DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moraine

Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni með háum kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-29
DROPS Design: Mynstur ee-673
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
800-850-950-1050-1150-1250 g litur 84, páfuglablár

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 18 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN (fram og til baka):
UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslátt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 3 (rétta): 1 lykkja garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð í 3. umferð í mynstri (= frá réttu).
Aukið er út til skiptis í hvorri hlið á ermi. Þ.e.a.s. í lykkju á eftir kantlykkju í byrjun á umferð og í lykkju á undan kantlykkju í lok umferðar.
Prjónið 3 lykkjur í lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í klukkuprjóns mynstur, en í fyrstu umferð (frá röngu) er ekki klukkuprjóns uppsláttur á milli útaukna lykkja. Lykkjan sem prjóna á saman með uppslætti er því prjónuð án uppsláttar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum og saumuð saman í lokin. Kraginn er prjónaður í hring á hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 55-61-64-70-76-82 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar fyrsta umferð hefur verið prjónuð til loka hefur fækkað um 18-20-21-23-25-27 lykkjur = 37-41-43-47-51-55 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-43-43-44-45 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir handveg). Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið fyrstu 14-16-16-18-20-22 lykkjur (= öxl), fellið af næstu 9-9-11-11-11-11 lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja, prjónið 14-16-16-18-20-22 lykkjur sem eftir eru (= öxl). Prjónið síðan axlirnar til loka hvora fyrir sig. Prjónið klukkuprjón eins og áður, en nú eru prjónaðar 2 lykkjur garðaprjón við háls. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-61-64-70-76-82 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið klukkuprjón alveg eins og á bakstykki. Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð til loka, hefur fækkað um 18-20-21-23-25-27 lykkjur = 37-41-43-47-51-55 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 40-41-43-43-44-45 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir handveg). Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið fyrstu 14-16-16-18-20-22 lykkjur (= öxl), prjónið næstu 9-9-11-11-11-11 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið 14-16-16-18-20-22 þær lykkjur sem eftir eru (= öxl). Prjónið síðan axlirnar til loka hvora fyrir sig. Prjónið klukkuprjón eins og áður, en nú eru prjónaðar 2 lykkjur garðaprjón við háls. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMAR:
Fitjið upp 40-40-40-43-43-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 12 með Snow. Prjónið klukkuprjón. Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð til loka, hefur fækkað um 13-13-13-14-14-15 lykkjur = 27-27-27-29-29-31 lykkjur. Haldið áfram með umferð 2 og 3 í klukkuprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í fyrstu lykkju eftir kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð (séð frá réttu) – sjá ÚTAUKNING = 29-29-29-31-31-33 lykkjur. Haldið áfram í mismunandi stærðum eins og útskýrt er að neðan.

Stærð S:
Útaukning í stærð S er nú lokið. Haldið áfram frá Allar stærðir að neðan.

Stærð M, L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram með útaukningu í annarri hvorri hlið á stykki með ca 15-15-15-13-13 cm millibili alls 2-2-2-3-3 sinnum (= alls 4-4-4-6-6 lykkjur fleiri) = 31-31-33-35-37 lykkjur í umferð.

Allar stærðir:
Haldið áfram í klukkuprjón þar til ermin mælist 48-46-46-44-42-40 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki á milli 2 prjónamerkja sem sett var í hliðar fyrir handveg. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum.

KRAGI:
Kraginn er prjónaður í hring á hringprjón. Prjónið upp 36-44 lykkjur frá réttu í kringum hálsinn (meðtaldar 9-9-11-11-11-11 lykkjur af þræði) á hringprjón 12. Prjónið klukkuprjón hringinn – stillið af að klukkuprjóns mynstrið passi yfir 9-9-11-11-11-11 lykkjur sem settar voru á þráð fyrir hálsmáli:
UMFERÐ 1 * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt (yfir 9-9-11-11-11-11 lykkjur af þræði er uppslátturinn og óprjónaða lykkjan prjónað slétt saman) *, prjónið *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kraginn mælist ca 16 cm. Fellið af. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er uppslátturinn felldur af eins og eigin lykkja (uppslátturinn er felldur af brugðið og lykkjurnar eru felldar af slétt). Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Manon wrote:

Bonjour, du coup si je tricote les 9 mailles en attente comme avant, il faut que je regarde bien avec le 1er tour que ça ne me gêne pas car lors de ce dernier on tricoté plus 2 mailles ensemble mais seulement une.

05.08.2023 - 13:07

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, lorsque vous aviez mis les mailles en attente, vous deviez avoir aussi vos mailles glissées avec des jetés et les mailles sans jeté, tricotez le 1er tour comme indiqué sous le col en veillant à bien tricoter les mailles en attente (1 jeté, glissez 1 m à l'env, tricotez ensemble à l'endroit le jeté et la maille glissée). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter des côtes anglaises en rond, peut-être que cette vidéo pourra vous aider. Bon tricot!

07.08.2023 - 09:41

country flag Manon wrote:

Bonjour, j'ai encore une question sur l'encolure. Au niveau des 9 mailles en attente comment faire les cotes anglaises ? Par quoi faut-il commencer ? Merci

31.07.2023 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, ces 9 mailles en côtes anglaises doivent être tricotées comme avant, autrement dit, tout dépend de comment vous devez tricoter la première de ces 9 mailles, calculez comment commencer le 1er tour pour que les côtes anglaises continuent sans transition. Bon tricot!

01.08.2023 - 08:59

country flag Manon wrote:

Au niveau de l'encolure/col, le premier tour commence avant ou après les 9 mailles du devant ? Merci

30.07.2023 - 15:29

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, commencez à relever les mailles du col soit au milieu dos, soit au niveau de l'une des deux épaules. Bon tricot!

31.07.2023 - 11:27

country flag Manon wrote:

Bonjour, Combien de mailles faut-il relever au niveau du col pour une taille S ? Merci

30.07.2023 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, vous relevez environ 27 mailles autour de l'encolure et tricotez les 9 mailles du devant en attente = vous devez avoir environ 36 mailles (ajustez en fonction de votre tension si besoin, mais gardez bien un nombre pair de mailles). Bon tricot!

31.07.2023 - 11:26

country flag Tascha Andersen wrote:

Hej.. Hvor slår jeg om 1 gang i omgang 1 ?? Før de ni masker på tråden eller efter ????? Hilsen Tascha

04.04.2022 - 19:15

DROPS Design answered:

Hej Tascha, du kan gøre det at du starter med de 9 masker foran "som du kender" og så fortsætter du patenten hele vejen rundt som du har gjort igennem hele blusen.

05.04.2022 - 08:22

country flag Tascha Andersen wrote:

Hej.. Kan ikke få patenten til at passe i halsen efter udtagning af masker. Har nu reduceret maskeantallet til 27 m (str S) som i skrev + de 9 = 36 men ved omgang 3 går det galt igen .. Starter jeg forkert eller ?? Hvor skal der startes ? Efter eller før de ni masker på tråden , altså hvor slår jeg om og tar løst af 1 gang i omgang 1 ?? Hilsen Tascha

15.03.2022 - 13:17

DROPS Design answered:

Hej Tascha, Hvis du har taget ud/ind over de midterste masker i halsen, vil patenten ikke gå op som på billedet. Enten tager du ikke ud over de midterste masker eller så laver du en synlig overgang, så patenten i halsen bliver uafhængig af forstykket. God fornøjelse!

30.03.2022 - 14:23

country flag Tascha Andersen wrote:

Jeg kan simpelthen ikke få patentmønsteret til at passe når jeg har taget de 36 masker ud som jeg skal bruge til min str S oppe i halsen. Det passer fint hen over de 9 masker fra tråden foran som er lagt oven i de 36 som så gir 45 men efter de 9 masker går det heeelt galt 😩 Hvad gør jeg forkert ? Har prøvet at starte FØR de 9 masker og EFTER. Hvor starter jeg patenten henne på min rundpind ? Hilsen Tascha

08.03.2022 - 11:06

DROPS Design answered:

Hei Tascha. Det skal strikkes opp 36 masker inkludert de 9 maskene fra tråden (ikke + de 9 maskene fra tråden). Så når du har strikkes de 9 maskene fra tråden har du 27 masker det skal strikkes opp, 9+27=36 masker rundt halsen. mvh DROPS Design

14.03.2022 - 10:17

country flag Helle Madum wrote:

Jeg kan ikke få maskeantallet til at passe efter 1 række helt i starten af opskriften... Hvordan gør jeg, har læst det tyske svar, I har givet samme spørgsmål... Hvordan skal rækken strikkes, så der bliver taget ind fra 76 masker til 55 masker... Har aldrig før har svært ved jeres opskrifter.

03.02.2022 - 22:52

DROPS Design answered:

Hei Mette. Strikker du str. XXL eller XXXL? Om du strikker str. XXL legger du opp 76 masker og feller 25 masker på 1. pinne skal du ha 51 masker, mens i str. XXXL legger du opp 82 masker og feller 27 masker = 55 masker. Husk når du strikker 1. pinne på Helpatent skal ikke kastet til patentmasken (masken du løfter løst av pinnen som om den skulle strikkes vrang) telles som en egen maske (kastet tilhører patentmasken). mvh DROPS Design

07.02.2022 - 11:59

country flag Nina Visang wrote:

Ich verstehe die Anleitung für den Kragen leider nicht. Wo beginnt der Kragen? An der Seite der 11 stillgelegten Machen? Ich habe riesige Löcher bei den neu aufgenommenen Maschen und das Muster passt irgendwie nicht. Auch das Stricken mit der Rundnadel geht überhaupt nicht. Das muss doch mit einem Nadelspiel gemacht werden.Das sieht total blöd aus!

14.10.2021 - 17:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Visang, Sie können bei einer Schulter oder hinten in der Mitte von Halsausschnitt/Rückenteil anfangen, Maschenanzahl passen Sie so an, daß das Muster wie zuvor über die mittleren 11 Maschen gestrickt wird. Um Löcher zu vermeiden, können Sie ein Extra Faden zwischen 2 Maschen auffasssen und diese Faden verschränkt mit der nächsten Maschen stricken. Mit der 80 Nadel können Sie Magic Loop stricken. Viel Spaß beim stricken!

15.10.2021 - 07:37

country flag Nina Visang wrote:

Meine Maschenprobe passt leider nicht. Bei Nadel 12 passt die Breite aber die Länge ist zuviel. Bei Nadel 10 bin ich zu schmal und die Länge ist auch zuviel!

18.09.2021 - 14:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Visang, sollten Sie die richtige Breite hier haben, dann können Sie die Anleitung so folgen, bei den Erklärungen wird es in der Höhe in cm (und nicht in Reihen) gemessen, beachten Sie nur, die benötige Garnmenge unterschiedlich sein könnte (hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

20.09.2021 - 10:47