DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frozen Lake Cardigan

Prjónuð peysa með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-30
DROPS Design: Mynstur ai-290
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 27, sægrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, NR 629: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,85.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
FRÁ RÉTTU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúinn til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

FRÁ RÖNGU
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúinn til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 83-87-91-95-101-105 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 8 cm.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-28-32-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 103-107-119-127-137-143 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna) þannig:
Setjið 1. prjónamerki eftir 20-21-22-24-26-27 lykkjur (= framstykki), hoppið yfir næstu 16-16-20-20-22-22 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= axlalykkjur), hoppið yfir næstu 31-33-35-39-41-45 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= bakstykki), hoppið yfir næstu 16-16-20-20-22-22 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= axlalykkjur), nú eru 20-21-22-24-26-27 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, lykkjur eru auknar út við hvert og eitt þeirra.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Í næstu umferð frá röngu er aukið út fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. og 2. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 3. og 1. prjónamerki.
Þ.e.a.s. mismunandi er aukið út frá réttu og frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í hverri umferð alls 14-16-16-18-20-22 sinnum = 159-171-183-199-217-231 lykkjur.
Stykkið mælist ca 7-8-8-9-10-11 cm frá prjónamerki.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir ermar þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út á ermi, verður fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki sá sami.
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 9-10-9-12-12-13 sinnum = 195-211-219-247-265-283 lykkjur.
Stykkið mælist ca 16-18-17-21-22-24 cm.
Prjónið með sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-18-18-21-22-24 cm.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki.
Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 227-243-259-287-313-331 lykkjur.
Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 20-22-23-26-28-30 cm frá prjónamerki í hálsi.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið fyrstu 38-41-43-47-53-55 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 67-73-77-85-95-101 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 42-44-48-54-56-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-43-47-53-55 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 163-175-187-203-225-235 lykkjur.
Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar stykkið mælist 26-26-26-25-24-24 cm frá skiptingu, aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 183-195-207-223-245-255 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og fellið af með sléttum lykkjum yfir lykkjur í garðaprjóni – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 42-44-48-54-56-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 52-54-60-66-68-72 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-1-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 0-0-10-7-6-4 cm alls 0-0-2-4-4-5 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-32-30-28-27 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
symbols = útaukning fyrir berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Martha Thomas wrote:

Hello Where do I find the actual size measurements for Frozen Lake 215-30, I am looking at the diagram but I am not sure which series of numbers is the size list.. I read the info about how to use the size chart but the sample diagram shows the pattern sizes printed in the center of the diagram. There are no numbers printed within the center of this diagram. Please help. Thx

29.09.2023 - 07:35

DROPS Design answered:

Dear Martha, the measurements schematics show different measurements in cm for each size. The first number of the sequence is for the smallest size (S in this case) while the last number is for the largest. The sizes are indicated in the materials section, the same as in the lesson. In this case, the chest measurements would be in the lower part of the schematic, since the jacket is straight from the armholes down, so it would be, for the smallest size, 48cm for half the chest circunference and 96 for the full chest circunference. Please remember that these are the garment measurements, so you need to compare it to your own and choose your size accordingly. Happy knitting!

30.09.2023 - 23:52

country flag Mariannick Sansano wrote:

Bonjour 👋 merci pour votre réponse à ma précédente question. J'ai pensé à une autre solution, faire 5 cm de côtes, puis faire la partie en côtes, en Jersey. Puis suivre les instructions du modèle. Ainsi ça remonterai l'encolure près du cou, comme je le souhaite... Modèle Frozen Lake,Drops 215-30 Merci de me donner votre avis. Ou bien une proposition de marché à suivre... Cordialement. Mme SANSANO Mariannick

06.09.2023 - 12:52

country flag Mariannick Sansano wrote:

Bonjour 👋 merci pour votre réponse à ma précédente question. J'ai pensé à une autre solution, faire 5 cm de côtes, puis faire la partie en côtes, en Jersey. Puis suivre les instructions du modèle. Ainsi ça remonterai l'encolure près du cou, comme je le souhaite... Modèle Frozen Lake,Drops 215-30 Merci de me donner votre avis. Ou bien une proposition de marché à suivre... Cordialement. Mme SANSANO Mariannick

06.09.2023 - 12:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sansano, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande, si vous avez besoin d'aide ou de conseils pour vos ajustements, je vous invite à contacter votre magasin (même par mail ou téléphone) ou à demander conseil à d'autres tricoteuses, via, par ex notre DROPS Workshop. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

06.09.2023 - 15:59

country flag Mme Mariannick SANSANO wrote:

Bonjour, J'ai commandé ma laine Drops Air coloris 10brouillard( mix). J'envisage de faire le modèle, Frozen Lake Cardigan. Drops 215-30. Voici ma question ❓️ Je voudrai faire l'encolure plus haute (" c'est à dire plus près du cou"). Donc comment puis-je faire,??? Je vous remercie d'avance pour m'indiquer comment procéder, puis ,ensuite je suivrai les instructions du modèle . Merci et à bientôt. 🥰

01.09.2023 - 15:45

country flag Mme Mariannick SANSANO wrote:

Bonjour, J'ai commandé ma laine Drops Air coloris 10brouillard( mix). J'envisage de faire le modèle, Frozen Lake Cardigan. Drops 215-30. Voici ma question ❓️ Je voudrai faire l'encolure plus haute (" c'est à dire plus près du cou"). Donc comment puis-je faire,??? Je vous remercie d'avance pour m'indiquer comment procéder, puis ,ensuite je suivrai les instructions du modèle . Merci et à bientôt. 🥰

01.09.2023 - 15:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sansano, vous pouvez probablement tricoter davantage de hauteur de côtes pour le col, mais notez bien qu'il vous faudra également davantage de laine. Bon tricot!

01.09.2023 - 15:45

country flag Ninon Bernard wrote:

Bonjour madame, frozenlake cardigan. Au moment ce diviser l ouvrage j'ai 287 mailles ( gradeur xl ). Je tricote 47 m je glisse 54 m sur fil puis tricote 85 m je glisse 54 m sur fil et tricote 47 derniere m.pour un total de 287m. Pour dos et devant 179 m. Je tricote 25 cm puis je dois aug de 20 m = 199 m .le patron dit que je devrais avoir 223 m. Il me manque 24 m .qu'est ce que je dois faire ? Merci pour votre aide precieuse

12.04.2023 - 01:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, ce sont les 12 mailles que vous devez monter à la place des manches, autrement dit, lorsque vous glissez les 54 mailles des manches en attente, montez 12 mailles - nous montrons comment faire à partir de la photo 10 dans cette leçon. Bon tricot!

12.04.2023 - 08:39

country flag Ninon Bernard wrote:

Modele frozenlake cardigan. Je suis rendue augmentation manche. Une fois augmentations terminees je dois avoir une longueur aplx 21 cm il me reste 4 augmentatios a faire et je suis deja a 22 cm. Que faire? Grandeur xl. Merci de bjen vouloir m'aider. Noter j'ai bien fait mon echantillon.

26.03.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, votre tension en hauteur doit être différente (vous avez probablement plus de 20 rangs pour 10 cm), Vous pouvez ajuster en augmentant plus souvent. Sinon vous devez avoir (épaules = 18 x tous les rangs = 9 cm) + (manches= 12 x tous les 2 rangs = 12 cm) (soit 21 cm) + (empiècement = 5 x tous les 2 rangs = 5 cm) = 26 cm au total. Bon tricot!

27.03.2023 - 09:58

country flag France Lemay wrote:

Allô, je suis rendue à augmentation épaule et je me demande quand on fait le rang envers est ce que le premier marqueur sur mon chemin qui était le 1 au rang endroit devient le 4 au rang envers?

19.02.2023 - 18:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lemay, le 1er marqueur que l'on rencontre sur l'endroit est le 4ème marqueur sur l'endroit etc autrement dit, les numéros des marqueurs indiqués sont ceux que l'on compte sur l'endroit . Bon tricot!

20.02.2023 - 10:11

country flag Annette wrote:

Bei „Zunahmen für die Passe“ - wie gerichtet muss jeweils vor und nach den Markierern zugenommen werden, oder reicht es, zwei Maschen aus einer zuzunehmen?

05.02.2023 - 21:28

DROPS Design answered:

Liebe Annette, unter "Zunahmen für die Passe" werden 8 Maschen zugenommen: 1 Masche vor + 1 Masche nach jeder Markierung - nehmen Sie am besten wie zuvor zu: 1 Masche vor der Masche mit der Markierung + 1 Masche nach der Masche mit der Markierung auffassen - siehe auch dieses Video. Viel Spaß beim stricken!

06.02.2023 - 10:18

country flag Viviane wrote:

Puis-je réaliser ce modèle en "Brushed alpaca silk "?

17.10.2022 - 14:20

DROPS Design answered:

Bonjour Viviane, effectivement, Air et Brushed Alpaca Silk sont du même groupe, notez juste que la texture sera différente car les laines sont différentes; utilisez notre convertisseur pour connaître la nouvelle quantité correspondante, et rappelez-vous de bien vérifier votre échantillon. Bon tricot!

17.10.2022 - 17:06