Donna Kahn skrifaði:
Summer Shimmer
25.02.2020 - 00:02
Gudrun skrifaði:
Frühlingsfrisch! Ich warte schon sehnlichst auf die Anleitung.
30.01.2020 - 06:32
Jane skrifaði:
Love the colours
10.01.2020 - 19:47
Veronique skrifaði:
Mooie kleuren
30.12.2019 - 19:35
Carmen skrifaði:
Me encanta, muy ponible.
20.12.2019 - 09:53
Pál Anikó Noémi skrifaði:
Szivárvány
16.12.2019 - 11:37
Nahalie skrifaði:
Très joli , j'aimerais bien aussi avec d'autres idées d'associations de couleurs .
14.12.2019 - 03:31
Bruna skrifaði:
Semplice e sportivo mette allegria con tutte le nuance di colore
11.12.2019 - 13:16
Vicky Williams skrifaði:
Do love this! A lovely simple design made beautiful by the mixes of colours.
10.12.2019 - 15:08
Watercolour Sky#watercolourskysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-22 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið 4 rendur þannig: Stillið af að hver rönd endi með litnum natur og byrji með litnum. RÖND 1: Prjónið * 1 umferð með litnum súkkulaði, 1 umferð með litnum natur *, prjónið frá *-* í 18-18-19-19-20-20 cm alls (þ.e.a.s. mælt frá uppfitjunarkanti). RÖND 2: Prjónið * 1 umferð með litnum þokumistur, 1 umferð með litnum natur *, prjónið frá *-* í 13-13-13-14-14-14 cm. RÖND 3: Prjónið * 1 umferð með litnum lavender, 1 umferð með litnum natur *, prjónið frá *-* í 13-13-13-14-14-14 cm. RÖND 4: Prjónið * 1 umferð með litnum bleikur draumur, 1 umferð með litnum natur *, prjónið frá *-* til loka. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um berustykki): Öll útaukning er gerð í umferð með litnum natur. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan (þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð með súkkulaði). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð í litnum natur, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 15-20-24-28-24-16 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 119-128-136-144-144-140 lykkjur. Prjónið 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú merki í lykkjur í næstu umferð með litnum súkkulaði þannig: Prjónið * 3 lykkjur slétt, setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið hana slétt, 3-4-4-4-4-3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* (= 17-16-17-18-18-20 sinnum á breiddina). Nú á að auka út lykkjur hvoru megin við lykkjur með merki. Í næstu umferð með litnum natur er aukið út um 1 lykkju á undan hverri lykkju með merki (= 17-16-17-18-18-20 lykkjur fleiri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 12-13-14-15-17-17 sinnum, en nú er aukið út til skiptis á undan og á eftir lykkju með merki = 323-336-374-414-450-480 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá merkiþræði fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-49-54-59-66-71 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-70-79-89-93-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 93-98-108-118-132-142 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 68-70-79-89-93-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 47-49-54-59-66-71 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 203-212-232-252-280-300 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju á milli 8 nýrra lykkja undir ermi í hvorri hlið (= í hliðarnar á fram- og bakstykki). Nú eru 102-106-116-126-140-150 lykkjur á bakstykki og 101-106-116-126-140-150 lykkjur á framstykki. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í röndum og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvorn merkiþráð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 6 sinnum = 227-236-256-276-304-324 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 1-0-0-0-0-0 lykkjur = 228-236-256-276-304-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið svona þar til stroffið mælist 3 cm, stillið af þannig að síðasta umferðir sé prjónuð með litnum natur. Fellið af með sléttum lykkjum með litnum bleikur draumur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. ERMI: Setjið 68-70-79-89-93-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-78-87-97-101-106 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð á milli 8 lykkja undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota merkiþráðinn síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við merkiþráðinn. Prjónið síðan í sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 3-3-1-1-4-2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 9-9-12-16-17-19 sinnum = 58-60-63-65-67-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og aukið út 2-0-1-3-1-0 lykkjur = 60-60-64-68-68-68 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð með litnum natur, fellið af með litnum bleikur draumur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #watercolourskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.