gerðar í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan eiga að prjónast slétt saman (= umferð sem prjónuð er með Air). Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni (A.1), en takið vel eftir að í fyrstu umferð á eftir umferð með útaukningum, eru brugðnu lykkjurnar í útaukningunni prjónaðar brugðið án þess að prjóna þær saman með uppslætti þar sem ekki hefur verið gerður neinn uppsláttur. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar): Fækkið lykkjum undir ermi hvoru megin við 3 lykkjur mitt undir ermi (1 lykkja brugðið + 1 klukkuprjónslykkja (lykkja með prjónamerki) + 1 lykkjaa brugðið. Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (= í umferð sem prjónuð er með Air). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax á eftir fyrstu lykkju brugðið á eftir lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppslátt), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 4 lykkjum + 2 uppsláttum á undan lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið lykkjunni til baka á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum næst brugðnu lykkjunni með prjónamerki yfir lykkjuna sem var sett til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir lykkjuna sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki, fram- og bakstykki og ermar er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni með Air sýnilegt frá réttu og Big Delight sýnilegt frá röngu. Kantur í hálsi og stroff neðst á ermum og fram- og bakstykki er prjónað með Air. ATH: Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talin sem 1 lykkja saman með lykkju sem hefur verið lyft af prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-82-86-88-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði Air. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er mælt frá prjónamerkinu. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og prjónað er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 13-15-15-15-17-17 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (laskalínu lykkja), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja), teljið 27-29-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja), teljið 9-9-9-9-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínu lykkja). Það eru 14-14-14-16-16-18 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið síðan A.1 hringinn, önnur hver umferð er prjónuð með Air/Big Delight. JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 umferðir með A.1 (og næsta umferð byrjar með «prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman» og prjóna á með Air), aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 16 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 7-8-9-10-11-12 sinnum á hæðina = 188-208-224-244-272-292 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 án útaukningar þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl). Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan. Prjónið 27-31-33-35-39-43 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-51-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 28-30-34-36-40-44 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-140-152-160-176-192 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið með Air til loka. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-51-57-59 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og fitjið upp 9 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 48-52-54-60-66-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn og passið uppá að byrja í réttir umferð í mynstri þannig að umferð með Air verði mest sýnileg frá réttu alveg eins og á berustykki. JAFNFRAMT í 8. umferð (þ.e.a.s. í 4. sýnilegu umferð með klukkuprjóns lykkjum á hæðina), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri á eftir lykkju með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkju með prjónamerki í). Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina = 36-40-42-44-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-39-37-36-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið með Air til loka. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingaurorasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.