DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24
DROPS 207-30
DROPS Design: Mynstur de-203
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 16, grænn/blár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 19, dökk grænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.
12 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓN FRAM- OG BAKSTYKKI (í hring á hringprjón):
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓNS LYKKJA:
Þegar lykkjur eru taldar er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN ERMI (fram og til baka á prjóni):
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2: 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjóns mynstrið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar fram- og til baka á hringprjón. Síðan eru ermar og fram- og bakstykki settar á sama hringprjón og berustykkið er síðan prjónað í hring upp að hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-135-150-165-180-195 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Kid-Silk og 1 þræði Delight. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið stroff hringinn þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn þar til stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Í næstu umferð er prjónað og lykkjum fækkað þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 96-108-120-132-144-156 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið síðan hringinn í klukkuprjóni – sjá KLUKKUPRJÓN FRAM OG BAKSTYKKI í útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 36-37-38-39-40-41 cm – ATH: Endið með 3. umferð í klukkuprjóns mynstri. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, 1 prjónamerki eftir 48-54-60-66-72-78 lykkjur (umferð byrjar í hlið). ATH: Uppslátturinn er ekki talinn sem 1 lykkja – sjá KLUKKUPRJÓNS LYKKJA í útskýringu að ofan. Í næstu umferð (= 2. umferð í klukkuprjóns mynstri) fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg = 42-48-54-58-64-70 lykkjur á framstykki og bakstykki. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið laust upp 28-30-30-32-32-34 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Kid-Silk og 1 þræði Delight. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið fram og til baka þannig:
Fyrsta umferð (= ranga) er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið síðan í klukkuprjóni – sjá KLUKKUPRJÓN ERMI í útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – SJÁ ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili þar til aukið hefur verið alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 42-41-41-40-39-39 cm, fellið nú af lykkjur í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-2-3-4-4 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 26-28-32-32-32-34 lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-42-41-40-40 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 6 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 136-152-172-180-192-208 lykkjur. Prjónið síðan hringinn í klukkuprjóni. Prjónið þar til berustykki mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð stroff með 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem hann tilheyrir).
Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: * 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið í aftari lykkjubogann), 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina = 68-76-86-90-96-104 lykkjur. Prjónið stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið/kantur í hálsmáli mælist 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá kant í hási saman tvöfalt og saumið niður að innan verðu, saumið lykkju fyrir lykkju og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma meðfram neðri hlið á ermi innan við kantlykkju. Saumið lykkjur sem felldar voru af neðan á ermi við lykkjur sem felldar voru af í hlið á fram- og bakstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Willow

Karina, Poland

Winter Willow

xSx, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Esther wrote:

Ik kom delight garen tekort. Maat L met 5 bollen van elk en ik ben net begonnen met het boord en ben er nu al doorheen.

18.09.2023 - 21:11

country flag Esther wrote:

Hallo, is het mogelijk om de mouwen ook rond te breien net als het lijf? Dit lijkt mij eenvoudiger. Is it possible to knit the sleeves in the round as well? That seems easier to me.

09.08.2023 - 10:59

DROPS Design answered:

Dag Esther,

Ja, dat zou kunnen, maar houd er wel rekening mee dat eens stukje van de bovenkant van de onderarmnaad tegen het pand wordt genaaid. Dat stukje moet dus open blijven.

10.08.2023 - 20:50

country flag Janne Jakobsen wrote:

Jeg strikker ikke, men skal kjøpe garn til en av deres oppskrifter som en venn skal strikke for meg. Hvordan i all verden vet jeg om jeg bør ha medium eller large, og hvor mye garn det utgjør i forhold til en small? Siden dere spesifiserer garn og pinner, kan dere ikke bare estimere antall nøster per størrelse også? Da kan til og med en som meg kjøpe garn. Eller står det en plass i oppskriften som jeg bare ikke forstår?

12.06.2023 - 09:28

DROPS Design answered:

Hei Janne. Garnmengden til de ulike størrelsene står helt øverst i oppskriften. Denne genseren er skrevet til 6 størrelser (STØRRELSE: S - M - L - XL - XXL – XXXL) og under materialer leser du hvilket garn som er brukt og hvor mange gram det trengs i de ulike størrelsene. Det første taller er til str. S, det andre tallet er til str. M osv. Mål til genseren ser du på målskissen, som du finner nederst på oppskriften. I f.eks str. S er bredden 40 cm x 2 (omkrestsen er 80 cm). Du kan også klikke på Tips&Hjelp - LEKSJONER - Les en oppskrift. Og så klikke deg inn på: Hvordan følge en DROPS oppskrift og/eller: Slik leser du en målskisse. mvh DROPS Design

12.06.2023 - 13:46

country flag Jeannie Juul Nielsen wrote:

Jeg kam se at dette garn i denne farve er udgået. Jeg har fået fortalt at hele garntypen udgår. Hvilket alternativ kam jeg vælge, når jeg er helt vild med netop denne farve.?

22.04.2023 - 07:45

DROPS Design answered:

Hei Jeannie. Ta en titt på DROPS Fabel. Ikke helt det samme garnet / fargenyanser, men DROPS Fabel har tre garnvarianter som gir plagget forskjellige resultater: uni colour, som er ensfarget; print, der varierte farger repeteres regelmessig og long print, lik som print men med lengre repetisjoner av hver farge. Men husk å sjekke at du får den oppgitte strikkefastheten. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 14:05

country flag Marianne wrote:

Bonjour, Je viens de terminer ce pull mais je suis un peu déçue. je trouve que les manches ne sont pas assez larges et je trouve que les explications pour faire l’empiècement manque de précisions. Le devant et le dos sont tricotés en circulaire mais les manches en aller/retour. Une précision pour reprendre l'ensemble n'est pas assez précise. Vos vidéos ne donnent pas d'explications pour un tricot en mailles anglaises.

01.03.2023 - 13:47

country flag Anna wrote:

Hallo, ich würde diesen wunderbaren Pulli gern stricken, leider ist die Wolle Delight Fr. 16 nirgendwo zu bekommen. Besteht die Hoffnung, dass sie wieder lieferbar ist. LG

04.02.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Liebe Anna, diese Farbe ist nicht mehr im Sortimen, aber einzelne Händler könnten sie nocht vorrätig haben, gerne können Sie sie mal fragen - sonnst benutzen Sie unseren Garnumrechner um Alternative dafür zu finden, Ihr DROPS Händler wird Ihnen gerne damit helfen,die besten passenden Farben zu finden. Viel Spaß beim stricken!

06.02.2023 - 09:31

country flag Busi wrote:

Beautiful is it possible to knit this pattern with the machine

03.06.2022 - 11:57

country flag Alicia wrote:

Hola! gracias de antemano por estar ahí!! ¿Este patrón podría realizarlo con sólo una hebra de Drops Baby Merino?? O tendría que hacer algún ajuste? Me equivoqué al pedir las lanas y no me di cuenta que era A+A o C y sólo pedí la Baby Merino....vaya fallo.. quería hacer un jersei todo en punto ingles cómo este, gracias

09.03.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Hola Alicia, tienes que agregar DROPS Kid-Silk a DROPS Baby Merino (2 hilos) or trabajar con 2 hilos de DROPS Baby Merino para obtener una muestra adecuada. Saludos!

10.03.2022 - 09:08

country flag Jill Sandersson wrote:

Jag får inte till patentstickningen på ärmen enligt beskrivningen i mönstret. Det blir inte samma patent som fram och bakstycket. Är det ett fel i mönstret. Mvh Jill S

09.02.2022 - 13:13

DROPS Design answered:

Hej Jill, jo det er samme patent-mønster, men det ene strikkes rundt og det andet frem og tilbage :)

11.02.2022 - 13:11

country flag Myriam wrote:

Merci pour votre réponse. Mais je ne comprends toujours pas pour les manches de la taille M: les 20 mailles à monter souplement au départ et les 34 mailles à mettre en attente au bout de 42 cm, me paraissent trop petits en largeur pour une manche, par rapport à mon échantillon qui tombe comme le vôtre (16m x22rg=10x10cm). Merci pour les explications

06.12.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, vous pouvez modifier le nombre de mailles des manches s'il ne vous convient pas, en taille M vous montez 30 mailles et tricotez en côtes 1/1 puis continuez en côtes anglaises en augmentant 2 x 2 mailles = 34 mailles (soit environ 21 cm de circonférence), vous rabattrez ensuite 3 m au début des 2 derniers rangs = il reste 28 mailles pour la manche. Les mailles rabattues des manches seront cousues aux mailles rabattues pour les emmanchures dos/devant à la fin de l'empiècement. Est-ce que ceci peut vous aider?

07.12.2021 - 07:19