DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Easy Over

Prjónað vesti / slipover í klukkuprjóni úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 217-13

#easyovervest

DROPS Design: Mynstur ai-301
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7370.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (prjónað í klukkuprjóni).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 6,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl á berustykki áður en stykkið skiptist og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig til loka.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 66-66-70-74-74-78 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 9 cm.

BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir 14 lykkjur, A.3 (= 2 lykkjur) (= öxl), A.1 yfir 10-10-12-14-14-16 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir 2 lykkjur, A.1 yfir 14 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur (= öxl) og A.1 yfir síðustu 4-4-6-6-6-8 lykkjurnar (= hált bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina.
Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2a og A.3a á hæðina, þ.e.a.s. haldið áfram með útaukningu í 6. hverri umferð, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur.
Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað alls 8-9-9-10-11-12 sinnum á hæðina, eru 136-144-148-160-168-180 lykkjur í umferð. Prjónið A.1a yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 24-25-25-25-26-26 cm þar sem stykkið er lengst (mælt meðfram öxl), stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem prjónað er brugðið.
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og axlalykkjur eru felldar af þannig:
Prjónið 26-28-28-32-34-36 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= hálft bakstykki), fellið af næstu 15 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón, prjónið 51-55-57-63-67-73 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja garðaprjón (= framstykki), fellið af næstu 15 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón og prjónið klukkuprjónsmynstur yfir síðustu 25-27-29-31-33-37 lykkjur (= hálft bakstykki).
Klippið frá.

Geymið lykkjur fyrir framstykki á prjóninum.

BAKSTYKKI:
= 53-57-59-65-69-75 lykkjur.
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir (þ.e.a.s. klukkuprjónsmynstur byrjar og endar með 1 klukkuprjónslykkju brugðið) og endar með 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá skiptingu, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þau eru notuð síðar fyrir hliðarsauminn.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, frá hálsmáli, fellið af með sléttum lykkjum, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur og herði á stykkinu).

FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir 53-57-59-65-69-75 lykkjur á framstykki á sama hátt og á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Byrjið við prjónamerki í hlið og saumið bakstykkið og framstykkið saman frá prjónamerki og ca 20-21-22-23-24-25 cm niður. Neðstu 22 cm = klauf.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
prjónið frá réttu = prjónið frá réttu
prjónið frá röngu = prjónið frá röngu
sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
uppslátturinn og lykkja er prjónað brugðið saman = uppslátturinn og lykkja er prjónað brugðið saman
prjónið 3 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur = prjónið 3 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur
brugðin lykkja = brugðin lykkja
prjónstefna = prjónstefna
Diagram for DROPS 217-13
Diagram for DROPS 217-13
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easyovervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (94)

country flag Heather A Watson skrifaði:

Struggling to understand pattern as I know this stitch as fisherman's rib and achieve by knitting one stitch below on every knit stitch on every row. I cannot understand exactly how to achieve the increases in yoke using what I find a simpler way to achieve same resulting pattern. As I find following charts more difficult than written instructions is it possible to have this lovely garment pattern done in writing?

10.02.2025 - 13:28

DROPS Design svaraði:

Dear Heather, we don't make custom patterns, our patterns are made of the written instructions and, sometimes, charts, which often help visualize the pattern better. The charts follow the English rib, which is almost the same visually as fisherman's rib but is worked slightly different (as seen in this video). You can read more on these two types of brioche patterns in this lesson. Happy knitting!

17.02.2025 - 00:07

country flag Ella skrifaði:

Waar maak ik een rekenfout? Als ik 12x a2+a3 in de hoogte gedaan heb, heb ik 12x8 = 96 steken gemeerderd. Als ik daar 68 waar je mee begint bij op tel kom ik op 164 steken. Volgens het patroon zouden het er 180 moeten zijn.

02.02.2025 - 12:03

DROPS Design svaraði:

Dag Ella,

Je hebt ook al 16 steken gemeerderd in totaal door het eerste deel van A.2 en A.3 te breien, hiermee kom je in totaal precies op 180 steken.

05.02.2025 - 20:16

country flag Ella skrifaði:

Ik ben bezig deze te maken in maat xxl. Nu heb ik bijna de hals klaar met 68 steken volgens beschrijving. Wanneer ik alle steken voor de het starten met de pas optel kom ik echter op 70 uit (8+2+14+2+16+2+14+2+8). Waar komen die 2extra steken vandaan? Hoe kan ik ze er extra tussen krijgen?

22.01.2025 - 17:34

DROPS Design svaraði:

Dag Ella,

Het zijn er echt 68, ik heb het twee keer nageteld. Ook als je de getallen in jouw post optelt kom je op 68.

22.01.2025 - 21:36

country flag Fatma skrifaði:

Hei det var en perfekt side men noen språk mangler foreksempel jeg er tyrkere hvis liger tyrkisk språk det blir mere fordele. Jeg følger om hyggelig strike side takk skal du ha 💐

20.12.2024 - 01:54

country flag Ginette Gagné skrifaði:

Est-ce que je peux remplacer les côtes anglaises par des fausses côtes anglaises

24.11.2024 - 16:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gagné, probablement, pensez juste à bien vérifier votre tension en largeur mais aussi en hauteur et adaptez si besoin les augmentations en fonction de votre tension en hauteur si elle est différente pour bien conserver les bonnes proportions. Bon tricot!

25.11.2024 - 09:21

country flag Conni Lindberg Andersen skrifaði:

Har svært ved at tyde A1 de fire omgange, det er vel alle omgange fra retsiden og ikke kun de 2 første omgange? Hilsen fra Conni

14.10.2024 - 10:56

DROPS Design svaraði:

Hej Conni, øverst i opskriften kan du klikke på Videoer, her finder du videoer med diagrammerne til denne vest :)

18.10.2024 - 08:31

country flag Cornelia Becker skrifaði:

Hallo, wenn ich die 9cm der Halsblende im Patentmuster gestrickt habe! In welcher Reihe beginne ich bei A1, A2 und A3 zu stricken?

10.10.2024 - 23:15

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Becker, beachten Sie, daß A.1 nach einer Reihe wie die letzte Reihe A.1a gestrickt wurde; dann beginnen Sie A.1a, A.2 und A.3 bei der 1. Reihe. Viel Spaß beim Stricken!

11.10.2024 - 08:09

country flag Cornelia Becker skrifaði:

Hallo, ich möchte dieses Modell im zweifarbigen Patent in Größe xxl stricken! Wieviel Wolle benötige ich pro Farbe?

28.09.2024 - 17:50

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Becker, da wir dieses Modell nur einfarbig gestrickt haben, haben wir nur dafür diese Erfahrung; gerne kann Ihnen aber damit Ihr DROPS Händler - auch per Telefon oder per E-Mail - weiterhelfen. Viel Spaß beim Stricken!

30.09.2024 - 08:01

country flag Inga skrifaði:

I am still having trouble. My math is off. If I start before increasing with 64 stitches increase A 2 and 3 equals 12 increases then A 2a and A3a x11 equals 44 stitches, this ís 120 stitches. I am assuming that I have it correct. 4 increases per round. Please help.

24.06.2024 - 18:09

DROPS Design svaraði:

Dear inga, you will increase 2 sts on every increase row in A.2a and A.3a, before A.2a you increase 2 times 2 stitches (= 4 sts) then you repeat 11 times A.2a where you will then increase 2 sts x 11 (= 22 sts), as you work A.2a/A.3a a total of 4 times in the round, you will increase a total of 22 sts 4 times = 104 sts in total + the 64 sts at the beg = 168 stitches. Happy knitting!

25.06.2024 - 08:49

country flag Alice Dolleris skrifaði:

Super model let at gå til

21.06.2024 - 13:52