Jette Pedersen skrifaði:
Str L En ret en vrang, - det mønster kan jo ikke lade sig gøre, når bagstykket er ulig antal .Højre forstykke slutter med vrang og ryg starter og slutter med ret så skal venstre jo starte med vrang hvis det skal stemme.
05.04.2020 - 00:03DROPS Design svaraði:
Hej Jette, hele jakken skal strikkes skiftevis ret og vrang i bredden, og det som er vigtigt er at mønsteret kan fortsætte når stykkerne bliver sat sammen. God fornøjelse!
21.04.2020 - 11:32
Maria Adela skrifaði:
El modelo ahora aparece con número 65- 17, gracias. Antes estaban las dos fotos en el mismo modelo
18.03.2020 - 23:07
María Adela skrifaði:
Las indicaciones d l modelo 207 31 no son las de la foto. Yo compré hace tiempo para la foto de 207 31 y ahora no tengo el patrón. Podrían corregirlo.? Sale otro modelo verde y no el matizado azul que se ve al principio
18.03.2020 - 15:53DROPS Design svaraði:
Hola Maria Adela. ¿Puedes especificar el número del diseño que viene bajo la foto? 207-31 es una chaqueta de color verde con transición.
18.03.2020 - 18:33
Maura Porrati skrifaði:
Vorrei realizzare questo modello con Drops Nepal rigio scuro (colore 0506) di cui ho acquistato 800 g, Che filato posso aggiungere per arrivare allo spessore necessario e quanto ne devo acquistare? Vorrei mantenere il colore grigio scuro, preferibilmente non troppo peloso. Grazie!
08.12.2019 - 09:48DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maura. Per un aiuto sulla scelta dei filati, le suggeriamo di contattare il suo rivenditore Drops di fiducia che saprà consigliarla al meglio. Buon lavoro!
09.12.2019 - 16:15
Mani skrifaði:
Danke für die Antwort! Wie steht es um den zweiten Teil meiner Frage: Wenn ich A4 die Reihe durchstricke, habe ich einen Maschenversatz zwischen Rückenteil und dem zweiten Vorderteil und da es eine ungerade Maschenzahl ist, stimmt es auch zum Schluss nicht (letzte Masche wäre rechts und in der 2. Reihe würde ich wieder mit rechts beginnen...—> um im Muster zu bleiben, müsste ich mit linker Masche enden und mit rechter Masche beginnen und andersherum)? LG
02.12.2019 - 11:05DROPS Design svaraði:
Liebe Mani, unser Design Team wird die Anleitung noch mal schauen. Danke im voraus für Ihren Geduld.
02.12.2019 - 13:15
Mani skrifaði:
Ich stricke die Jacke in Gr. L und habe beide Vorderteile und das Rückenteil bis zum Ende der Seitenschlitze (18cm) gestrickt. Nun habe ich die 3 Teile auf der Nadel um den Rumpfteil zu stricken, in Gr. L sind nun 157 Maschen auf der Nadel. Da in der Größe A3 null mal gestrickt werden soll, wird also alles in A4 gestrickt!? Dann gibt es einen Maschenversatz zwischen Rückenteil (ungerade Maschenzahl) und einem Vorderteil, A4 durchgängig stricken nicht möglich!?
30.11.2019 - 21:44DROPS Design svaraði:
Liebe Mani, ja genau, in Gr. L stricken Sie A.4 die ganze Reihe (= bis zur Ende der Reihe), in diese Grösse wird A.3 nicht gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
02.12.2019 - 09:53
Sophia Vasiliadou skrifaði:
Where is the diagram A1-A4.?
05.11.2019 - 07:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vasiliadou, thanks for your feedback, we add them asap. Happy knitting!
05.11.2019 - 09:10
Judith skrifaði:
Sieht super gemütlich aus!
03.10.2019 - 19:58
Lina skrifaði:
Perfekt grundmodell!
16.07.2019 - 09:21
Marion skrifaði:
Sehr schöne Länge. Mit Knöpfen zum Schließen würde es mir noch besser gefallen.
11.06.2019 - 09:41
Moss Print Jacket#mossprintjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Big Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í tvöföldu perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-31 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju en sleppið ekki þessari lykkju af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið nú aðra lykkju í lykkjuna, en þessi lykkja er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 2 lykkjur fleiri. Prjónið síðan nýjar lykkjur í perluprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru framstykki og bakstykki prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, síðan fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 63-69-73-79-87-93 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, síðan er endurtekið A.2 (= 2 lykkjur) út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin. Geymið stykkið og prjónið framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-39-42-45-50-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan þannig: Endurtakið A.2 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 0-1-0-1-0-1 lykkja, prjónið A.3 (= 1 lykkja) 0-1-0-1-0-1 sinni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir bakstykki og síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-39-42-45-50-53 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja) alls 0-1-0-1-0-1 sinnum, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 18 cm – stillið af eftir bakstykki og síðustu umferð í mynstri, er klaufin tilbúin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið framstykkin og bakstykkið á sama hringprjón 8 (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu í öllum stykkjunum, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður) = 135-147-157-169-187-199 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja) alls 0-1-0-1-0-1 sinni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 0-1-0-1-0-1 lykkja, prjónið A.3 (= 1 lykkja) 0-1-0-1-0-1 sinni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 61-62-63-64-65-66 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 34-37-40-41-44-47 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 4-4-4-8-12-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 59-65-69-71-75-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 4-4-4-8-12-12 lykkjur fyrir handveg og prjónið 34-37-40-41-44-47 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 59-65-69-71-75-81 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm fellið af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 24-27-28-29-30-33 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 34-37-40-41-44-47 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Fellið af fyrstu 24-27-28-29-30-33 lykkjur fyrir öxl í næstu umferð frá röng – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur = 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir sjalkraga. SJALKRAGI: Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með byrjun frá miðju að framan: * Prjónið 2 umferðir yfir fyrstu 8-8-10-10-10-10 lykkjur, 2 umferðir yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8-8 cm þar sem það er styst (mælt næst öxl). Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34-37-40-41-44-47 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Fellið af fyrstu 24-27-28-29-30-33 lykkjur fyrir öxl í næstu umferð frá réttu – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur = 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir sjalkraga. Prjónið sjalkraga alveg eins og á hægra framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Fitjið upp 33-33-35-37-39-39 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Big Delight + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi), látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið A.3 (= 1 lykkja). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 13-9½-9½-7½-7-5½ cm millibili alls 4-5-5-6-6-7 sinnum = 41-43-45-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-48-49-47-44-42 cm. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2-2-2-3-5-5 cm (þessa 2-2-2-3-5-5 cm á að sauma við lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-50-51-50-49-47 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan og passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar kraginn er brotinn niður. Saumið sjalkragann við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í (affellingarkant) og saumið hliðar á ermi við botninn á handveg – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossprintjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.