DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 33-14

#pinkpetalshat

DROPS Design: Mynstur bm-110-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/3 - 6/12 -18/24 mánaða
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/56 – 62/80 – 86/92
Höfuðmál: Ca 40/44 – 44/46 – 46/50 cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 26, ljós bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 42 umferðir á hæð með blaðamynstri og 26 lykkjur á breidd og 51 umferð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm eða 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón eða sokkaprjóna frá miðju að aftan.
Fitjið upp 7-8-9 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Byrjið frá röngu og prjónið A.1 fram og til baka (= 7-8-9 mynstureiningar með A.1). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 77-88-99 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9-10-11 cm frá prjónamerki, fellið af með picot kanti eins og útskýrt er að neðan.

AFFELLING MEÐ PICOT:
Fellið af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, (* stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjón, þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar þannig að það verða 3 nýjar lykkjur á vinstra prjóni. ** Prjónið fyrstu lykkjuna á vinstri prjón slétt, lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjón yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð **), prjónið frá **-** alls 5 sinnum. Endurtakið frá (-) meðfram öllum kantinum þar til 1 lykkja er eftir á vinstri prjón. Klippið frá og dragið í gegnum síðustu lykkjuna.

FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman mitt að aftan meðfram A.1 – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur og haldið áfram með sauminn ca 2 cm meðfram garðaprjóni. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Prjónið fram og til baka með 2 sokkaprjónum nr 2,5. Prjónið upp 4 lykkjur í annarri hlið á affellingarkanti.
Prjónið 4 lykkjur slétt, * snúið ekki stykkinu, en færið lykkjurnar til yfir á hina hliðina á prjóninum, færið þráðinn aftan við 4 lykkjurnar, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt aftur frá réttu *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 22-24-26 cm, fellið af og festið enda. Prjónið hina snúruna alveg eins í hinni hliðinni á affellingarkantinum.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, svo að það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, svo að það myndist gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, svo að ekki myndist gat
prjónið 2 lykkjur slétt saman = prjónið 2 lykkjur slétt saman
takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Diagram for DROPS Baby 33-14
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Strickliesel skrifaði:

Hallo, wie kommt man auf die Endzahlen? Die Strickschrift-Skizze ist einfach unmöglich abzuarbeiten. Meine Endzahl ist nun 102 Maschen, obwohl es ja laut Ihrer Beschreibung nur 77 sein dürfen. Für mich ist dieses Ergebnis einfach nur ganz schlimm!! Diese viele verschwendete Zeit. Sehr schade!

02.03.2025 - 08:25

DROPS Design svaraði:

Liebe Strickliesel, in A.1 wird man Maschen zuerst zunehmen dann abnehmen, so beginnt A.1 mit 1 Masche und endet mit 11 Maschen, A.1 wird in die 1. Größe 7 Mal gestrickt = 7 Maschen angeschlagen, 7 x 11 Maschen nach A.1 = 77 Maschen. Setzen Sie z.B. Markierer zwischen jedem A.1 ein, das kann Ihnen helfen zu schauen, ob Sie jeweils die richtige Maschenanzahl in jedem A.1 bei jeder Reihe haben. Viel Spaß beim Stricken!

03.03.2025 - 09:52

country flag REINE MARIE skrifaði:

Bonjour ,je viens vous remercier de vos explications qui m'ont été utiles ,j'ai réussi ce merveilleux petit béguin que j'aime beaucoup mais je ne l'ai pas entierement fini puisque j'en suis au point mousse ,.Merci encore de votre aide .Je vous souhaite un bon weekend .

28.02.2025 - 16:37

country flag REINE MARIE skrifaði:

Bonsoir ,je ne comprend pas j'ai bien réussi le dessin du diagramme mais je n ai que 34 rangs et le dessin est bien fait mais petit ,j ai tricoté avec Baby Mérinos et aiguille numéro 2,5.pouvez vous me dire comment faire ,me conseiller .Je vous remercie à l'avance .Bonne soirée .

27.02.2025 - 23:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Reine Marie, le diagramme fait ici 25 rangs en hauteur seulement, quand il est terminé, tricotez toutes les mailles au point mousse jusqu'à la hauteur indiquée pour la taille choisie. Pensez à bien vérifier votre échantillon et à garder la même tension: 51 rangs point mousse = 10 cm. Bon tricot!

28.02.2025 - 09:54

country flag REINE MARIE skrifaði:

C'est dommage que vous n'ayez pas une vidéo juste pour débuter l'ouvrage cela m'aurait bien aidée pour les premiers rangs à placer mes mailles ,bon je ne suis pas jeune mais je vais essayer sinon il me plait tellement ce petit bonnet .Merci encore

27.02.2025 - 18:23

country flag REINE MARIE skrifaði:

Un grand merci de votre bonne explication car je ne comprenais pas trop le début de plus que le diagramme se lit que sur l 'endroit , je voulais savoir aussi si les jetés font partis des augmentations ? je pense et j'espère que je vais réussir ce magnifique petit bonnet(béguin) pour ma future petite fille qui naîtra dans trois mois .Merci encore de votre réponse (je fais la plus petite taille . Bonne soirée à toute l'équipe de drops

27.02.2025 - 18:09

DROPS Design svaraði:

Bonjour Reine Marie, le diagramme se tricote en allers et retours, ainsi, sur l'endroit, vous le lisez de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. Les jetés vont être tricotés soit torse (pour éviter un trou = ovale noir), soit dans le brin avant (ovale blanc, pour le point ajouré). Ils forment au début les augmentations, puis le point ajouré quand on diminue en même temps que l'on fait des jetés, puis on va diminuer plus que l'on va faire de jetés. Suivez juste bien le nombre de mailles dans chaque diagramme, mettez éventuellement un marqueur entre chaque motif pour mieux vous repérer. Bon tricot!

28.02.2025 - 09:21

country flag REINE MARIE skrifaði:

Bonjour ,ce petit béguin est très joli ,mais voilà je ne comprend pas du tout le début se commence t'il par le haut au dessus de la tête :car je commence par le diagramme mais j'aimerai savoir car en bas il y a 2 pointes sur le dessin .Comment dois commencer? Merci de votre réponse

27.02.2025 - 16:03

DROPS Design svaraði:

Bonjour Reine Marie, on commence par tricoter la fleur = le dos du bonnet en tricotant 7 à 9 fois A.1 en allers et retours, puis quand A.1 est terminé, on tricote au point mousse (la partie qui va du bas d'un côté jusqu'au bas de l'autre côté en passant par-dessus la tête. Les mailles rabattues avec picot se trouvent au niveau de l'ouverture, elles encadrent le visage. Vous faites ensuite la couture au milieu dos pour "fermer" les mailles de A.1 et terminer l'arrière du bonnet (prolongez la couture sur 2 cm après A.1). Bon tricot!

27.02.2025 - 17:07

country flag Charlotte skrifaði:

MEGET kringlet formuleret opskrift - især om Picolukning. Huen er yndig, selv med mindre egne fortolkninger...

22.02.2025 - 11:03

country flag Zehetleitner Sylvia skrifaði:

Die Anleitung funktioniert in meinen Augen tatsächlich nur, wenn man von vorne herein gleich in der Runde arbeitet . Erspart Missverständnisse beim Lesen der Anleitung, gleichzeitig ist die Mütze nahtlos. Die beschriebene Variante mit Hin. und Rückreihen ist schon sehr speziell und nicht sehr praktisch. LG aus Wien

30.01.2025 - 16:21

country flag Rosa skrifaði:

Non ho capito l'inizio della foglia dove inserire l'aumento sare molto grsts se mi date la spiegazione per realizzare il cappellino chr mi piace molto grazie

28.12.2024 - 18:26

DROPS Design svaraði:

Buonasera Rosa, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!

30.12.2024 - 00:17

country flag Silvia skrifaði:

Gibt es von diesem Muster auch eine kostenlose Anleitung für ein Babypulover? Danke

05.09.2024 - 15:29

DROPS Design svaraði:

Liebe Silvia, es gibt dazu nur eine Anleitung für die Jacke, die finden Sie hier, sonnst finden Sie alle Pullover für Baby hier. Viel Spaß beim Stricken!

06.09.2024 - 08:13