Ingrid skrifaði:
Syns mønsteret er vanskelig å forstå. Skal jeg vekselvis strikke natur og brunt fra halsen og ned?
01.04.2022 - 19:58DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, ja du strikker 4 striper og første stripe strikker du således: 1.STRIPE: Strikk * 1 omgang med sjokolade, 1 omgang med natur *, strikk fra *-* i 18-18-19-19-20-20 cm totalt (dvs målt fra oppleggskant). God fornøjelse!
04.04.2022 - 11:26
Michael Harish skrifaði:
I prefer to knit with 2 needles starting from the bottom each piece separately. Is it possible to send me a pattern for this technique. It is hard to teach an old dog new tricks. Lol
31.03.2022 - 11:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Harish, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but this lesson might help you adjusting the pattern. Happy knitting!
31.03.2022 - 11:55
Inger-Lise Hansen skrifaði:
Hvilket garn kan jeg bytte ut Drops fabel med? Når jeg forsøkte å finne ut dette via garnkalkulatoren, fikk jeg ikke opp noen alternativer.
25.03.2022 - 10:41DROPS Design svaraði:
Hej Inger-Lise. Du kan byta ut det mot ett annat garn i garngrupp A, se översikt över våra garngrupper här. Se bara till att få rätt stickfasthet och att beräkna riktig garnåtgång. Mvh DROPS Design
25.03.2022 - 13:15
Lesley Campbell skrifaði:
I am knitting this sweater would like help because you change colour on every round in the same place each time I am having trouble joining rows together. Because you don’t knit across it is open and cannot make it a neat join Would be grateful for your help Lesley
12.03.2022 - 11:48
Tonnie Vuijk Noorland skrifaði:
Ik kom niet uit het stukje toevoeging van markeerdraden. Begrijp ik het goed dat er 17 markeerdraden komen?
17.02.2022 - 17:32DROPS Design svaraði:
Dag Tonnie,
Er komen inderdaad 17 markeerdraden in (althans in maat S en maat M).
18.02.2022 - 14:38
Inger Sletten skrifaði:
Hvorfor er ermelengden kortest på den største størrelsen? 29 cm på S og 23 cm på XXXL
15.02.2022 - 16:27DROPS Design svaraði:
Hej Inger, det er fordi skulderpartiet / bærestykket er bredere i de større størrelser :)
16.02.2022 - 08:59
Ellen Weber Carlsen skrifaði:
Hvordan sætter man mærke i (og ikke OM!) en maske? Det skal man i opskriften til Watercolour Sky, og jeg forstår ikke, hvordan man gør det.
26.12.2021 - 18:37DROPS Design svaraði:
Hei Ellen. Du setter et merke, enten en maskemarkør eller en tråd i masken / gjennom masken / om masken. Du skal markere den masken slik at du vet når det skal økes, så skal det økes på hver side av den masken som er markert. mvh DROPS Design
04.01.2022 - 11:39
Gitte Matthiesen skrifaði:
Str S
29.10.2021 - 08:50DROPS Design svaraði:
Hej igen Gitte, i størrelse S strikker du således: 7r (1 markør i den midterste), 7r (1 markør i den midterste) 7r (1 markør.... ) således gør du i alt 17 gange - 17x7=119 masker :)
29.10.2021 - 11:15
Gitte Matthiesen skrifaði:
Hej jeg forstår ikke hvordan man fordeler markørerne til udtagning på bærestykket
28.10.2021 - 16:09DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, hvilken størrelse?
29.10.2021 - 08:09
Anne-Britt Eide skrifaði:
Hei. Jeg bare lurer på, på diagrammet står det noen mål. Det målet som går midt på genseren; 44, 46, 50 etc, er det overvidden på genseren eller mål under brystene?
13.08.2021 - 17:32DROPS Design svaraði:
Hei Anne-Britt, Det er overvidden på genseren. Hilsen Drops Team.
16.08.2021 - 09:03
Watercolour Sky#watercolourskysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið 4 rendur þannig: Stillið af að hver rönd endi með litnum natur og byrji með litnum. RÖND 1: Prjónið * 1 umferð með súkkulaði, 1 umferð með natur *, prjónið frá *-* í 18-18-19-19-20-20 cm alls (þ.e.a.s. mælt frá uppfitjunarkanti). RÖND 2: Prjónið * 1 umferð með þokumistur, 1 umferð með natur *, prjónið frá *-* í 13-13-13-14-14-14 cm. RÖND 3: Prjónið * 1 umferð með lavender, 1 umferð með natur *, prjónið frá *-* í 13-13-13-14-14-14 cm. RÖND 4: Prjónið * 1 umferð með bleikur draumur, 1 umferð með natur *, prjónið frá *-* til loka. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um berustykki): Öll útaukning er gerð í umferð með litnum natur. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan (þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð með súkkulaði). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð í litnum natur, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 15-20-24-28-24-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 119-128-136-144-144-140 lykkjur. Prjónið 2 umferðir. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú prjónamerki í lykkjur í næstu umferð með litnum súkkulaði þannig: Prjónið * 3 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju og prjónið hana slétt, 3-4-4-4-4-3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* (= 17-16-17-18-18-20 sinnum á breiddina). Nú á að auka út lykkjur hvoru megin við lykkjur með prjónamerki. Í næstu umferð með litnum natur er aukið út um 1 lykkju á undan hverri lykkju með prjónamerki (= 17-16-17-18-18-20 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 12-13-14-15-17-17 sinnum, en nú er aukið út til skiptis á undan og á eftir lykkju með prjónamerki = 323-336-374-414-450-480 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá merkiþræði mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-49-54-59-66-71 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-70-79-89-93-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 93-98-108-118-132-142 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-70-79-89-93-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og endið með 47-49-54-59-66-71 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 203-212-232-252-280-300 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja undir ermi í hvorri hlið (= í hliðarnar á fram- og bakstykki). Nú eru 102-106-116-126-140-150 lykkjur á bakstykki og 101-106-116-126-140-150 lykkjur á framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í röndum og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 6 sinnum = 227-236-256-276-304-324 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 1-0-0-0-0-0 lykkjur = 228-236-256-276-304-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið svona þar til stroffið mælist 3 cm, stillið af þannig að síðasta umferðir sé prjónuð með litnum natur. Fellið af með sléttum lykkjum með litnum bleikur draumur – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 68-70-79-89-93-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-78-87-97-101-106 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli 8 lykkja undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við það. Prjónið síðan í sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 3-3-1-1-4-2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 9-9-12-16-17-19 sinnum = 58-60-63-65-67-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og aukið út 2-0-1-3-1-0 lykkjur = 60-60-64-68-68-68 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð með litnum natur, fellið af með litnum bleikur draumur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #watercolourskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.