Leaf Piles |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli, köðlum og mynsturáferð. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-10 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. TILFÆRSLA Á LYKKJUM: Öll úrtaka/útaukning er gerð frá réttu! Tilfærsla á lykkjum til vinstri er gerð þannig: Prjónið fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Tilfærsla á lykkjum til hægri er gerð þannig: Prjónið fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur A.1/A.3 V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið fram að A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið A.4. Aukið út eftir A.5 þannig: Prjónið A.5, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur A.3/A.1. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. HÆGRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 27-29-31-33-35-39 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig: A.1 yfir 2-2-2-4-4-4 lykkjur, A.2 (= 9 lykkjur), A.3 yfir 12-14-16-16-18-22 lykkjur og endið með A.4 (= 4 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu = 33-35-37-39-41-45 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur (sjá stjörnu í A.2), jafnframt færist kaðallinn til og aukið er út fyrir V-hálsmáli þannig: TILFÆRSLA Á LYKKJUM: Í næstu umferð færist kaðallinn til um 1 lykkju til vinstri – sjá TILFÆRSLA Á LYKKJUM. Færið lykkjurnar til í annarri hverri umferð alls 11-13-13-12-15-19 sinnum, í 4. hverri umferð alls 2-2-4-5-4-5 sinnum, í 8. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-3 sinnum og síðan í 16. hverri umferð alls 2-2-1-1-1-1 sinnum (= alls 18-20-22-22-24-28 lykkjur sem færast til mitt að framan). V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju að hálsmáli – sjá V-HÁLSMÁL. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-4-3-7-6-5 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 1-2-3-1-2-3 sinnum (= alls 6-6-6-8-8-8 lykkjur fleiri fyrir hálsmáli). Þegar útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, eru 39-41-43-47-49-53 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm – endið frá réttu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl. VINSTRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 27-29-31-33-35-39 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig: A.5 (= 4 lykkjur) A.1 yfir 12-14-16-16-18-22 lykkjur, A.2 (= 9 lykkjur) og endið með A.3 yfir 2-2-2-4-4-4 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu = 33-35-37-39-41-45 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur (sjá stjörnu í A.2), jafnframt færist kaðallinn til eins og á hægri öxl fram, en til hægri í stað vinstri. Aukið er út fyrir V-hálsmáli alveg á sama hátt og á hægri öxl, en innan við A.5 í stað A.4. Þegar útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið eru 39-41-43-47-49-53 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm – endið á sömu umferð í mynstri og á hægri öxl (frá réttu). FRAMSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá röngu á vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= miðju lykkja), prjónið næstu umferð frá röngu á hægri öxl = 79-83-87-95-99-107 lykkjur. Mynstur og tilfærsla á lykkjum á báðum köðlum halda áfram eins og áður, en miðju 7 lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur A.3/A.1. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 83-87-91-103-107-115 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1/A.3. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað A.6 (= 15 lykkjur) yfir A.2, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 71-75-79-91-95-103 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff þannig – frá réttu: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff svona í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 27-29-31-33-35-39 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig: A.1 yfir 2-2-2-4-4-4 lykkjur, A.2 (= 9 lykkjur), A.3 yfir 12-14-16-16-18-22 lykkjur og endið með A.4 (= 4 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu = 33-35-37-39-41-45 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur (sjá stjörnu í A.2), jafnframt færist kaðallinn til alveg eins og á hægri öxl fram og þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar (frá réttu) fyrir hálsmáli = 34-36-38-40-42-46 lykkjur í umferð – endið frá réttu. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl. HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 27-29-31-33-35-39 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð þannig: A.5 (= 4 lykkjur) A.1 yfir 12-14-16-16-18-22 lykkjur, A.2 (= 9 lykkjur) og endið með A.3 yfir 2-2-2-4-4-4 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu = 33-35-37-39-41-45 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur (sjá stjörnu í A.2), jafnframt færist kaðallinn til eins og á vinstri öxl aftan og þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp 1 lykkju í lok næstu umferðar (frá röngu) fyrir hálsmáli = 34-36-38-40-42-46 lykkjur í umferð – endið í sömu umferð í mynstri og á vinstri öxl (frá réttu). BAKSTYKKI: Prjónið næstu umferð frá röngu á hægri öxl eins og áður, fitjið upp 11-11-11-15-15-15 lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli, prjónið næstu umferð frá röngu á vinstri öxl = 79-83-87-95-99-107 lykkjur. Mynstur og tilfærsla á báðum köðlunum heldur áfram, en yfir miðju 17-17-17-21-21-21 lykkjurnar eru prjónaðar 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þessar lykkjur inn í mynstur A.3/A.1. Tilfærsla á báðum köðlunum heldur áfram eins og áður og miðju lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur A.3/A.1, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 og A.2 eins og áður, prjónið A.3 fram að 1 lykkju á undan A.2, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.1, A.2 og A.3 eins og áður. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferðar fyrir handveg = 83-87-91-103-107-115 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1/A.3. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað A.6 (= 15 lykkjur) yfir A.2, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 71-75-79-91-95-103 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff þannig – frá réttu: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff svona í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Fitjið upp 45-47-49-53-55-57 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 1-2-2-3-3-3 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja hvar á að sauma ermina við fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-3½-3½-3½ cm millibili alls 8-8-8-10-10-10 sinnum = 29-31-33-33-35-37 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-43-42-41-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni = 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 49-48-47-46-46-44 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsaumana – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið ermasauma – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur – saumið neðan frá og upp að prjónamerki (ca 1-2-2-3-3-3 cm) efst án sauma (sá hluti sem ekki hefur verið saumaður saman efst á að sauma við botn á handveg á fram- og bakstykki). Saumi ermar í og saumið botninn á handveg. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Madeleine Beaumier wrote:
J'ai fait ce chandail en simplifiant le patron pour ne pas avoir de couture. J'ai continuer en rond au niveau des emmanchures et relevé les mailles pour les manches. Il serait judicieux de faire tester vos patrons avant de publier. C'est pas toujours clair comme explication et il y a souvent des erreurs
24.04.2023 - 18:28DROPS Design answered:
Bonjour Mme Beaumier, nos modèles sont relus et vérifiés de nombreuses fois mais parfois des erreurs peuvent encore nous échapper, si vous en voyez, n'hésitez surtout pas à nous les indiquer, ainsi nous pourrons vérifier ensemble et faire les corrections nécessaires si besoin. Merci pour votre aide. Bon tricot!
25.04.2023 - 08:49Celine Francoeur wrote:
Bonjour j'aimerais tricoter ce modèle avec un seul fil. Possible? si oui, je calcule la moitié de la quantité? est-ce que je conserve le même nombre de mailles? si je veux changer de fil, suggestion ? Merci
23.11.2020 - 14:57DROPS Design answered:
Bonjour Mme Francoeur, vous trouverez plus d'infos sur les alternatives ici - en l'occurrence, vous pourriez remplacer 2 fils Sky (groupe B) par 1 fil Melody (groupe D), mais le résultat serait naturellement différent car les laines sont différentes. Votre magasin DROPS saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
23.11.2020 - 16:23Celine Francoeur wrote:
Question: le patron demande de monter des mailles et de tricoter avec deux fils - un rang envers sur l’envers. L’utilisation de deux fils est juste pour ce rang n’est-ce pas?
22.11.2020 - 18:58DROPS Design answered:
Bonjour Celine! Tout le pull est tricoté avec 2 fils DROPS Sky. Bon tricot!
22.11.2020 - 19:41Rieke wrote:
Ich glaube, ich stehe auf dem Schlauch: die Anleitung ist für einen Pulli, der von oben nach unten gestrickt wird. Das Foto zeigt aber doch einen Pulli, der von unten (Bund) nach oben (Schultern) gestrickt wurde. Die rechte Masche im Strukturmuster sähe von oben nach unten gestrickt auch komisch aus. Gibt es die Anleitung auch zum Foto passend von unten nach oben?
23.05.2020 - 23:14DROPS Design answered:
Liebe Frau Rieke, unser Design Team sicher wählt das Modell von oben nach unten zu schreiben, denn diese Technik wird am meisten gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2020 - 12:31Marie wrote:
Bonjour, je ne comprends pas le 1er décalage! Dois je commencer à décaler vers la gauche, avant le rang endroit (celui de la torsade) et le 2ème décalage 2 rangs après? Merci d'avance pour votre réponse
01.03.2020 - 09:38DROPS Design answered:
Bonjour Marie, vous décalez A.2 (épaule droite, devant) vers la gauche = le décalage se fait sur l'endroit - Le décalage ne se fait pas au même rythme que la torsade - vous décalez d'abord tous les 2 rangs (= tous les rangs sur l'endroit) puis tous les 4 rangs (= tous les 2 rangs sur l'endroit), tous les 8 rangs (= tous les 4 rangs sur l'endroit) et tous les 16 rangs (= tous les 8 rangs sur l'endroit). Pour décaler, faites 1 jeté avant A.2, tricotez A.2 et diminuez 1 m après A.2. Bon tricot!
02.03.2020 - 10:30Paola wrote:
è un modello bellissimo, ma alla voce SPOSTAMENTO mi sembra che ci sia un errore: sia alla seconda sia alla sesta riga si spiega come spostare a sinistra, ma la seconda spiegazione dovrebbe essere lo spostamento a destra, vero? grazie e complimenti
18.12.2019 - 20:12DROPS Design answered:
Buongiorno Paola. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
19.12.2019 - 09:24Pilar wrote:
Cuando salen los patrones que faltan? Espero que este salga pronto es muy bonito!!
20.10.2019 - 17:49Lesley wrote:
Another to the knit list
17.08.2019 - 01:48Bullermor wrote:
Dejlig bluse, men tror jeg undlader snorningerne.
19.06.2019 - 23:41Ellis wrote:
Little challenge, quick and easy for young thin people. haven't seen 1 pattern for men?!
09.06.2019 - 20:25