Lucia Battisti skrifaði:
Buonasera vorrei sapere a che punto devo lavorare con i ferri circolari di 80 cm. Grazie
05.01.2022 - 22:21DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucia, può lavorare con il cavo da 80 cm quando il numero di maglie lo permette. Buon lavoro!
08.01.2022 - 13:18
Britta Rasmussen skrifaði:
Jeg har garn til overs efter at have strikket tre små trøjer Lillesand....er der en opskrift på huer med samme mønster?
25.09.2021 - 19:03DROPS Design svaraði:
Hej Britta. Ja det finns det, du hittar den här. Mvh DROPS Design
27.09.2021 - 09:31
Kerstin skrifaði:
Ska jag börja medaljen, sedan oket, därefter framstycket och sist ärmarna?
28.08.2021 - 17:19DROPS Design svaraði:
Hei Kerstin. Halskant och ok stickas runt på rundsticka från mitt bak, uppifrån och ner. Oket delas till fram- och bakstycke och ärmar. Fram- och bakstycket stickas runt på rundsticka från mitt bak, uppifrån och ner. Ärmarna stickas runt på strumpstickor, uppifrån och ner. mvh DROPS design
30.08.2021 - 13:30
Susan C Shelly skrifaði:
I am enjoying knitting this pattern, but I have torn it out two times already because I cannot eliminate the "jog" in the pattern when I switch to a new row. It is especially challenging since these are not stripes and sometimes the color changes are every row. I have searched several knitting sites for suggestions, but none actually deals with this type of pattern. What do you suggest?
27.08.2021 - 18:01DROPS Design svaraði:
Dear Susan, we did not find this a problem because this is a pattern where the colors following each other realtively often(there are only a few stitches between), jogs between rows are not as visible as with bigger patterns. Happy Stitching!
28.08.2021 - 00:17
Annika skrifaði:
Hej! Har just köpt garn o mönster till denna. Ni rekommenderar både stickor 3 och stickor 4. Gäller stickfastheten stickor 3 eller 4? Och ska man verkligen sticka mönsterstickning när man kollar stickfastheten?
25.05.2021 - 20:05DROPS Design svaraði:
Hei Annika. Strikkefastheten gjelder pinne 4 (den pinnen du strikker plagget med, pinne 3 er kun til vrangbord). I denne oppskriften er den oppgitt strikkefastheten i glattstrikk og nordisk mønster, men les også Strikketips til denne oppskriften. mvh DROPS design
26.05.2021 - 10:43
Sabine Nagel skrifaði:
Hallo, trotz Verwendung der empfohlenen Wolle habe ich bei diesem Pullover nach Erstellung der Passe eine Gesamtlänge von 20 cm (statt wie in der Anleitung beschrieben 15 cm). Kann ich trotzdem ohne Probleme gemäß der Anleitung weiter stricken (Maschen für Ärmel stilllegen und Rumpfteil stricken etc.) oder bekomme ich bei der Länge von 20 cm hinterher Probleme mit der Passform (z.B. Ärmelansatz zu niedrig)? Danke für eine Rückmeldung und schöne Grüße, Sabine Nagel
14.05.2021 - 17:30DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Nagel, stimmt Ihre Maschenprobe in der Höhe? Sie sollen 28 Reihen = 10 cm haben, so bekommen Sie die 42 Reihen in A.1 (+ 1 Reihe davor) = ca 15 cm. hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
17.05.2021 - 10:26
Anette skrifaði:
Hej. Hvordan finder jeg ud af omkredsen når der nu står 2 rækker tal ? Jeg skal bruge en omkreds på ca 66 cm hilsen Anette
27.09.2020 - 10:23DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Når du strikker bolen har du 144-152-160-172-180-188 masker og før du skal strikke vrangborden øker du med 46-48-50-54-58-60 masker jevnt fordelt, slik at du har 190-200-210-226-238-248 masker. Tallene over streker er målene før økningen og tallene under streken er etter økningen. God Fornøyelse!
28.09.2020 - 17:59
Lillesand Jumper#lillesandjumper |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 37-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 4,5 lykkjur. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð, prjónið uppsláttinn snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-74-76-78-80-82 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum dökk bleikur DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 88-90-92-96-98-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið 1-1-3-6-8-11 lykkjur slétt með litnum dökk bleikur. Í næstu umferð er prjónað A.1 yfir allar lykkjur (= 44-45-46-48-49-50 mynstureiningar með 2 lykkjum) – sjá LEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 104-108-112-116-120-124 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-27-28-29-30-31 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út 40-36-44-40-48-44 lykkjur jafnt yfir = 144-144-156-156-168-168 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-12-13-13-14-14 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-3: Aukið út 32-40-36-44-40-48 lykkjur jafnt yfir = 176-184-192-200-208-216 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-4: Aukið út 28-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 204-216-228-240-252-264 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum). Ör-5: Aukið út 4-4-4-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 208-220-232-240-252-264 lykkjur. Ef prjónfestan passar á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með litnum dökk bleikur að réttu máli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 30-32-34-36-38-40 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-140-148-160-168-176 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi (= 66-70-74-80-84-88 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki/bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón í hring með litnum dökk bleikur. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-5-6-6-7-8 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 144-152-160-172-180-188 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykki mælist 16-20-23-25-28-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 46-48-50-54-58-60 lykkjur jafnt yfir 190-200-210-226-238-248 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum dökk bleikur. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-21-25-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 19-24-28-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lillesandjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.