DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Country Muse Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-39
DROPS Design: Mynstur li-120
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 5310, ljós brúnn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 3,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við 26-26-26-30-30-30 axlalykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ATH: Fjöldi axlalykkja verðu sá sami – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki.
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Sláið 1 sinni fast uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á ermum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúinn til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).

ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu á berustykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið lykkjuna með prjónamerki í sléttprjóni eins og áður, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-4 (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við merkiþráðinn).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um úrtöku mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti.
Fellt er af fyrir næsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti.
Þessi 2 hnappagöt eiga nú að passa beint yfir hvort annað þegar kanturinn í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur.
Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8-8-8½ cm millibili.

LEIÐBEININGAR (á við um stroff neðst á fram- og bakstykki):
Stroffið er prjónað með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur eins og útskýrt er í uppskrift og með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður.
Ef þú vilt að 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 eigi að halda áfram alveg niður að stroffi, verður þú að stilla þetta af þegar lykkjur eru auknar út jafnt yfir áður en stroffið er prjónað. Passið uppá að prjóna 2 lykkjur slétt hvoru megin við 4 lykkjur brugðið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Lima.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-26-30-38-38-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 130-134-142-154-158-166 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt). Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Setjið að auki 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Það á að nota þessi prjónamerki þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerki verða að hafa annan lit en prjónamerki við háls til að aðgreina þau frá hvert öðru.
Byrjið mitt að framan, teljið 22-23-25-26-27-29 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-36-40-42-44-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-23-25-26-27-29 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er prjónað í sléttprjóni á bakstykki og framstykki með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 yfir 26-26-26-30-30-30 lykkjur á hvorri öxl (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1) og aukið út um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚTAUKNING-1. Munið eftir að nú er bara aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-12-13-14-16-17 sinnum = 210-230-246-266-286-302 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Færið 4 prjónamerki frá útaukningu fyrir axlarsæti, þannig að þau sitja hvoru megin við miðju 18-18-18-22-22-22 lykkjum í A.1 á hvorri öxl – sjá ör í A.1.
Haldið svona áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 yfir A.1 eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Munið eftir að auka nú bara út á ermum og fjöldi lykkja í A.1 eykst, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami – útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og brugðið frá röngu.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 15-16-16-18-19-19 sinnum = 270-294-310-338-362-378 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 11-12-12-13-14-14 cm frá þar sem útaukning fyrir ermum byrjaði. Aukið síðan út fyrir BERUSTYKKI eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 46-48-48-56-58-58 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Haldið áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, og 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 sem halda áfram niður meðfram framstykki og bakstykki eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-3.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 310-334-358-394-418-442 lykkjur.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði á eftir útaukningu fyrir axlarsæti. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 50-54-57-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-124-134 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-57-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki). Takið frá öll eldri prjónamerki!
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-218-234-254-278-302 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 53-57-61-66-72-78 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 96-104-112-122-134-146 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki.
Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) frá A.1 sem heldur áfram niður meðfram framstykki og bakstykki eins og áður.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-4 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 214-230-246-266-290-314 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-23-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni) og aukið JAFNFRAMT ÚT UM 50-54-58-66-70-78 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 264-284-304-332-360-392 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – sjá LEIÐBEININGAR:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-14-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-35-33-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli tvöfalt inn að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur – passið uppá að hnappagötin 2 í kanti í hálsmáli sé yfir hvoru öðru. Saumið saman opið við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónstefna
symbols = örin merkir hvar á að setja prjónamerki fyrir útaukningu á ermi - þessi prjónamerki eru sett eftir að útaukning fyrir axlarsæti er lokið
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermi
symbols = útaukning fyrir berustykki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Saskia Havinga wrote:

Nog een vraag: onder het kopje mouwmeerderingen staat als laatste zin: Ga verder door te minderen naar een kleine raglan, zoals beschreven hieronder. Echter, ik zie nergens staan dat er geminderd moet worden.

25.03.2024 - 17:24

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

De laatste zin is inderdaad wat verwarrend, want het lijkt daardoor of je iets kleiner moet maken doordat er een 'kleine raglan' staat. Je kunt dit negeren en gewoon verder gaan met de volgende paragraaf.

27.03.2024 - 12:40

country flag Saskia Havinga wrote:

Ik ben net bij het lijf van het vest begonnen. Ik moet volgens het patroon beginnen met meerderen 6 cm vanaf de scheiding. Wat wordt bedoeld met de scheiding? Met vriendelijke groet, Saskia

24.03.2024 - 23:28

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

Hiermee wordt het punt bedoelt waarop je alleen het lijf breit en de mouwen laat rusten.

27.03.2024 - 13:45

country flag Mari wrote:

Vedr sadelskulderøkning. Det er 134 m (str M) og skal økes 12 ggr. (12x4=48) noe som gir 182m og ikke 230m som det står i oppskriften. 230m tilsier 24 økninger. Hva er riktig?

06.03.2024 - 20:21

DROPS Design answered:

Hei Mari, Du øker 2 masker på begge sider av både for- og bakstykket. Da blir det 8 økte masker på hver pinne. 12 x 8 = 96. 134 + 96 = 230 masker. God fornøyelse!

11.03.2024 - 07:02

country flag Willemijn wrote:

Bij het meerderen voor de zadelschouder ontstaan er gaatjes vóór de eerste en de derde markeerdraad. Dat komt omdat de volgende steek averechts is. Hoe voorkom ik dit? Kan ik voor de laatste vier steken een omslag maken, dan drie steken breien, weer een omslag en de vierde steek normaal breien? Ik ben al drie keer opnieuw begonnen.

11.01.2024 - 16:02

DROPS Design answered:

Dag Willemijn,

Doordat de volgende steek een averechte steek is wordt de omslag inderdaad automatisch groter, vandaar dat bij tip voor het meerderen ook staat aangegeven om extra strakke omslagen te maken. Heb je hier op gelet? Je zou daarnaast ook nog de volgende steek extra strak kunnen breien.

11.01.2024 - 18:44

country flag Martine RIBAULT wrote:

Sur votre conseil j'ai fait un échantillon avec une d'aig. n°5 pour obtenir 10x10 avec KARISMA. Je trouve que le tricot est plus aéré qu'avec une aig. n°4,5. L'échantillon avec aig. 4,5 la tension est 9,5x9,5 et un tricot plus resserré, qui me convient davantage. Dans le cas si je tricote avec 4,5, en rajoutant 2m à chaque bord des devants, est-ce-que j'obtiendrai les mêmes dimensions en largueur que sur le schéma représentant la veste ? Merci pour votre réponse.

03.01.2024 - 19:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, pensez également qu'un blocage aide parfois à obtenir la tension souhaitée, toutefois, si vous souhaitez conserver votre échantillon, il vous faudra recalculer les explications en vous basant sur votre propre tension car nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Vous pouvez également consulter les différents modèles du groupe B avec la tension qui vous convient. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:10

country flag Martine RIBAULT wrote:

Je ne suis pas parvenue à imprimer l'ensemble des réponses données aux questions posées par les différentes personnes, qui ont eu besoin de plus renseignement sur ce modèle. Serait-il possible de recevoir en P.J. par mail l'ensemble de ces pages avec traduction française si nécessaire, S.V.P. Avec fil KARISMA j'obtient 9,5x9,5 d'échantil. Si je rajoute 2m à chaque bande boutonnage, est-ce-que j'aurai les même dimensions que sur le schéma représentant le modèle ?

03.01.2024 - 19:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, pour obtenir les mesures finales telles qu'indiqué dans ce modèle, votre échantillon doit être de 20 mailles x 26 rangs jersey = 10 x 10 cm, si vous n'avez que 9,5 cm de côté, ré-essayez avec des aiguilles d'une demi-taille et/ou d'une taille au-dessus jusqu'à ce que vous ayez le bon échantillon, il vous faudra sinon recalculer les explications pour votre échantillon si vous souhaitez conserver une autre tension. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:08

country flag RIBAULT Martine wrote:

J'ai fais un échantillon avec le fil KARISMA, aiguille circulaire 4,5 et j'ai obtenu un 9,5x9,5, pour 20 m en largeur et 26 rgs en hauteur. Il manque donc 0,5 cm en largeur et en hauteur pour le même nbre de mailles et rgs, soit 20 m et 26 rgs. Est-ce que je peux me risquer à faire ce cardigan en taille L, avec le fil KARISMA ? Je vous remercie pour votre réponse éventuelle. Cordialement.

02.01.2024 - 00:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, vous pouvez essayer de bloquer votre échantillon pour voir si ça peut changer quelque chose, sinon oui, essayez avec des aiguilles plus grosses pour obtenir le bon échantillon et ainsi les mesures finales (en hauteur et en largeur) comme indiqué dans le schéma. Bon tricot!

02.01.2024 - 12:26

country flag RIBAULT Martine wrote:

Est-ce que ce modèle Country Muse Cardigan est réalisable avec le fil KARISMA. Avec ce fil mon échantillon correspond à 21 m en larg. & 28 rg en haut. pour 10x10 cm, avec une aiguille circulaire 4,5. Si je peux me risquer à utiliser KARISMA pour ce modèle, je choisirais la taille L. Est-ce réalisable ? Le fil KARISMA a une longueur de 100m, un poids de 50grs tout comme le fil LIMA préconisé pour ce modèle. Merci pour votre réponse.

31.12.2023 - 21:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, tout à fait, Lima (ici) et Karisma sont du même groupe de fils B; la tension est ici de 20 mailles x 26 rangs, adaptez la taille de vos aiguilles pour avoir cet échantillon et ainsi les bonnes mesures finales correspondant à celles du schéma. Bon tricot!

02.01.2024 - 11:42

country flag Mascha wrote:

Kann man die Jacke auch in Puna stricken? Oder ist das Garn vielleicht zu weich für eine solche Strickjacke?

20.04.2023 - 20:16

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, gerne kann mann diese Jacke auch mit Puna stricken, da beide Garne selbe Garngruppe B sind (versuchen Sie unseren Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen) - das Ergebnis wird ja etwas verschieden sein, da beide Garne verschiedene Zusammensetzung haben. Viel Spaß beim stricken!

21.04.2023 - 07:55

country flag Francine wrote:

Comment décaler les 4 marqueurs des augmentations des épaules pour le cardigan modele drops 216-39 je vous remercie

16.03.2023 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, les marqueurs doivent désormais se trouver au niveau des flèches dans le diagramme A.1, autrement dit, après les 4 m envers au début de A.1 et avant les 4 m envers à la fin de A.1. Bon tricot!

17.03.2023 - 08:37