Cool Cables Set#coolcablesset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa, hálsskjól með axlarsæti og vettlingar úr DROPS Merino Extra Fine. Allt settið er prjónað með köðlum með köntum í stroffprjóni.
DROPS 214-25 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3, A.4 og A.5. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.6, A.7 og A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um útaukning fyrir axlarsæti): Á UNDAN MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir þumalfingur): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um efst á vettlingum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við merki). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 108-108 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14-18 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-132 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 6-6 mynsturteikningar með 22 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina í báðum stærðum, prjónið A.2 hringinn (= 6-6 mynstureiningar með 22 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 48-48 lykkjur eftir. Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 12-12 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 31-35 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 7-9 cm í stroffi. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir axlarsæti í hvorri hlið. Lykkjum er síðan fækkað á hvorri öxl og hvort stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 128-136 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (frá vinstri öxl að aftan, séð þegar hálsskjólið er mátað) þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 sléttar lykkjur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 7-8 cm. Setjið 1 merkiþráð í umferð. Stykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Merkin eru sett á milli lykkja og eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Setjið 1. merki í byrjun á umferð, teljið 42-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-26 lykkjur (= öxl), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 42-42 lykkjur (= framstykki) og setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 22-26 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl, á eftir síðasta merki. Látið þessi 4 merki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt þeirra. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3a (= 1 lykkja), prjónið A.4 (= 40 lykkjur), prjónið A.5a (= 1 lykkja), haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 22-26 lykkjur, prjónið A.3a (= 1 lykkja), prjónið A.4 (= 40 lykkjur), prjónið A.5a (= 1 lykkja) og haldið áfram með stroff eins og áður yfir þær 22-26 lykkjur sem eftir eru. Nú eru 136-144 lykkjur í umferð. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsæti og aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan (mynstrið heldur áfram eins og útskýrt er að ofan, en þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynstrið endurtekið alveg eins áfram - sjá A.4b - takið vel eftir að kaðlarnir í hvorri hlið eru endurteknir yfir 8 umferðir á hæðina og gatamynstrið í miðju yfir 10 umferðir á hæðina): Aukið út um 1 lykkjur á EFTIR 1. og 3. merki (þ.e.a.s. á eftir 22-26 lykkjum í stroffi) og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. merki (þ.e.a.s. á undan 22-26 lykkjum í stroffi) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Þegar aukið er út svona þá kemur fjöldi axlalykkja að haldast óbreyttur, en það verða fleiri lykkjur á framstykki og bakstykki. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 25-31 sinnum (aukið er út til viðbótar alls 24-28 lykkjur í A.3a og A.5a eins og útskýrt er í mynsturteikningu) = 260-296 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 9-11 cm meðfram öxl mælt frá merkiþræði við háls. Þegar 1 umferð er eftir í A.3a og A.5a, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður fram að 2. merki, fellið af 22-26 axlalykkjurnar, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, prjónið eins og áður fram að 4. merki og fellið af þær 22-26 axlalykkjur sem eftir eru. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 108-122 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.3b yfir fyrstu 32-39 lykkjur, haldið áfram með A.4 eins og áður yfir næstu 44-44 lykkjur eins og áður og prjónið A.5b yfir þær 32-39 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram fram og til baka og endurtakið A.3b, A.4b og A.5b á hæðina þar til stykkið mælist ca 33-35 cm frá öxl mælt innst við hálsmál þegar stykkið liggur flatt (stykkið mælist ca 28-29 cm frá merki við hálsmál) – ATH: stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í A.4. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið stroff þannig: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 30-37 lykkjur, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjur, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 30-37 lykkjur og endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 36-38 cm frá öxl þegar stykkið liggur flatt. FRAMSTYKKI: = 108-122 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-13 cm. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.6 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 52-52 lykkjur í umferð. Setjið eitt merki í umferð hér. Stykkið er nú mælt frá þessu merki. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-6 lykkjur jafnt yfir þessar 27 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt, A.7 (= 18 lykkjur) yfir A.6 og endið með 4 lykkjur slétt = 44-46 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1½ cm frá merki, aukið út fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum á hæðina = 54-58 lykkjur. Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 44-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til vettlingurinn mælist 15-16 cm frá merki – stillið af að síðasta umferð sé ekki umferð með snúning í kaðli í A.7, þ.e.a.s. ekki umferð 4 eða 8. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið nú A.8 yfir A.7 – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 40-42 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig að það verða 20 lykkjur innan í vettlingi og 20-22 lykkjur ofan á vettlingi. Það eru 3-4 lykkjur slétt á milli merkja og A.8. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 16-18 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-9 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel. Vettlingurinn mælist ca 30-32 cm ofan frá og niður. Brjótið e.t.v. uppá neðstu 6-6½ cm á stroffi. ÞUMALFINGUR: Setjið 11-13 þumallykkjur frá þræði á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 lykkjur í kringum op á þumalfingri = 15-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumalfingurinn mælist ca 5-5½ cm. Nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1-0 lykkjur slétt, prjónið síðan lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-13 cm. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.6 (= 14 lykkjur), 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 52-52 lykkjur í umferð. Setjið eitt merki í umferð hér. Stykkið er nú mælt frá þessu merki. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 27 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-6 lykkjur jafnt yfir þessar 27 lykkjur, prjónið 3 lykkjur slétt, A.7 (= 18 lykkjur) yfir A.6 og endið með 4 lykkjur slétt = 44-46 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1½ cm frá merki, aukið út fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við 19.-21. lykkju í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum á hæðina = 54-58 lykkjur. Setjið 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 44-46 lykkjur. Afgangur af vettling er prjónað á sama hátt og hægri vettlingur. Prjónið þumalfingur á sama hátt og hægri þumalfingur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coolcablesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.