DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Icefall

Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með sjalkraga, garðaprjóni, köðlum og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-4
DROPS Design: Mynstur me-204
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
900-1000-1100-1200-1350-1450 g litur 38, blá þoka

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 42 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og kaðla.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sjalkraga og stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (perlugrá) NR 614: 4 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÁL:
Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt, án þess að strekkja á því.
Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur stykkið til með að vera of langt þegar það er mátað.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju í lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt bæði framan og aftan í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 lykkju í lykkju með því að prjóna 1 lykkju brugðið bæði framan í og aftan í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 75 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 7 lykkjur) og deilið þeim 68 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING OG ÚRTAKA (á við um hálsmál, handveg, hvoru megin við A.1 og í útaukningu fyrir A-form):
Öll útaukning/úrtaka er gerð frá réttu!
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU ÞANNIG:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðan 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 2-2-2-2-3-3 cm eftir útaukningu fyrir v-hálsmáli er lokið. Fellið síðan af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki með sjalkraga og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna til loka. Öll stykkin eru síðan saumuð saman.

SJALKRAGI Á VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine.
Byrjið frá réttu og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – með stuttum umferðum þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 16-16-18-18-20-22 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til sjalkraginn mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm meðfram stystu hliðinni (sjalkraginn mælist ca 14-14-16-16-16-18 cm mælt meðfram lengstu hliðinni).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar 22-22-24-24-26-28 lykkjurnar, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 30 nýjar lykkjur í öllum stærðum í lok þessara umferðar fyrir öxl = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið síðan vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 32-32-34-34-36-38 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið þær 10 lykkjur sem eftir eru í garðaprjóni = 60-60-62-62-64-66 lykkjur í umferð.
Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjum í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 9 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið og 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni.
Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 23-23-25-25-27-29 lykkjur í umferð (séð frá réttu) – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út fyrir hálsmáli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, 1 lykkja sléttprjón, 9 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur), og endið með 10 lykkjum í garðaprjóni að handvegi.
Haldið svona áfram með mynstur. Lesið MÆLING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið síðan út fyrir handvegi og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, kaðallinn á að færast til og sjalkraginn á að minnka inn að kanti að framan eins og útskýrt er að neðan. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir vinstra framstykki áður en prjónað er áfram – útaukning og úrtaka er prjónað samtímis hvort sem byrjað er að fækka lykkjum fyrst fyrir handveg eða hálsmáli er lykkjum fækkað mismunandi eftir stærðum.

HANDVEGUR (vinstra framstykki):
Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur að handvegi (þ.e.a.s. innan við 3 síðustu lykkjur í lok umferðar frá réttu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu umferðar frá réttu = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg.
Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur í hlið fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. Prjónið til baka frá röngu eins og áður.

HÁLSMÁL (tilfærsla á kaðli á vinstra framstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir hálsmáli, en til að kaðall í A.1 geti fylgt hálsmáli, verður einnig að fækka lykkjum á undan A.1 og auka út á eftir A.1 í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli.
Þetta er gert þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli eftir prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir lykkju í sléttprjóni sem situr strax eftir sjalkraga), fækkið um 1 lykkju til hægri á undan A.1 og aukið út um 1 lykkju á eftir A.1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum. Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, endar einnig tilfærslan á kaðli. Stykkið mælist nú ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður.

SJALKRAGI/KANTUR AÐ FRAMAN (vinstra framstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, fækkið um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna aðra og þriðju lykkju í byrjun á umferð frá réttu, slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum (þessar 12-12-13-13-14-15 úrtökur eru gerðar í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli) og fækkið að lokum lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-6-7 sinnum (þ.e.a.s. úrtaka heldur áfram 4-4-5-5-6-7 sinnum eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið).
Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan, eru 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 29-30-31-32-34-35 cm frá öxl og niður.

ÚRTAKA Í HLIÐ (vinstra framstykki):
Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni á handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju til hægri í hlið með því að fækka lykkjum innan við ystu 3 lykkjur að hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum.

A-FORM (vinstra framstykki):
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Öll úrtaka og útaukning fyrir handveg, hálsmáli og kanti að framan á að vera lokið og það eru 58-62-67-72-78-84 lykkjur í umferð áður en útaukning byrjar.
Aukið út í hliðum með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hlið, að auki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur garðaprjón mitt í A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 3 lykkjur fleiri).
Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. eining með garðaprjóni á milli kaðla verður stærri og stærri og alltaf er aukið út hvoru megin við einingu í garðaprjóni við kaðla.
Að aukið heldur útaukning áfram í hlið með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 83-87-92-97-103-109 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING!
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 75-79-84-89-95-101 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkurað framan í garðaprjóni við miðju að framan þar sem aukið er út um 18-18-19-22-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 93-97-103-111-117-125 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og aukið út um 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Framstykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl.

SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-24-24-26-28 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka með stuttum umferðum frá röngu þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 16-16-18-18-20-22 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til sjalkraginn mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm meðfram stystu hliðinni (sjalkraginn mælist ca 14-14-16-16-16-18 cm mælt meðfram lengstu hliðinni).
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 22-22-24-24-26-28 lykkjur, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 30 nýjar lykkjur í öllum stærðum í lok þessara umferðar fyrir öxl = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjurnar). Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið 32-32-34-34-36-38 lykkjur í garðaprjóni = 60-60-62-62-64-66 lykkjur í umferð.
Prjónið til baka frá röngu með 22-22-24-24-26-28 lykkjum í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 9 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni.
Setjið 1 prjónamerki á undan síðustu 23-23-25-25-27-29 lykkjum í umferð (séð frá réttu) – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út fyrir hálsmáli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni að handvegi, A.1 (= 18 lykkjur), 9 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón og 22-22-24-24-26-28 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir MÆLING.
Aukið síðan út fyrir handvegi og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, kaðallinn á að færast til og sjalkraginn á að minnka inn að kanti að framan eins og útskýrt er að neðan. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir vinstra framstykki áður en prjónað er áfram – vegna þess að útaukning og úrtaka kemur til með að gerast samtímis og það er gert mismunandi eftir mismunandi stærðum ef þú byrjar á útaukningu fyrir handvegi eða hálsmáli.

HANDVEGUR (hægra framstykki):
Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur að handvegi (þ.e.a.s. innan við 3 fyrstu lykkjur í byrjun umferðar frá réttu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá röngu = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg.
Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur í hlið fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl.

HÁLSMÁL (tilfærsla á kaðli á hægra framstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir hálsmáli, en til að kaðall í A.1 geti fylgt hálsmáli, verður einnig að auka út lykkjum á undan A.1 og fækka lykkjum á eftir A.1 í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli.
Þetta er gert þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan A.1, fækkið um 1 lykkju til vinstri á eftir A.1 og aukið út 1 lykkju fyrir hálsmáli á undan prjónamerki (þ.e.a.s. á undan lykkju í sléttprjóni sem situr strax á undan sjalkraga – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum. Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, endar einnig tilfærslan á kaðli. Stykkið mælist nú ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

SJALKRAGI/KANTUR AÐ FRAMAN (hægra framstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá öxl, fækkið um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð frá réttu, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman og endið með 1 lykkju slétt.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 6-6-6-6-6-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9 sinnum (þessar 12-12-13-13-14-15 úrtökur eru gerðar í sömu umferð og aukið er út fyrir hálsmáli) og fækkið að lokum lykkjum í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5-6-7 sinnum (þ.e.a.s. úrtaka heldur áfram 4-4-5-5-6-7 sinnum eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið).
Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan, eru 6 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 29-30-31-32-34-35 cm frá öxl og niður.

ÚRTAKA Í HLIÐ (hægra framstykki):
Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni á handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju til vinstri í hlið með því að fækka um 1 lykkju innan við ystu 3 lykkjur að hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum.

A-FORM (hægra framstykki):
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Allar útaukningar og úrtökur fyrir handveg, hálsmáli og kanti að framan er nú lokið og það eru 58-62-67-72-78-84 lykkjur í umferð áður en útaukning byrjar.
Aukið út í hliðum með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hlið, að auki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur garðaprjón mitt í A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 3 lykkjur fleiri).
Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. eining með garðaprjóni á milli kaðla verður stærri og stærri og alltaf er aukið út hvoru megin við einingu í garðaprjóni við kaðla.
Að aukið heldur útaukning áfram í hlið með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 83-87-92-97-103-109 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING!
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 75-79-84-89-95-101 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkurað framan í garðaprjóni við miðju að framan þar sem aukið er út um 18-18-19-22-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 93-97-103-111-117-125 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er prjónað í garðaprjóni og köðlum á sama hátt og á framstykki.
Byrjið með hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan, prjónið síðan vinstri öxl að aftan, fitjið upp lykkjur yfir hálsmáli og setjið stykkin saman. Afgangur af bakstykki er prjónað eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 30 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni = 38 lykkjur.
Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjum í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur) og endið með 10 lykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá röngu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál (þessi lykkja er einnig prjónuð í garðaprjóni) = 39 lykkjur. Prjónið 2 umferðir fram og til baka og endið eftir síðustu umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 2 cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 30 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni = 38 lykkjur.
Prjónið til baka frá röngu með 10 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið og 10 lykkjur í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 18 lykkjur) og endið með 10 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við hálsmál (þessi lykkja er einnig prjónuð í garðaprjóni) = 39 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá uppfitjunarkanti, endið í sömu umferð frá röngu í A.1 og á hægri öxl að aftan.
Prjónið síðan bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Nú á að setja 2 stykkin saman JAFNFRAMT eru fitjaðar upp lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju. Byrjið frá réttu með vinstri öxl að aftan og prjónið mynstur eins og áður yfir 39 lykkjur, ekki snúa stykkinu, en fitjið upp 22-22-24-24-26-28 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli og prjónið síðan mynstur eins og áður yfir 39 lykkjur frá hægri öxl að aftan = 100-100-102-102-104-106 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka í garðaprjóni og A.1 eins og áður.
Síðan er aukið út fyrir handveg og kaðlar eiga að færast til inn að miðju. Það er mikilvægt að lesa allan kaflann sem tilheyrir bakstykki áður en prjónað er áfram – útaukning og úrtaka er prjónað samtímis og hvort sem byrjað er að fækka lykkjum fyrst fyrir handveg eða kaðlar færðir til er mismunandi eftir stærðum.

HANDVEGUR (bakstykki):
Þegar stykkið mælist 19-17-16-17-14-12 cm frá öxl, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 1-4-6-7-10-13 sinnum. Síðan eru fitjaðar upp 4-5-7-11-13-15 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = alls 5-9-13-18-23-28 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið.
Eftir útaukningu fyrir síðustu lykkjur fyrir handveg, mælist stykkið ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl og það eru 110-118-128-138-150-162 lykkjur í umferð.

TILFÆRSLA Á KÖÐLUM (á bakstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-18-19-20 cm frá öxl, byrjar tilfærsla á köðlum við miðju að aftan. Til að gera þetta, verður að auka út um 1 lykkju áður en A.1 er prjónað í fyrsta skipti (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju eftir að A.1 er prjónað í annað sinn (séð frá réttu). Að auki (í sömu umferð) er fækkað um 1 lykkju til vinstri eftir að A.1 er prjónað í fyrsta skipti og fækkað er um 1 lykkju til hægri áður en A.1 er prjónað í annað skipti – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 2 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri).
Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 7-7-7-8-8-8 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-2-2-2 sinnum. Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 22-22-24-26-28-30 lykkjur í garðaprjóni á milli kaðla mitt að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður án tilfærslna á köðlum.

ÚRTAKA Í HLIÐUM (bakstykki):
Þegar stykkið mælist 2 cm frá botni í handveg (þ.e.a.s. ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl), fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið alveg eins og á framstykki.
Þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju til vinstri innan við 3 fyrstu lykkjur í umferð (séð frá réttu) og fækkið um 1 lykkju til hægri innan við 3 síðustu lykkjur í umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum 104-112-122-132-144-156 lykkjur.

A-FORM (bakstykki):
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir A-formi. Aukið er út um 8 lykkjur frá réttu þannig: Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á bakstykki með því að auka út 1 lykkju innan við 3 ystu lykkjur í hvorri hlið, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24-26-28-30 lykkjur í garðaprjóni mitt í báðum A.1 – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Allar nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni.
Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt í A.1 með 3-3-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum á hæðina – þ.e.a.s. að kaðlarnir skiptast og prjónaða einingin á milli kaðla verður stærri og stærri. Að aukið heldur útaukning áfram í hvorri hlið á bakstykki og hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni mitt að aftan með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum á hæðina.
Eftir síðustu útaukningu eru 164-172-182-192-204-216 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl – munið eftir MÆLING!
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur og fækkið JAFNFRAMT um 16 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 148-156-166-176-188-200 lykkjur eftir.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem aukið er út um 37-39-41-43-47-49 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 185-195-207-219-235-249 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragið stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

ERMI:
Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 38-38-38-34-30-26 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 14-14-14-12-10-8 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju í hverja af næstu 4 lykkjum og prjónið 14-14-14-12-10-8 lykkjur brugðið = 46-46-46-42-38-34 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónamerkið á að passa við ör í A.2.
Prjónið A.2 fram og til baka, en takið eftir að ermakúpan er með fleiri lykkjur en A.2, þannig að teljið út frá miðju hvar mynstrið á að byrja – jafnóðum og aukið er út, eru prjónaðar fleiri og fleiri lykkjur í A.2, síðan eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-2-3-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-7-7-9-10 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4 sinnum í hvorri hlið, 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni í hvorri hlið og að lokum 3-5-6-6-6-6 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 82-88-94-100-104-110 lykkjur í umferð.
Eftir að fitjaðar hafa verið upp síðustu lykkjur, mælist ermakúpan ca 7-8-9-11-13-15 cm frá uppfitjunarkanti. Takið frá prjónamerki mitt á ermi.
Afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4.
Byrjun á umferð = mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með mynstur hringinn með A.2 yfir miðju 56 lykkjur á ermi og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá þar sem ermin er sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-2.-2.-2.-2. hverri umferð alls 9-11-13-13-14-16 sinnum = 64-66-68-74-76-78 lykkjur.
Þegar ermin mælist 17-16-16-16-15-15 cm frá þar sem ermin var sett saman við, aukið út um 4 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðju 6 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1 og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í garðaprjóni mitt í A.2. Þær 2 lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni og 2 lykkjur mitt á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni.
Aukið svona út með 5-5-5-7-6-6 cm millibili alls 5-5-5-4-4-4 sinnum á hæðina = 84-86-88-90-92-94 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-44-43-41-40 cm frá þar sem ermin var sett saman. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 76-78-80-82-84-86 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 96-98-100-102-104-106 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja bruðgið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 53-54-55-56-56-57 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan – passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmálið að aftan í hnakka.
Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.12.2020
Leiðrétting:TILFÆRSLA Á KÖÐLUM (á bakstykki):
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-18-19-20 cm frá öxl, byrjar tilfærsla á köðlum við miðju að aftan. Til að gera þetta, verður að auka út um 1 lykkju áður en A.1 er prjónað í fyrsta skipti (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju eftir að A.1 er prjónað í annað sinn (séð frá réttu). Að auki (í sömu umferð) er fækkað um 1 lykkju til vinstri eftir að A.1 er prjónað í fyrsta skipti og fækkað er um 1 lykkju til hægri áður en A.1 er prjónað í annað skipti – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA (= 2 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri).
Aukið út og fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 7-7-7-8-8-8 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-2-2-2 sinnum. Þegar útaukningar og úrtökur er lokið, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl og það hafa verið auknar út alls 22-22-24-26-28-30 lykkjur í garðaprjóni á milli kaðla mitt að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður án tilfærslna á köðlum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
symbols = pjónamerki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Annie wrote:

Liebes Drops Team, Dies ist ein wunderschönes Werk! Ich bin am Halsausschnitt und weiss nicht genau wie der Zopf verschoben wird. Wenn ich nach der rechten Masche eine zunehme zählt die dann auch zu diesen 9 Maschen bis A1 anfängt? Bleiben also zwischen dem Schallkragen und dem Zopf immer 9 Maschen? Vielen Dank. Annie

08.05.2021 - 08:44

DROPS Design answered:

Liebe Annie, zwischen die glatt rechte Masche und A.1 sollen Sie immer 9 Maschen kraus rechts haben, dh nach der glatt rechte Maschen 1 Umschlag stricken (= Zunahme), 7 M rechts stricken, 1 Abnahme (= 2 M re zs), dann A.1 stricken, 1 Umschlag und wie zuvor weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

10.05.2021 - 10:47

country flag Lucia Gauthier wrote:

Je veux tricoter le Modèle n° me-204. On n'indique pas combien de balles de laine est requis. Pour un modèle de grandeur L, combien m'en faudra-t-il? Merci.

05.05.2021 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gauthier, vous trouverez toujours la quantité requise pour chaque taille, au poids, dans l'en-tête, en même temps que les tailles, les aiguilles et (dans les derniers modèles) l'échantillon, autrement dit, en L il vous faut ici 1100 g DROPS Merino Extra Fine/50 g la pelote = il vous faudra 22 pelotes Merino Extra Fine en taille L. Bon tricot!

06.05.2021 - 07:37

country flag Ria wrote:

Hi I love this cardigan and can't wait to get started. I've scanned through the instructions and found something odd. Is this right here?: ARMHOLES (back piece): When the piece measures 19-17-16-17-14-12 cm from the shoulder - The number 17 comes up twice, shouldn't it be 15? Is this intentional? Thank you so much for your help, Ria

06.04.2021 - 09:25

DROPS Design answered:

Dear Ria, when unsure about a line of numbers (like measurements, etc) you can always check the Norvegian version. In this case that has the same measurements, so the translations are correct, but let me check with the Design dept, and get back to you. Happy Knitting until then.

06.04.2021 - 09:35

country flag Ingrid wrote:

Liebes drops team vielen dank für gute nachricht ich habe nur gedacht ich frage vorher denn das ganze wieder aufzuziehen erscheint etwas schwierig. jetzt kann ich stricken. Wann kommt die frühjahr- sommerkollektion zur ansicht. Es sind immer wieder mald tolle modelle dabei. viele grüsse aus friesenheim ingrid

05.01.2021 - 18:11

country flag Ingrid wrote:

Hallo liebes drops team, ich wende mich heute nochmal an euch, da ich immer nochd keine rückmeldung habe auf die korrektur des rückenteils. ich möchte doch endlich fertigsgtricken. liebe grüsse ingrid

05.01.2021 - 09:42

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, Entschuldigung für die Verspätung, es ist also so richtig, die Verschiebung wird beim Rückentil etwas unterschiedlich sein. Viel Spaß beim stricken!

05.01.2021 - 15:15

country flag Ingrid wrote:

Hallo, danke für die mitteilung ich hoffe, dass die korrektur bald kommt ich möchte doch die jakce schnellstens fertig stricken. Danke , ingrid

04.01.2021 - 08:40

country flag Ingrid wrote:

Hallo danke für die schnelle bearbeitung. Muss ich ,mich nochmals melden oder kommt die antwort automatisch. bin ich registriert zur beantwortung

23.12.2020 - 13:46

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, kommen Sie regelmäßig wieder, wenn eine Korrektur gemacht wird, dann sehen Sie den neuen Text auch unter "Diese Anleitungn wurde korrigiert" ganz am Ende der Anleitung. Danke für Ihren Geduld.

04.01.2021 - 07:19

country flag Ingrid wrote:

Hallo , sind die zunahmen und abnahmen beim rückenteil nicht identisch mit den vorderteilen . die zunahmen und abnahmen sind höhenmäßig nicht identisch mit den vorderteilen. ich bitte um antwort noch vor den feiertagen. vielen dank liebe grüße ingrid

22.12.2020 - 18:36

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, Ihren Hinweis wurde unsere Design Team weiterleitet, leider wird es nicht vor den Feiertagen erledigt - danke im voraus für Ihren Geduld.

23.12.2020 - 10:54

country flag Ingrid wrote:

Hallo bin gerade am stricken dieser jacke. mir ist nicht ganz klar warum die zopfverschiebung beim vorderteil nach 14 cm beginnt und beim rückenteil nach 16 cm beginn der zopfverschiebung. das kann doch nicht sein sonst wäre es unterschiedlich zwischen vorder- und rückenteil. ich bitte um baldi ge antwort da ich sonst nicht weiterstricken kann.

22.12.2020 - 13:51

country flag Malin Sivertsson wrote:

I diagram förklaring så är flätorna vridna åt samma håll. Ska inte den ena sättas 4 maskor på flätstickan bakom arbetet? Som det är nu sätts båda framför arbetet.

19.12.2020 - 23:55

DROPS Design answered:

Hej Malin. Tack för info, det var fel i den svenska översättningen och detta är nu rättat. Mvh DROPS Design

21.12.2020 - 10:22