Ale skrifaði:
En cuanto a la sección del canesú, es decir, el patron de repetir el esquema A1, se hace tan solo en la primera vuelta, o se repite al largo de toda la sección y de los augmentos de raglán?
06.03.2022 - 00:29DROPS Design svaraði:
Hola Ale, el esquema A.1 es el dibujo del raglán, por lo que se trabaja a lo largo del canesú ( en cada vuelta se trabaja la siguiente fila de A.1, después de la 4ª fila se vuelve a trabajar la 1ª).
06.03.2022 - 13:30
Pia skrifaði:
Jeg savner brystmål
07.11.2021 - 12:48DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Om du ser på målskissen, så ser du brystmålet (det er det samme som målet nederst på genseren, ingen økninger i sidene). mvh DROPS Design
08.11.2021 - 14:47
M C skrifaði:
Che misura indossa la modella nella foto?
24.10.2021 - 18:13DROPS Design svaraði:
Buonasera M C, solitamente le modelle indossano una taglia M. Buon lavoro!
24.10.2021 - 20:11
Britt-Marie Romero skrifaði:
Snälla varför inte skriva ut var man ska sätta markör i stället för att skriva bara A1
31.08.2021 - 20:28DROPS Design svaraði:
Hei Britt-Marie Vi mener at man har enklest oversikt i ALLE størrelser når det står at man skal øke 1 maske på hver side av A.1. Dersom man skal skrive maskeantallet for hver størrelse (det er 6 størrelser) ved hver økning som gjentas på hver 2.omgang totalt 21-23-25-28-31 eller 34 ganger vil man fort miste oversikten. mvh DROPS design
06.09.2021 - 13:17
BrittMarie skrifaði:
Otroligt otydlig beskrivning
31.08.2021 - 20:03DROPS Design svaraði:
Hej BrittMarie, hvis du skriver konkret hvad du ikke forstår, så hjælper vi dig gerne :)
01.09.2021 - 16:02
Linnéa Grahn skrifaði:
Hej! I beskrivning av ”ok” står det ”Fortsätt vidare till arbetet mäter 19-21-23-25-28-31 cm från markören som sattes efter resåren.”, mitt arbete mäter endast 16 cm vid 262 m och jag stickar S, ska jag fortsätta med mönstret A.1 även de sista 3 cm även om jag inte ökar?
18.07.2021 - 12:45DROPS Design svaraði:
Hej Linnea, ja fortsæt med mønsteret uden at øke på de sidste 3 cm :)
04.08.2021 - 11:47
Sylvie Audet skrifaði:
Pour les diminutions des manche le grandeur est medium
29.06.2021 - 00:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Audet, en taille M, vous commencez à diminuer pour la manche quand elle mesure 4 cm, et vous diminuez 2 mailles en commençant en fin de tour - cf DIMINUTIONS (pour les manches): et cette vidéo. Répétez ces diminutions encore 6 fois (= 7 fois au total) tous les 5 cm. Bon tricot!
29.06.2021 - 09:10
Sylvie Audet skrifaði:
Pour la diminution des manches Quand la manche mesure 4 cm, commencer à diminuer sous la manche – voir DIMINUTIONS. Diminuer ainsi 6-7-9-11-15-18 fois au total tous les 5½-5-3½-2½-1½-1 cm = 49-51-53-55-55-57 mailles. Continuer en jersey jusqu'à ce que la manche mesure 38-37-36-35-32-30 cm
27.06.2021 - 19:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Audet, pouvez-vous détailler votre question? Quelle taille tricotez-vous, que n'arrivez-vous pas à faire? Merci pour votre compréhension.
28.06.2021 - 07:43
Lise Gro Thorsen skrifaði:
Hei. Jeg kan ikke se ut i fra oppskriften at jeg skal bytte til rundpinne 4 for vrangbord på ermene. Skal jeg bare bruke samme rundpinne på vrangbord som ellers på ermene?
21.06.2021 - 08:21DROPS Design svaraði:
Hei Lise. Her har det nok blitt glemt å skrive inn settpinner, oppskriften er videresendt til design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk. Burde nok ha stått slik: .... Strikk 1 omgang rett der det økes 5-6-7-8-8-9 masker jevnt fordelt = 54-57-60-63-63-66 masker. Bytt til settpinner 4. Strikk vrangbord (= 1 vridd rett / 2 vrang) rundt i 6 cm. mvh DROPS design
21.06.2021 - 13:40
Sylvie Audet skrifaði:
Pour montes les mailles cote sous la manche ce la que je ne ce pas comment faire
24.05.2021 - 14:51DROPS Design svaraði:
Cf réponse ci-dessous.
25.05.2021 - 08:31
Almond Crush#almondcrushsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-81-84-90-93-96 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Haldið áfram með stroff hringinn svona í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-18-16-17-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 94-98-102-106-110-114 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-13-14-15-16-17 lykkjur (= hálft bakstykki), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 3 lykkjur (= ermi), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), sléttar lykkjur yfir næstu 24-26-28-30-32-34 lykkjur (= framstykki), A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= laskalína), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 3 lykkjur (= ermi), prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 12-13-14-15-16-17 lykkjur (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram hringinn og í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 21-23-25-28-31-34 sinnum = 262-282-302-330-358-386 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-31 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir stroff. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-69-75-81 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-69-75-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-41-44-48-52-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermi áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 27-27-27-27-26-25 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 25-25-27-29-33-37 lykkjur jafnt yfir = 189-201-219-237-261-285 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 55-59-63-69-75-81 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 61-65-71-77-85-93 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5-3½-2½-1½-1 cm millibili alls 6-7-9-11-15-18 sinnum = 49-51-53-55-55-57 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 38-37-36-35-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-7-8-8-9 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-63-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6 cm. Ermin mælist ca 44-43-42-41-38-36 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndi tvöfaldan kant í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út á við, er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #almondcrushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.