DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frosted Leaves

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-3
DROPS Design: Mynstur ks-168
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-175-200-225 g litur 13, gallabuxnablár
Eða notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-175-200-225-250-250 g litur 10, grár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 1 þræði Brushed Alpaca Silk eða 2 þræði Kid-Silk.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-72-92-92-92-92 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði Brushed Alpaca Silk eða 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið áfram með stroff í 4 cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-31-31-31-31 lykkjur, sjá byrjunar ör í þinni stærð), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 11 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-31-31-31-31 lykkjur, sjá byrjunar ör í þinni stærð), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 11 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón.

Haldið áfram með útaukninu og mynstur svona, öll útaukning er teiknuð inn í mynsturteikningu. Aukið er út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið áfram með A.3. Prjónið A.3A yfir fyrstu 5 lykkjurnar, endurtakið A.3B þar til 6 lykkjur eru eftir yfir A.1/A.2 og prjónið A.3C yfir síðustu 6 lykkjurnar. Í hvert skipti sem A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu fleiri af A.3B á breiddina. Haldið áfram með útaukningu eins og útskýrt er í A.1 og A.2. Aukið út í annarri hverri umferð alls 25-30-30-30-35-40 sinnum = 272-312-332-332-372-412 lykkjur. Stykkið mælist ca 23-27-27-27-32-36 cm frá prjónamerki.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður, þetta er umferð sem er prjónuð brugðið yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. síðasta umferð í mynstureiningu af A.3): Prjónið 73-83-93-93-103-113 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 63-73-73-73-83-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 73-83-93-93-103-113 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-73-73-73-83-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar lykkjur á prjóninn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Klippið frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-180-200-200-220-240 lykkjur. Byrjið stykkið 3 lykkjum á undan nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið og prjónið A.4 yfir allar lykkjur, passið uppá að það passi yfir mynstur frá berustykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-21-23-25-22-20 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælst ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 63-73-73-73-83-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum undir ermi = 70-80-80-80-90-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 7 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Haldið áfram með mynstur hringinn eftir A.4, passið uppá að mynstrið passi við mynstur frá berustykki.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-2-1-1 cm millibili alls 11-15-15-13-17-21 sinnum = 48-50-50-54-56-58 lykkjur. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni.

Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-31-32-28-25 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 40-42-42-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 39-38-35-36-32-29 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.10.2020
Leiðrétting á texta í 3. mynsturtákni
Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2023
PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið samkvæmt mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Frosted Leaves

Joanna Cichocki, Norway

Frosted Leaves

Bethany, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (125)

country flag Rara wrote:

Bonjour, Merci de votre réponse mais je bloque toujours pour commencer A3 . Avec A3 il n'y a plus qu'un motif de triangle rectangle qui se forme pour commencer après les raglans alors qu'avec A1 ou A2 c'était un triangle équilatéral qui se forme juste après et avant le raglan. C'est bien ça ? Du coup le raglan va changer d'orientation et ne sera plus une ligne droite, c'est bien ça ? Merci

10.02.2024 - 20:25

DROPS Design answered:

Bonjour Rara, vous devez continuer à augmenter exactement comme avant et tricoter les nouvelles mailles avant A.3A comme au début de A.1 et les nouvelles mailles après A.3C comme à la fin de A.1, autrement dit, vous les tricotez en jersey endroit, et à l'envers au dernier tour de A.3, lorsque vous avez tricoté 1 fois A.3 en hauteur, tricotez de nouveau A.3A, répétez A.3B et terminez par A.3C en augmentant de chaque côté comme avant; les raglans doivent toujours être en diagonale car on augmente au début + à la fin de chaque séquence du point ajouré. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:32

country flag Rara wrote:

Bonjour, le motif A3 remplace les motifs a1 et a2? Qu'est ce qui change avec A3 par rapport à l'alternance des motifs a1/a2 ? Merci Merci

08.02.2024 - 23:01

DROPS Design answered:

Bonjour Rara, A.3A montre comment commencer le point ajouré (mais continuez à augmenter comme avant au début de A.1), A.3B correspond au motif à répéter, A.3C montre comment terminer le point ajouré avant le raglan suivant (mais continuez à augmenter comme à la fin de A.1). Bon tricot!

09.02.2024 - 08:17

country flag Rara wrote:

En taille s, combien de fois faut il tricoter A3 en hauteur ? Merci

08.02.2024 - 22:51

DROPS Design answered:

Bonjour Rara, vous tricotez le point fantaisie sur l'empiècement (en augmentant pour le raglan) jusqu'à ce qu'il mesure 23 cm (si vous n'avez pas la bonne hauteur, continuez le point fantaisie sans augmenter). Bon tricot!

09.02.2024 - 08:13

country flag Rara wrote:

En taille s, combien de fois faut il tricoter A3 en hauteur ?

08.02.2024 - 22:50

country flag Alicja wrote:

Po przeliczeniu oczek na karczku okazało się, że źle robiłam A3 bo nie dodawałam oczek na początku i końcu tego schematu. Opis wykonania karczku wymaga korekty, bo wprowadza w błąd. Nie pisze o narzucaniu dodatkowych oczek. Skąd się wzięło te 332 oczka dla rozmiaru L?

08.01.2024 - 21:30

DROPS Design answered:

Witaj Alicjo, we wzorze jest napisane, aby W TYM SAMYM CZASIE co jest przerabiany schemat A.3, dalej były przerabiane schematy A.1 i A.2 i dodawane oczka. Spróbujemy to skorygować, aby było jaśniej. Skąd 332 oczka – skoro co 2 okrążenia 8 oczek, a w rozmiarze L powtarzamy to 30 razy to: 92 oczka początkowe+(30x8)= 92+240=332 oczka. Pozdrawiamy!

09.01.2024 - 17:09

country flag Anne HEOUAIRI wrote:

Bonjour et merci pour votre réponse précédente. J’ai commencé à tricoter A3 comme indiqué mais les 2 mailles jersey qui forment le raglan disparaissent si on enchaîne A3B jusqu’au 6 dernières mailles. Comment faire pour conserver des 4 ranglans en enchaînant A3B sans tricoter les deux mailles jersey nécessaires et les jetés nécessaires à la formation du raglan ? Merci de votre aide Anne

05.01.2024 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Heouairi, en tricotant A.1 vous continuez à augmenter avant A.3A et après A.3B, autrement dit, vous allez tricoter les nouvelles mailles à l'endroit (ou à l'envers selon les rangs), exactement comme vous l'aviez fait au début et à la fin de A.1 juste avant. Les jetés des raglan doivent toujours être au même niveau: de chaque côté des 2 mailes jersey. Bon tricot!

08.01.2024 - 09:33

country flag Anne Heouairi wrote:

Bonjour, je tricote le modèle en taille L. J’ai commencé la grille A1 au milieu et la A2 au début. Du coup j’ai fini la A1 avant la A2. Dois je continuer avec la A3 alors que la A2 n’est pas terminée ou dois-je continuer jusqu’au bout de la A2 en continuant le même motif sur la partie A1? Merci

29.12.2023 - 00:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Heouairi, vous devez continuer à augmenter comme avant, tricotez A.3 tout en augmentant comme avant dans A.1, le motif va continuer progressivement comme avant. Bon tricot!

02.01.2024 - 10:11

country flag Schorsch Hennersen wrote:

Guten Tag! Darf ich fragen: Welche Größe trägt das Modell auf dem Bild? Liebe Grüße Schorsch

17.10.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schorsch, meistens tragen unsere Modelle S oder M, aber um Ihre Grösse zu finden messen Sie am besten einen ähnlichen Pullover, den Sie gerne tragen und dann vergleichen Sie diese Maßen mit den in der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

18.10.2023 - 08:14

country flag Mi wrote:

Bonjour Comment faire pour avoir les explications en français? Merci

20.09.2023 - 08:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mi, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour sélectionner la langue souhaitée et ainsi basculer les explications en français. Bon tricot!

21.09.2023 - 11:29

country flag Veronica Nilssen wrote:

Hei. Jeg strikker i str XL. Når jeg har strikket A1 en gang i høyden så er det mer igjen på A2. Er det sånn at jeg skal fortsette med A2 til den er strikket en gang i høyden? For så å gå til A3? Elsker mønstret😍

23.08.2023 - 09:52

DROPS Design answered:

Hei Veronica. Når A.1 er strikket 1 gang i høyden, strikkes det videre med A.3. Strikk A.3 A over de første 5 maskene, gjenta A.3 B til det gjenstår 6 masker over A.1, og strikk A.3 C over de siste 6 maskene. mvh DROPS Design

28.08.2023 - 12:54