Climbing Ivy |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-1 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við einingu af A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo EKKI myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-106-114-114-122-122 lykkjur á hringprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff frá miðju að aftan þannig: STÆRÐ S-M-XXL-XXXL: 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 4-4-12-12 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. STÆRÐ L-XL: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. ALLAR STÆRÐIR: Endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki hér (= mitt að framan, það er notað til að mæla frá síðar), haldið áfram með 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 7 cm. Prjónið síðustu umferð í A.1 (með útaukningum). Nú eru 122-122-130-130-138-138 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna 5. Næsta umferð er prjónuð þannig: prjónið 3-3-5-5-7-7 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 26 lykkjur) yfir A.1 (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 6-6-10-10-14-14 lykkjur slétt og prjónið A.2 yfir A.1 (= framstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 3-3-5-5-7-7 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 130-130-138-138-146-146 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð með mynstri, þeir 4 uppslættirnir í hvorri hlið yfir hvorri ermi eru prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram með A.2 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-21-22-25-27-31 sinnum = 266-298-314-338-362-394 lykkjur. Haldið nú áfram með útaukningu á ermum 4-2-4-4-2-0 sinnum til viðbótar (= alls 21-23-26-29-29-31 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermum), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 282-306-330-354-370-394 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 23-25-28-30-31-32 cm frá prjónamerki mitt að framan. Ef stykki mælist minna en þetta, haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 46-50-53-56-60-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-100-106-112-120-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-56-60-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 196-212-224-240-260-280 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn með A.2 og sléttprjóni eins og áður. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-26-25-25-26-27 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð í A.2 sé umferð með köðlum. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-26-29-33-37 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 20-24-28-32-36-40 lykkjur í stroffi), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið*, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-48-54-60-68-76 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir (= 42-50-54-62-70-78 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-26-29-33-37 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 20-24-28-32-36-40 lykkjur í stroffi), 1 lykkja slétt. Í næstu umferð heldur stroff áfram eins og útskýrt hefur verið og A.4 er prjónað yfir lykkjur í A.3 = 184-200-212-236-252-276 lykkjur í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 49-53-59-65-65-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjóna/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 55-59-65-73-75-81 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi (= 3-3-3-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-10-13-13-14 sinnum = 43-45-45-47-49-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-32-30-30-30 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-3-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist ca 39-38-36-34-34-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (84)
Mette wrote:
I wish you had more photos from all sides on all pattern and also wrote the size of the model. It makes it much easier to understand.
20.05.2024 - 23:02Ira Hnida wrote:
Habe alle Rätsel selbst gelöst. Konnte nicht warten. Vg
27.03.2024 - 16:51Vish wrote:
Hi! I finished working on the yoke and the increases on the sleeves for the size L. After making the increases on the sleeves 4 times (for size L), the number of stitches on the needle =346 stitches NOT 330 stitches. Is there some error with the math on the pattern? Basically, 314 sts after the yoke increases for size L + 16 sts + 16 stitches on each of the sleeves (=346 sts). What am I missing? Please help! Thanks!
26.03.2024 - 04:56DROPS Design answered:
Dear Vish, after you get 314 stitches you increase 4 more times only in the sleeves. You have 2 increases per sleeve. So you increase 2 increases x 2 sleeves x 4 times =16 increases. 314 stitches +16 increases = 330 stitches. Happy knitting!
31.03.2024 - 23:02Ira Hnida wrote:
Hallo Drops Team , nun bin ich immernoch beim Übergang zur Passe habe meinen 1 Fehler begriffen , trotzdem fehlen mir immer noch 2 Maschen .Komme auf 136 bei 4 mal 4 Maschen Zunahme. Das erste Rätsel habe ich geschafft,nun fehlen noch 2 M Auch auf dem Papier beim Rechnen. VG
25.03.2024 - 01:03DROPS Design answered:
Siehe Antwort unten :)
02.04.2024 - 09:25Ira Hnida wrote:
Hallo Drops Design Team ,wenn ich ganz am Anfang 122 M mit A1 stricke ,komme ich in der letzten Reihe auf 20 Umschläge,also auf 142 Maschen ,nicht 138. Das ist mir ein Rätsel. Viele Grüße
24.03.2024 - 18:04DROPS Design answered:
Liebe Frau Hnida, bei der letzten Reihe in A.1 wird man 4 Maschen (siehe Umschläge) zunehmen, so wird man insgesamt 4 Maschen in jedem A.1 (4Mal) = 16 Maschen zunehmen, so hat man 122 + 16 = 138 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 09:18Vish wrote:
Thank you for your response! This really helps. I have a follow up question -- When you/the pattern says "increasing on the 2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times," second round of A.2 pattern or every second (alternate) round in the pattern? Meaning in rounds 1, 3, 5, 7 of the A.2 pattern? I am a new knitter and this is my first raglan pattern, so I am very confused about how to do the increases.
13.03.2024 - 20:27DROPS Design answered:
See answer below :)
14.03.2024 - 08:20Vish wrote:
Thank you for your response! This really helps. I have a follow up question -- When you/the pattern says "increasing on the 2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times," second round of A.2 pattern or every second (alternate) round in the pattern? Meaning in rounds 1, 3, 5, 7 of the A.2 pattern? I am a new knitter and this is my first raglan pattern, so I am very confused about how to do the increases.
13.03.2024 - 19:21DROPS Design answered:
Dear Vish, yes that's right, you will work alternately 1 round with increases, 1 round without increases until you have worked 17 - 31 times (see size). Happy knitting!
14.03.2024 - 08:14Vish wrote:
Hi, I am making this pattern in size L. I am now working the yoke. I knit the 1st round of yoke and have 138 st (= all good so far). I am extremely confused about how to work round 2 onwards. Do I repeat Round 2 of A.2 with the increases on each side of the sleeves and over the sleeves? What does it mean to "Continue with A.2 and stocking stitch, AT THE SAME TIME on the first round increase 1 stitch on each side of every A.2 to RAGLAN – read description above.?" Please help!
10.03.2024 - 06:32DROPS Design answered:
Dear Wish, when you start the yoke, on the stitches that were knitted with the pattern A.1 will be continued with the pattern A.2. AND increases on both sides of all repeats of pattern A.2.From then on you continue with the rows (rounds) of pattern A.2 at the raglan lines, increasing as the instructions say ("2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times = 266-298-314-338-362-394 stitches. Continue the increases on the sleeves 4-2-4-4-2-0 more times (= a total of 21-23-26-29-29-31 stitches increased on each sleeve),"), and stocking stitches on the rest. I hopw this helps. Happy Knitting!
10.03.2024 - 22:23Josephine Lottenburger wrote:
Har I brugt pind 4 eller 5 til strikkefastheden?
12.02.2024 - 17:32DROPS Design answered:
Hej Josephine, vi bruger pind 5 :)
22.02.2024 - 11:29Miranda wrote:
Hi! I'm starting to knit the pattern but I don't understand how it should look from behind. Is it the some as the front pattern? It would be really helpful if you could post a backside picture for reference.
26.01.2024 - 11:24DROPS Design answered:
Dear Miranda, these are the only photos of the pattern that we have available. The back piece and the front piece should look practically the same, since both have the same cable pattern. Happy knitting!
28.01.2024 - 23:44