Tender Memories |
|
|
|
Prjónuð peysa í klukkuprjóni úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með lykkjum sem færast til og tvöföldum kraga í hálsi. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN (fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kantlykkjum í garðaprjóni (= 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d.22) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út í sléttri lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á ermi þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 2 lykkjur fleiri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 2 lykkjur fleiri), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út alls 4 lykkjur í umferð. Prjónið síðan útauknar lykkjur inn í klukkuprjóns mynstur, en í fyrstu umferð (frá röngu) er enginn uppsláttur í klukkuprjóni á milli útaukna lykkja. Lykkjan sem á að prjónast saman með uppslætti er því prjónuð án uppsláttar. TILFÆRSLA Á LYKKJUM. Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki. Prjónið 3 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið næstu 8 lykkjur eins og áður, prjónamerkið situr hér, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= brugðin lykkja) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju í sömu lykkju (= 3 lykkjur, þ.e.a.s. 2 lykkjur fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= brugðin lykkja) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur, þ.e.a.s. 2 lykkjur fleiri), prjónamerkið situr hér, prjónið næstu 8 lykkjurnar, lyftið uppslættinum og næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjuna (+ uppslætti) yfir (= 2 lykkjur færri), prjónið út umferð. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur við hvora hlið á stykki og auknar hafa verið út 4 lykkjur á milli prjónamerkja við miðju framan á framstykki. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur, en í fyrstu umferð (frá röngu) er enginn klukkuprjóns uppsláttur á milli útaukna lykkja. Lykkjan sem á að prjónast saman við uppsláttinn er því prjónuð án uppsláttar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og það er prjónað í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Það eru prjónaðar tilfærslur á lykkjum á framstykki og ermum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kragi í hring á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-109-115-125-137-145 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið lykkjum í 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 22-24-26-28-32-32 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 81-85-89-97-105-113 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 77-81-81-89-93-101 lykkjur. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið miðju 19-19-19-19-23-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur = 27-29-29-33-33-37 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm (17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg), prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkju sem tilheyrir) og aukið jafnframt út 6-6-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 33-35-35-40-40-45 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu svo að það verði garðaprjón á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 103-109-115-125-137-145 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð,1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 22-24-26-28-32-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 81-85-89-97-105-113 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú klukkuprjón alveg eins og á bakstykki. Haldið áfram þar til stykkið mælist 23 cm í öllum stærðum – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Setjið 2 prjónamerki í stykkið hvoru megin við miðju 9 lykkjur í umferð (= 36-38-40-44-48-52 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Nú á að vera 1 lykkja brugðið í klukkuprjóns mynstri eftir fyrsta prjónamerki í umferð og 1 lykkja brugðið í klukkuprjóns mynstri á undan hinu prjónamerkinu í umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónuð TILFÆRSLA Á LYKKJUM – sjá útskýringu að ofan. Færið lykkjurnar til að hvorri hlið í 8. hverri umferð (= 4 klukkuprjóns lykkjur á hæðina) 10-11-11-14-15-19 sinnum, síðan í 12. hverri umferð (= 6 klukkuprjóns lykkjur á hæðina) 2 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 77-81-81-89-93-101 lykkjur. Haldið áfram með klukkuprjón, tilfærslu á lykkjum og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-54-56-57-59 cm setjið miðju 15-15-15-15-19-19 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 27-29-29-33-33-37 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm (17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg) – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður slétt saman við lykkju sem tilheyrir og aukið jafnframt út 6-6-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 33-35-35-40-40-45 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu þannig að það verði garðaprjón á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 43-43-47-47-51-51 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 41-41-45-45-49-49 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú klukkuprjón á sama hátt og á bakstykki og framstykki. Lesið allan kaflann áður er prjónað er áfram. Þegar stykkið mælist 7 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar útaukning í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 14-9-13-8-11-7 cm millibili alls 3-4-3-4-3-4 sinnum = 53-57-57-61-61-65 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið 2 prjónamerki í stykkið hvoru megin við miðju 5 lykkjur á ermi. Nú á að vera 1 lykkja brugðið í klukkuprjóns mynstri á eftir fyrsta prjónamerki í umferð og 1 lykkja brugðið í klukkuprjóns mynstri á undan hinu prjónamerkinu í umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið nú TILFÆRSLA Á LYKKJUM – sjá útskýringu að ofan. Færið lykkjurnar til að hvorri hlið í 8. hverri umferð (= 4 klukkuprjóns lykkjur á hæðina) 4 sinnum í öllum stærðum. Þegar tilfærslan á lykkjum hefur verið gerð til loka, prjónið klukkuprjón til loka. Þegar ermin mælist alls 45-45-44-42-40-38 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Það á að nota prjónamerkin síðar í frágang á stykkinu. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-46-47-45-44-42 cm. Fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. Prjónamerkin sem voru sett í hvora hlið á ermum eiga að mæta kantlykkju í garðaprjóni undir handveg á fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með hringprjón 4 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 80 til 96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði á framstykki). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjum. Brjótið uppá kant í hálsmáli þannig að hann liggi tvöfaldur og saumið niður með smáu spori. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Barb Barraclough skrifaði:
Like the diagonal lines of the front...with the ribbing I think this will be a very flattering look.
07.06.2019 - 20:13