DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Dancing Aurora Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í tveggja lita klukkuprjóni. Stærð S – XXXL.

DROPS 218-25
DROPS Design: Mynstur db-121
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-400-400-400-500 g litur 06, haustskógur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 630: 5-5-5-5-5-5 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið með Air: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið með Air. Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Færið til baka lykkjurnar að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að prjónað sé frá sömu hlið eins og fyrri umferð. Skiptið um lit (sjá LEIÐBEININGAR).
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið með Big Delight: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið með Air. Prjóni 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Færið til baka lykkjurnar að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að prjónað sé frá sömu hlið eins og fyrri umferð. Skiptið um lit.
UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið með Big Delight: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Snúið stykkinu.
Endurtakið umferð 2-5.

LEIÐBEININGAR:
Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá litinn í kantlykkju.

KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar):
UMFERÐ 1:
Prjónið með Big Delight. * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina – sjá LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2:
Prjónið með Air. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (athugið, að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með Big Delight er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann verði að uppslætti).
Endurtakið umferð 1 og 2.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð með Air!
Útaukning er gerð frá réttu þannig:
Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en passið uppá að brugðna lykkjan er prjónuð án uppsláttar, þar sem ekki er neinn uppsláttur.

ÚTAUKNING-2 (á einungis við um stærðir XXL og XXXL):
Öll útaukning er gerð með Air.
Þegar aukið er út frá röngu er aukið út í brugðna lykkju og uppslátt hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (á við um slétta lykkju séð frá réttu).
Aukið út frá röngu þannig:
Aukið út 2 lykkjur í brugðna lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig:
Prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn brugðið saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið áfram nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en takið vel eftir að slétta lykkjan er prjónuð án uppsláttar, því það er enginn uppsláttur.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið lykkjum hvoru megin við 3 lykkjur mitt undir ermum (1 lykkja brugðið + 1 klukkuprjónslykkja) + 1 lykkja brugðið.
Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman (= í umferð sem prjónuð er með Air).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax á eftir fyrstu lykkju brugðið á eftir lykkju með prjónamerki í: Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppslátt), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 4 lykkjum + 2 uppsláttum á undan lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið lykkjunni til baka á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum næst brugðnu lykkjunni með prjónamerki yfir lykkjuna sem var sett til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir lykkjuna sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 5 hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið þar sem v-hálsmálið byrjar. Þau 4 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett jafnt yfir með ca 8 cm á milli hnappagata.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli/kantur að framan hringinn í kringum allt opið á peysunni.
Berustykki, fram- og bakstykki og ermar er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni með Air sýnilegt frá réttu og Big Delight sýnilegt frá röngu. Kantur í hálsmáli, kantur að framan og stroff neðst á ermum og fram- og bakstykki er prjónað með Air.
ATH: Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talin sem 1 lykkja saman með lykkju sem hefur verið lyft af prjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 53-55-61-61-61-61 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1. umferð í KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan – frá röngu.
Þegar 1. umferð hefur verið prjónuð til loka, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjur þannig: Teljið 2 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 23-25-27-27-27-31 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja), teljið 11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalykkja). Það eru 2 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið síðan áfram frá 2. umferð í KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka), JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-5-5-5-5 umferðir fram og til baka í klukkuprjóni (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn hvoru megin við 4 laskalykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-1 (= 16 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið svona út í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 8-9-10-11-13-14 sinnum á hæðina. Athugið vel að í stærð XXL og XXXL er aukið út í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu - lesið ÚTAUKNING-2.





V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar auka á út fyrir laskalínu í 2. skiptið á hæðina, byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli - aukið er út fyrir v-hálsmáli alltaf í sömu umferð þegar aukið er út fyrir laskalínu. Aukið út 2 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan - lesið ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Fyrsta útaukningin er gerð í 2. lykkju og næst síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. 1 klukkuprjónslykkja (slétt lykkja + uppsláttur) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan séð frá réttu - munið að í stærð XXL og XXXL er aukið út í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu.
Setjið 2 merki á prjóninn á milli 2 lykkja þannig: 1. merki er sett í byrjun umferðar eftir 3 lykkjur (uppsláttur ekki talinn með), 2. merki er sett þannig að það eru eftir 3 lykkjur í lok umferðar (uppsláttur ekki talinn með). Látið merkin fylgja með í stykkinu, áfram er aukið út fyrir v-hálsmáli alltaf 1. lykkju innan við merki (þ.e.a.s. aukið er út í 4. lykkju frá byrjun og lok umferðar) - þannig að það verður 1 klukkjuprjónslykkja (slétt lykkja + uppsláttur) á milli útaukninga fyrir v-hálsmáli og kantlykkjum við miðju að framan séð frá réttu.
Aukið út fyrir v-hálsmáli alls 5-5-6-6-6-7 sinnum (þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru eftir 2-3-3-4-6-6 útaukningar fyrir laskalínu).

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, eru 201-219-245-261-293-313 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti (stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl).
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 28-30-34-36-40-44 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-71-79-87 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-49-55-59-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 28-30-34-36-40-44 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 129-139-153-161-177-193 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri lið við miðju að framan eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið með Air til loka.
Prjónið stroff fram og til baka (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 45-49-55-59-67-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og fitjið upp 1 nýja lykkju í hverja af 9 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-76-78 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring) – sjá útskýringu að ofan – og passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri þannig að umferð með Air verði mest sýnileg frá réttu alveg eins og á berustykki.
JAFNFRAMT í 6. umferð (þ.e.a.s. í 3. sýnilegu umferð með klukkuprjóns lykkjum á hæðina), fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA (fækkið um 2 lykkjur til vinstri á eftir lykkju með prjónamerki í og fækkið um 2 lykkjur til hægri á undan lykkju með prjónamerki í).
Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-8.-8.-6.-6. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4.-4.-4.-4.-3.-3. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjóns lykkjum á hæðina) alls 4-4-5-6-6-6 sinnum á hæðina = 38-42-44-44-52-54 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-40-38-37-36-35 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið með Air til loka.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt saman með sléttum lykkjum. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-44-42-41-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR AÐ FRAMAN/KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar telja á helming af lykkjum í kanti að framan/kanti í hálsmáli. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og það er 1. umferð sem er prjónuð í kringum hálsmál.
Byrjið neðst á hægra framstykki frá réttu með hringprjón 4 og prjónið upp ca 119-125-131-137-143-149 lykkjur meðfram öllum kantinum að framan upp að prjónamerki í hnakka. Haldið áfram að prjóna upp ca 120-126-132-138-144-150 lykkjur meðfram öllum kantinum að framan niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 2 + 1 = ca 239-251-263-275-287-299 lykkjur. Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of laust með of margar lykkjur, en ekki heldur að draga kanta að framan saman vegna of fárra lykkja.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, munið eftir AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.12.2020
Leiðrétting: ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum) hefur verið uppfært.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á berustykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Maryam wrote:

Can I do the double knitted band for this pattern?

07.03.2024 - 06:30

DROPS Design answered:

Dear Maryam, probably if you are familiar to this technique you might be able to adapt it to this pattern, otherwise rather work the bands as explained here. Happy knitting!

07.03.2024 - 08:14

country flag Ellen wrote:

Så jag har tolkat mönstret. Lägg upp maskor sticka helpatent VARV 1-5 och börja öka för Raglan på varv 6 ( dvs. VARV 2 I helpatentmönsteret) försökt räkna på olika sätt och finner mönstret något oklart. För de större storlekarna borde man då sticka VARV 1-4, sen VARV 5 och öka på 6e. På de mindre stickar man ett varv mindre... annars får man ju vänta tills varv 10 innan man börjar med Raglan. Får se hur det går...ser ut som bilden än så länge i alla fall.

24.02.2023 - 22:10

country flag Brigitte Grov wrote:

Ref mitt og Marits spørsmål, så tror jeg det står litt feil, eller misvisende, i teksten. I påvente av svar testet jeg etter min forståelse, altså at når det står "6 pinner frem og tilbake" ble "frem og tilbake" telt som 1 pinne, altså 12 pinner og det ble seende ut som bildet i oppskriften.. Dersom man teller 6 enkle pinner får man problemet Marit beskriver, at man noen ganger må øke på en vrangpinne. I tillegg vil økningene bli for ofte i forhold til hvordan bildet ser ut.

03.09.2022 - 08:58

country flag Brigitte Grov wrote:

Hei! Bare for å være HELT sikker: Når dere skriver under RAGLAN: Når det er strikket totalt 6-6-6-6-4-4 pinner frem og tilbake med helpatent, så teller frem og tilbake som 1, slik at det da strikkes 12 eller 8 pinner totalt, 6 og 4 av hvert garn? Må ha dette inn med teskje når man skal holde styr på alle økningene :)

01.09.2022 - 11:18

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, nej du tæller hver pind, så skriver vi 6 pinde så er det 6 pinde :)

02.09.2022 - 14:28

country flag Marit wrote:

Det står at alle økninger skal gjøres fra retten. Samtidig står det for det største størrelsene at man skal øke på hver 6. pinne (dvs på hver 3. pinne med synlige patentmasker i høyden). Betyr ikke dette at man må øke på vrangsiden annenhver gang?

05.02.2021 - 17:01

DROPS Design answered:

Hei Marit, Økningene er alltid fra retten, hver 6. pinne. Det med synlige patentmasker er fordi med patentstrikk synes ikke radene på samme måten som i vanlig glattstrikk. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

09.02.2021 - 07:47

country flag Eveline Gradussen wrote:

Beste lezer heel fijn zijn de videoinstructies die ik echt nodig had bij het patroon. Wat lastig was voor mij, en wellicht voor veel Nederlandse breisters is dat de videoinstructies van de engelsepatensteek allemaal worden uitgevoerd door breisters die een andere dan de nederlandse manier van breien hebben. Ze hebben de draad waarmee je breit over de links ipv rechtse hand. Dit maakt het begrijpen van de video's ( rondbreien, meerderen en minderen engelsepatensteek ) lastig voor mij

24.01.2021 - 13:27

country flag Guro Kjølstad Grande wrote:

Jeg har nettopp startet å strikke Dancing Aurora jacket. Jeg lurer på hvordan de fire merkemaskene skal strikkes?

21.12.2020 - 15:24