Tender Thoughts#tenderthoughtssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og lykkjum sem færast til. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 26. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 26. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð 25. og 26. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 248-264-280-312-344-376 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 13 cm í öllum stærðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú byrjar tilfærslan á lykkjum á framstykki og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið og prjónamerkið situr mitt á milli 2 lykkja brugðið), * prjónið næstu 31-35-35-43-47-55 lykkjur eins og áður, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið næstu 14-14-18-18-22-22 lykkjur eins og áður, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, prjónið næstu 14-14-18-18-22-22 lykkjur eins og áður, A.3 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið næstu 31-35-35-43-47-55 lykkjur eins og áður, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið og prjónamerkið situr mitt á milli 2 lykkja brugðið) *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð, fram að fyrsta prjónamerki. Nú er 1 prjónamerki í hvorri hlið á stykki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fram- og bakstykki skiptist fyrir framstykki og bakstykki. Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur við miðju að framan og miðju að aftan á framstykki og bakstykki (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og það hefur fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (= alls 4 lykkjur færri í umferð). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur tilfærslan áfram af þeim 14-14-18-18-22-22 lykkjum við hvora hlið í annarri hverri umferð (eins og útskýrt er í mynsturteikningu) þar til fækkað hefur verið alls 32-36-36-36-40-44 sinnum á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 2-2-2-6-6-6 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður (tilfærslan heldur áfram eins og áður) yfir næstu 120-128-136-144-160-176 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 4-4-4-12-12-12 lykkjur (= 2-2-2-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið mynstur eins og áður (tilfærslan heldur áfram eins og áður) yfir næstu 120-128-136-144-160-176 lykkjur (= framstykki), fellið af síðustu 2-2-2-6-6-6 lykkjur. Klippið frá. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 120-128-136-144-160-176 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri, 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og tilfærsla á lykkjum eins og áður, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-2 sinnum = 100-108-116-116-132-140 lykkjur. Þegar öll affelling fyrir handveg og tilfærslur á lykkjum hefur verið gert til loka eru 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með stroff og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 36-36-36-40-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 30-34-38-36-44-48 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 120-128-136-144-160-176 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur, 1 kantlykkja garðaprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af í handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig: Fellið af 4 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-2 sinnum = 100-108-116-116-132-140 lykkjur. Þegar allar affellingar fyrir handveg og tilfærslur á lykkjum hefur verið gert til loka eru 2 lykkjur slétt innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 41-42-44-45-47-49 cm, setjið miðju 16-16-16-20-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 30-34-38-36-44-48 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 52-52-56-56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 50-52-58-58-62-66 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 11-9-8-9-9-6 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-17-17-19-19-20 sinnum = 82-86-92-96-100-106 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-43-41-40-38 cm, fellið af 4-4-4-12-12-12 lykkjur mitt undir ermi (= 2-2-2-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 78-82-88-84-88-94 lykkjur. Prjónið nú ermakúpu fram og til baka í sléttprjóni og fellið af lykkjur í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 4-5-6-4-5-5 sinnum, 1 lykkja 4-3-1-9-7-7 sinnum, 2 lykkjur 4-4-5-2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni = 26-28-30-30-30-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-53-52-52-51-50 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið ofan á öxl með stuttan hringprjón 3 og Baby Merino og prjónið upp frá réttu 104-124 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tenderthoughtssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.