Tamara Lister skrifaði:
Hi, I am half-way through knitting this jumper (I am enjoying it very much!), but it's for a present so needs to be finished soon. Unfortunately, your site is having some technical problems displaying the images. Is there any way you can send me a pdf version? Many thanks
16.03.2021 - 11:34DROPS Design svaraði:
Dear Tamara, unfortunately we cannot send out these PDF's so, please be patient. We are working hard to restore the pictures as soon as we can. Thank you for your understanding and patience.
16.03.2021 - 12:45
Camilla skrifaði:
Hur kan 78 maskor bli rätt antal i halsresåren? Då börjar och slutar resåren med två räta maskor, det måste vara fel. Ser att andra kommenterat har detta på annat språk utan att någon replikerat.
10.08.2020 - 22:59DROPS Design svaraði:
Hej Camilla. Tack för info, detta är nu rättat så att man istället lägger upp 80 maskor i de 3 minsta storlekarna. Mvh DROPS Design
14.08.2020 - 09:27
Gabriela skrifaði:
I would like to knit this pattern with baby alpaca, which belongs to group B. Do I have to switch needles size, or re size everything? Thank you
05.06.2020 - 16:02DROPS Design svaraði:
Dear Gabriela, DROPS BabyAlpacaSilk belongs to yarn group A, but you then work 2 strands to rpelace 1 strand yarn group C as Big Merino. Read more about alternatives here. Happy knitting!
08.06.2020 - 07:32
Anna skrifaði:
Il y a une erreur il paraît juste au début du travail. En commencant le col on ne peut pas faire les côtes 2/2 avec 78 mailles. Il en faut 76 ou 80.
15.05.2020 - 22:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Anna, l'erreur est corrigée, tu faut 80 mailles.
20.11.2020 - 20:59
Irene Visscher skrifaði:
Hoe kan ik aan dit patroon komen? (mb-059)
05.04.2020 - 13:41DROPS Design svaraði:
Dag Irene Visscher,
Al onze patronen zijn gratis en je kan het patroon printen met de knop 'Afdrukken' welke onder de materialenlijst te vinden is.
16.04.2020 - 12:01
Claudia skrifaði:
Summer breeze! Waiting for the instructions Thks
21.03.2020 - 18:15
Toos skrifaði:
Prachtig, waar kan ik het patroon vinden of kopen
15.03.2020 - 10:36
Evelyne skrifaði:
Très joli modèle pour un printemps un peu long
16.02.2020 - 21:08
Emsé skrifaði:
Fraicheur du matin
21.01.2020 - 09:00
Johanna skrifaði:
Heel mooi ajourpatroon. Zou ik graag breien !
11.01.2020 - 09:28
Dripping Diamonds#drippingdiamondssweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-13 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,75. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli. berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Byrjun á umferð er í skiptingunni á milli vinstri axlar og bakstykkis. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-80-88-88-88 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-18-18-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 86-86-86-106-106-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. BERUSTYKKI: Prjónið þannig: A.1 A (= 5 lykkjur), A.1 B yfir næstu 20-20-20-30-30-30 lykkjurnar ( = 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.1 C (= 6 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.1 A, A.1 B yfir næstu 20-20-20-30-30-30 lykkjurnar, A.1 C, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína) = 8 lykkjur fleiri. Nú eru 94-94-94-114-114-114 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1, á ermum er aukið út með uppslætti hvoru megin við lykkjur á ermi (laskalína = alltaf 2 lykkjur). Aukið svona út í annarri hverri umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á ermum. Á fram- og bakstykki eru lykkjurnar prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 166-166-166-186-186-186 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.1. Í hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 20 umferðir á hæðina, er pláss fyrir 2 einingar fleiri í A.1 B á breiddina á bakstykki/framstykki. Þegar aukið hefur verið út alls 22-22-27-27-27-32 sinnum hvoru megin við A.1, eru 262-262-302-322-322-362 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 24-24-28-28-28-33 cm frá kanti í hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 75-75-85-95-95-105 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-56-66-66-66-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-75-85-95-95-105 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-56-66-66-66-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-166-186-206-214-238 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-8-8-8-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig með byrjun 3-4-4-4-6-7 lykkjur á eftir prjónamerki (byrjið í umferð merktri með ör í hverri mynsturteikningu): A.2 (= 7 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 60-60-70-80-80-90 lykkjurnar (= 6-6-7-8-8-9 mynstureining með 10 lykkjum), A.4 (= 8 lykkjur), prjónið 6-8-8-8-12-14 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-8-8-8-12-14 lykkja), A.2 (= 7 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 60-60-70-80-80-90 lykkjur (= 6-6-7-8-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.4 (= 8 lykkjur), prjónið 6-8-8-8-12-14 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-8-8-8-12-14 lykkja). Haldið svona áfram með mynstur, A.2, A.3 og A.4 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 7 cm millibili alls 4 sinnum = 178-182-202-222-230-254 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 29-31-29-31-33-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-56-66-66-66-76 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 62-64-74-74-78-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-8-12-14 lykkjur undir ermi – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 2½-2½-2-1½.-1½-1 cm millibili alls 12-12-16-16-17-22 sinnum = 38-40-42-42-44-46 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 32-33-30-28-29-26 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 40-40-44-44-44-48 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 36-37-34-32-33-30 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #drippingdiamondssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.