Liz Blaine wrote:
Hi - I'm loving this pattern and how it is knitting up - but I'm not sure I understand correctly the following instructions for the collar. * Work 1 ridge back and forth over all stitches, 1 ridge back and forth over the first 9-9-9-10-10-10 stitches towards mid front * Could you please explain that for me in really really simple terms - maybe a diagram too? Thank you
24.01.2023 - 04:10DROPS Design answered:
Dear Mrs Blaine, to make the collar being larger on the outer edge as on the inner edge (shawl collar), you will work short rows, starting from RS (right collar) / from WS (left collar) and work more rows over the first outer stitches: 2 rows/ 1 ridge over all stitches and 2 rows/1 ridge over the first 9-10 sts only. Happy knitting!
24.01.2023 - 12:11Annette Toftager wrote:
Hvordan finder man ud af hvad størrelse man skal strikke, er der et skema med mål?
13.03.2022 - 17:20DROPS Design answered:
Hej Annette, ja, du finder cardiganens mål i måleskitsen nederst i opskriften. Du får de korrekte mål når du holder den strikkefasthed som står i opskriften. God fornøjelse!
14.03.2022 - 08:45Anouk Dekker wrote:
Ik ben dit vest aan het breien met de bijbehorende wol van Drops, maar ik loop vast bij de kraag. Hoewel het patroon goed te volgens is snap ik dit stuk niet helemaal. Ik ben nu bij de "rechter kraag" en heb dus 13 steken op de naald. Dan moet ik 2 toeren/naalden recht breien voor de eerste ribbel. Maar dan ..... Ga ik dan meteen al terug naar 9 steken of gaat dat geleidelijker. Als ik op de tekening kijk lijkt het of ik elke ribbel een steek zou moeten minderen??? En dat ca 6 ribbels??
09.03.2021 - 12:59DROPS Design answered:
Dag Anouk,
Je breit als het ware verkorte toeren. Dus je breit eerst 13 steken (dus over alle steken van de kraag heen en weer). Dan brei je 9 steken, keer je het werk en brei je 9 steken terug. Zo brei je steeds afwisselend alle steken en alleen de 9 steken , dus je herhaalt steeds wat tussen de sterretjes staat.
09.03.2021 - 21:13Barbara wrote:
Buongiorno, avrei bisogno di alcune informazioni: - quantità di filato per una taglia 54-56 (XXXL - XXXXL)? - quantità di maglie per la suddetta taglia? - se ho solo dei ferri non circolari, i cambiamenti nella lavorazione quali sono? - se ho già la lana, ma non è Drop? Ringrazio anticipatamente, cordialmente saluto.
31.12.2020 - 19:32DROPS Design answered:
Buonasera Barbara, purtroppo in questa sede non possiamo fornirle un'assistenza così personalizzata, ma può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
01.01.2021 - 22:02Bjarney Halldórsdóttir wrote:
Það er prentvilla í prjónfestunni í íslensku útgáfunni. Stendur að 8 lykkjur og 1 umferð!!! séu 10x10 cm
06.12.2020 - 10:52Catherine wrote:
Bonjour, J'ai déjà Drops Melody et je voudrais combiner un autre fil pour tricoter ce modèle avec des grosses aiguilles 12. Quel fil me conseillez-vous d'ajouter? Merci d'avance
06.10.2020 - 09:18DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, 1 fil D (Melody) peut remplacer 1 fil C + 1 fil A (cf alternatives), vous pouvez ainsi conserver au choix Brushed ou Alpaca Bouclé ou bien remplacer une de ces 2 là par 2 fils du groupe A (pour remplacer 1 fil du groupe C). Consultez également notre convertisseur pour voir des alternatives, votre magasin saura également vous conseiller si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
06.10.2020 - 11:28JAULIN Nadia wrote:
Bonjour, Serait-il possible de me préciser les augmentations de la manche en taille S. Je ne comprends pas combien de rangs je dois faire. Merci de votre retour.
26.08.2020 - 16:57DROPS Design answered:
Bonjour Mme Jaulin, la phrase a été reformulée correctement, merci pour votre retour. En taille S, vous augmentez 1 maille au début du rang à 15 cm et 1 maille en fin de rang à 30 cm = vous augmentez 2 mailles au total, une fois à droite et une fois à gauche (vu sur l'endroit). Bon tricot!
27.08.2020 - 09:18Liliana wrote:
Las medidas de los diagramas son centímetros o puntos a montar en la aguja? The measurements in the diagrams are centimeters or points to mount on the needle? Thank you very much!
06.06.2020 - 23:39DROPS Design answered:
Hola Liliana. Los números en el diagrama bajo el patrón son cm.
07.06.2020 - 21:35Claudia Pedroso wrote:
Done!! Now my sister wants me to make her in blues! ;)
20.05.2020 - 23:23
Transitions Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel, DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað með sjalkraga og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. SLÉTTPRJÓN MEÐ RÖNGUNA ÚT: Prjónið brugðið frá réttu og slétt frá röngu. MÆLING: Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja á því. Öll mæling á lengdina er gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð við notkun. ÚTAUKNING (á við um hliðar á ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð, er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir). Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjón hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Síðan er stykkið saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 42-46-50-54-58-62 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan SLÉTTPRJÓN MEÐ RÖNGUNA ÚT og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útaukning að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm – sjá MÆLING, fellið af 2-3-3-4-4-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 38-40-44-46-50-52 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 60-63-65-67-69-71 cm, fellið af miðju 6-6-6-8-8-8 lykkjur fyrir hálsmái og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 15-16-18-18-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan sléttprjón með rönguna út og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 2-3-3-4-4-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 28-29-31-32-34-35 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af 15-16-18-18-20-21 lykkjur fyrir öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 13-13-13-14-14-14 lykkjur sem eftir eru í umferð fyrir kraga. Prjónið síðan kraga eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI KRAGI: = 13-13-13-14-14-14 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjóni 12. Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur við miðju að framan * , prjónið frá *-* alls ca 6-6-6-8-8-8 sinnum (kraginn á að mælast ca 8-8-8-9-9-9 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst). Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 30-32-34-36-38-40 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan sléttprjón með rönguna út og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 2-3-3-4-4-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 28-29-31-32-34-35 lykkjur. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 15-16-18-18-20-21 lykkjur fyrir öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 13-13-13-14-14-14 lykkjur sem eftir eru í umferð fyrir kraga. Prjónið síðan kraga eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KRAGI: = 13-13-13-14-14-14 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjóni 12. Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur við miðju að framan * , prjónið frá *-* alls ca 6-6-6-8-8-8 sinnum (kraginn á að mælast ca 8-8-8-9-9-9 cm lengst inn þar sem stykkið er minnst). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 16-18-18-20-20-20 lykkjur á hringprjón 9 með 1 þræði Fabel, 1 þræði Brushed Alpaca Silk og 2 þráðum Alpaca Bouclé (= 4 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Alpaca Bouclé og prjónið afgang af ermi með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 12 og prjóni næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið síðustu lykkjuna í garðaprjóni = 24-27-27-30-30-30 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með rönguna út og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppsláttur frá fyrri umferð er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Þegar stykkið mælist 15-15-15-15-14-10 cm, aukið út eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING: STÆRÐ XS, M, XL og XXL: Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 15-15-14-10 cm millibili alls 2-2-2-3 sinnum í hvorri hlið = 28-31-34-36 lykkjur. STÆRÐ S og L: Aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð (þ.e.a.s. ekki í hvorri hlið). Endurtakið útaukningu í lok umferð þegar stykkið mælist 30-30 cm = 29-32 lykkjur. Eftir alla útaukningu eru 28-29-31-32-34-36 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-41-39-38-37 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið áfram þar til ermin mælist 0-1-1-2-2-3 cm frá prjónamerki. Nú eru felldar af 5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 4 næstu umferðum = 8-9-11-12-14-16 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 46-46-45-44-43-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botn á handveg – prjónamerkin sem voru sett í eiga að passa við hlið á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 20 til 25 cm í hvorri hlið (= klauf). Saumið kragann niður mitt að aftan með lykkjuspori, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Liz Blaine wrote:
Please ignore my last question - I have just watched the video for short rows and think I understand it
24.01.2023 - 04:14