 Alessia skrifaði:
 
																									Alessia skrifaði:
												
Buongiorno, credo che la spiegazione del diagramma non sia corretta. Riuscite a verificare ed in caso correggere? Grazie!
16.09.2020 - 13:51DROPS Design svaraði:
Buongiorno Alessia. Abbiamo segnalato l'errore al settore design. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
16.09.2020 - 14:14| Branching Out Jacket#branchingoutjacket | |||||||||||||
|  |  | ||||||||||||
| Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóni og tvöföldum kanti í hálsi. Stærð S - XXXL.
							DROPS 216-14 | |||||||||||||
| ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur) mínus kanta að framan (= 18 lykkjur) og deilið þeim 81 lykkju sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um stærð S-M-L-XL): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Herðið aðeins á þræði þegar prjónað er yfir kantlykkjur að framan til að kantur að framan verði ekki of laus. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm eftir prjónamerki í hálsi (þ.e.a.s. ekki fella af fyrir hnappagati í kanti í hálsmáli). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram- og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur og saumaður saman í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-103-107-111-115-121 lykkjur (meðtaldar 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Þær 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki halda áfram í stroffi og garðaprjóni eins og kantur í hálsmáli til loka. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Í 1. umferð á eftir kanti í hálsmáli er aukið út um 10-18-26-10-18-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 109-121-133-121-133-145 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 2 umferðir til viðbótar í sléttprjóni og stroffi yfir kantlykkjur að framan eins og áður. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið stroff yfir 9 kantlykkjur að framan eins og áður = 79-87-95-87-95-103 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig (1. umferð = rétta): Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * A.1 yfir næstu 6 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð (= alls 7-8-9-8-9-10 sinnum), A.1 yfir næstu 5 lykkjur (þ.e.a.s. A.1 er prjónað 2 sinnum á breiddina, síðan er fyrsta lykkjan prjónuð í A.1) og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram svona fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 135-151-167-183-203-223 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 7-7-7-9-9-9 cm frá prjónamerki eftir stroff. Ef stykkið mælist minna en þetta, endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu til loka. Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjóni eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið yfir lykkjur á berustykki jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður brugðið saman með lykkjunni sem hann tilheyrir, prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan. Prjónið 1 umferð sléttprjón með 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið stroff yfir 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynstur þannig (1. umferð = rétta): 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 12-12-12-16-16-16 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð (= 7-8-9-8-9-10 sinnum), A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 199-223-247-291-323-355 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-14-14-18-18-18 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta, endurtakið síðustu 2 umferðir af mynsturteikningu að réttu máli. Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið yfir lykkjur á berustykki jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður brugðið saman með lykkjunni sem hann tilheyrir, prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan. Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með 9 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 212-236-260-304-336-368 lykkjur. Í stærð XXL-XXXL er útaukningu lokið. Aðrar stærðir eru prjónaðar áfram þannig: STÆRÐ S-M-L-XL: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið í næstu umferð þannig: Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, 29-32-36-42 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 38-44-48-58 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 59-65-73-85 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 38-44-48-58 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 30-33-37-43 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-3-2-1 sinnum = 244-260-276-312 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 244-260-276-312-336-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 9 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-26 cm frá prjónamerki í hálsmáli, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, 33-35-38-43-48-54 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 67-71-77-87-98-110 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 46-50-52-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 34-36-39-44-48-54 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-176-188-208-228-252 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 9 kantlykkjum að framan eins og áður þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-29 cm frá skiptingu. Í næstu umferð er aukið út um 27 lykkjur jafnt yfir = 195-203-215-235-255-279 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur þar til stroffið mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-50-52-60-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 nýjum lykkjum undir ermi = 54-58-60-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-3-3-2-2-1½ cm millibili alls 9-10-10-13-13-15 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-37-37-35-33-34 cm, aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Ermin mælist 45-43-43-41-39-40 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. | |||||||||||||
| Skýringar á teikningu | |||||||||||||
| 
 | |||||||||||||
|  | |||||||||||||
|  | |||||||||||||
| Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #branchingoutjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. | |||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.