Sandra skrifaði:
Moet boven op patroon A.1 niet nog een rij recht staan?
24.09.2020 - 10:12DROPS Design svaraði:
Dag Sandra
Ja, dat denk ook. Deze vraag is inmiddels al neergelegd bij het ontwerpteam en er komt waarschijnlijk een correctie op het telpatroon.
24.09.2020 - 12:28
Anneke skrifaði:
Liebes DropsTeam! Kann es sein dass im Muster A.1 eine achte Reihe mit rechten Maschen fehlt? Es kommt mir sonst so unregelmäßig vor. Vielen Dank!
23.09.2020 - 18:05DROPS Design svaraði:
Liebe Anneke, es sieht auch so aus, danke für den Hinweis, unser Design Team wird das Diagram noch mal prüfen und (sicher) korrigieren. Viel Spaß beim stricken!
24.09.2020 - 09:25
Karina Engel skrifaði:
Jeg ville ønske at I ville lave jeres opskrifter med vendepinde/forhøjning i nakken så bliver halsen ikke så høj for til som godt kan gøre den lidt irriterende at have på. I kan jo gøre det frivilligt ligesom med opskrift nr. 196-1. Bare en lille bøn og ønske herfra en glad bruger af jeres opskrifter.
23.09.2020 - 09:51
Anne Grethe Wiersholm skrifaði:
Synes selve mønsteret på bollen er så dekorativ og lurer på det er mulig å få beskrivelse av det selvom oppskriften ikke er lagt ut ennå.
15.09.2020 - 20:18DROPS Design svaraði:
Hej Anne Grethe, den kommer ud her i løbet af ugen :)
16.09.2020 - 14:10
Marg Willis skrifaði:
Thredbo
04.06.2020 - 17:57
Frozen Lake#frozenlakesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 2,76. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúinn til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-76-80-84-90-94 lykkjur á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-22-34-38-36-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 98-98-114-122-126-134 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Lykkjur eru auknar út og mynstur prjónað þannig: Næsta umferð er prjónuð og 4 prjónamerki eru sett á milli lykkja þannig: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) yfir 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 sinnum á breiddina), prjónið fyrstu lykkjuna af A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði eins í báðum hliðum = ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, 16-16-20-20-22-22 lykkjur sléttprjón, setjið 2. prjónamerki (= axlalykkjur), A.1 yfir 32-32-36-40-40-44 lykkjur (= 8-8-9-10-10-11 sinnum á breidd), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 16-16-20-20-22-22 lykkjur sléttprjón, setjið 4. prjónamerki (= axlalykkjur), A.1 yfir 16-16-20-20-20-24 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd = ca hálft bakstykki). ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Í næstu umferð er aukið út fyrir axlarsæti þannig: Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 154-162-178-194-206-222 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1 og A.1 er endurtekið á hæðina. Stykkið mælist ca 7-8-8-9-10-11 cm frá prjónamerki. ÚTAUKNING Á ERMUM: Haldið áfram með sléttprjón yfir axlalykkjur og mynstur A.1 yfir framstykki/bakstykki. Í næstu umferð er aukið út fyrir ermum þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út á ermi, verður fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð frá alls 9-10-9-12-12-13 sinnum = 190-202-214-242-254-274 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-18-17-21-22-24 cm. Prjónið með sléttprjóni og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 17-18-18-21-22-24 cm. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki. Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-4-5-5-6-6 sinnum = 214-234-254-282-302-322 lykkjur. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 20-22-23-26-28-30 cm frá prjónamerki í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 32-36-40-44-48-52 lykkjurnar eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 39-41-47-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-96-104 lykkjur sléttprjón eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-41-47-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 36-40-40-44-48-52 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-184-200-216-232 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, stillið af að mynstrið passi yfir sig sjálft á hæðina. Prjónið mynstur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. A.1 er nú endurtekið 40-44-46-52-54-58 sinnum á breiddina. Þegar stykkið mælist 24-24-24-23-22-22 cm frá skiptingu, aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 176-192-200-216-232-248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-41-47-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 lykkju í hverja og eina af 12 nýjum lykkjum undir ermi = 51-53-59-65-67-69 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-1-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-0-10-7-6-4 cm alls 0-0-2-4-4-5 sinnum = 51-53-55-57-59-59 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 17 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frozenlakesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.