Marie skrifaði:
Toller Pullover....ich würde ihnam liebsten sofort anfangen zu stricken
13.01.2020 - 17:34
Betina Kauer skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:52
Gudrun Seebacher skrifaði:
Wunderschön! Den möchte ich mir gerne stricken.
16.12.2019 - 05:54
Linda skrifaði:
Wunderschön! Tolles Muster!
12.12.2019 - 17:36
Voute Céleste skrifaði:
Belle maille fantaisie aérée
10.12.2019 - 18:22
Cloud Dancer#clouddancersweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri á berustykki og ¾ löngum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 54. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 54. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð 53. og 54. hver lykkja lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-65-65-70-75-85 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12-13-13-14-15-17 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 72-78-78-84-90-102 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið A.2 hringinn (= 12-13-13-14-15-17 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 216-234-260-280-300-340 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-17-19-19-19-19 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið síðan A.3 hringinn þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál (í XS er A.3 einungis prjónað ef stykkið mælist minna en 17 cm þegar A.2 hefur verið prjónað til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 220-236-260-276-304-332 lykkjur (í XS, S og XL aukið út 4-2-4 lykkjur jafnt yfir, í M aukið/fækkið ekki um neinar lykkjur, í L og XXL er fækkað um 4-8 lykkjur jafnt yfir) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 220-236-260-276-304-332 lykkjur. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 32-35-39-41-45-50 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-48-52-56-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 64-70-78-82-90-100 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-56-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 32-35-39-41-45-50 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-168-180-196-216 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 70-76-84-90-98-108 lykkjur á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 152-164-180-192-208-228 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 160-172-190-202-218-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-52-56-62-66 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-58-64-70-74 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 29-28-27-25-23-20 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 33-32-31-29-27-24 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #clouddancersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.