FAYARD Hélène skrifaði:
Pour l'échantillon, il semble que je fasse exactement le contraire de vous : si mon échantillon est plus étroit , je prends des aiguilles plus grosses car je serre peut-être plus que vous; s'il est plus large que vous, je prends des aiguilles plus fines (sans doute je serre moins en tricotant) . serait-ce une erreur ?
28.12.2023 - 10:28
Josie skrifaði:
Bonjour, je viens de recevoir ma laine Sky, mais j'ai un problème avec ce modèle. Pour ma forte poitrine on me dit de faire la taille XXL, mais le reste des dimensions ne correspond pas à mes dimensions. Que me conseillez vous SVP ? Merci et bonne journée à vous.
17.12.2021 - 14:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Josie, comparez un modèle que vous avez et dont vous aimez la forme aux mesures du schéma pour trouver votre taille et adapter si besoin - retrouvez plus d'infos sur le schéma ici - votre magasin saura vous conseiller et vous aider, même par mail ou téléphone si besoin. Bon tricot!
17.12.2021 - 16:10
Gouince skrifaði:
Comment ont fait quand ont et au rg envers ont continue le dessin mes à l'envers ?? comme ses un aller retour
06.10.2021 - 15:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gouince, tout à fait, sur l'envers, tricotez A.1b, puis répétez A.1a en lisant de gauche à droite - cette vidéo devrait pouvoir vous aider à visualiser comment tricoter le jacquard sur l'envers. Bon tricot!
06.10.2021 - 16:37
Gabriele skrifaði:
Gibt es kein Schnittmuster zu dieser Anleitung?
16.10.2020 - 20:49Gabriele svaraði:
Das Schnittmuster ist verzögert am Bildschirm erschienen! Liebe Grüße und danke für die tollen Anleitungen!
16.10.2020 - 20:51
Marina skrifaði:
Большое спасибо за помощь и описание! Прекрасная модель
04.08.2020 - 16:31
Angelika skrifaði:
Möchte es gleich zu stricken beginnen
05.06.2020 - 14:53
Iced Petals Jacket#icedpetalsjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1a og A.1b. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Í þeirri umferð þar sem mynstrið er með 2 litum eru prjónaðar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið með grunnlit. ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir stroffi. Fellið síðan af fyrir næstu hnappagötum með ca 8-8-8-7½-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 113-117-121-127-129-135 lykkjur á hringprjón 3 með litnum lavender. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 9 cm (kantur í hálsi er brotinn saman tvöfaldur síðar), stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Í næstu umferð er skipt yfir á hringprjón 4 og það er gert HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað sléttprjón þar sem aukið er út um 36-38-40-46-44-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 149-155-161-173-173-179 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið eftir mynsturteikningu A.1a þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 23-24-25-27-27-28 mynstureiningar á breidd), prjónið A.1b (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Sjá MYNSTUR, LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2 í útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – og munið eftir að gera HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 287-299-336-362-389-403 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 283-299-339-363-383-407 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður með litnum lavender þar til stykkið mælist 20-20-21-23-25-27 cm. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá réttu þannig: Prjónið 43-44-50-54-58-63 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 77-79-91-99-107-117 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 10-12-12-12-14-16 lykkjur í hlið undir ermi og prjónið 43-44-50-54-58-63 lykkjur (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-191-215-231-251-275 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-12-12-12-14-16 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 207-215-239-255-275-299 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 27-29-30-30-30-30 cm frá skiptingu. Nú er prjónuð 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 20 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 227-235-259-275-295-319 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-66-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna eða sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= byrjun á umferð). Prjónið sléttprjón hringinn með lavender. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 39-39-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 78-86-94-98-102-106 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið kant í hálsmáli að röngu á stykki. Saumið niður með lausum sporum að innanverðu á stykki, ekki sauma í hverja lykkju – hoppið yfir nokkrar lykkjur svo að sporin verði löng og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið síðan saman op meðfram kanti að framan efst í kanti í hálsmáli, saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icedpetalsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.