DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Candy Bar Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Air, Nepal eða Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og laskalínu. Stærð 1 – 10 ára.

DROPS Children 34-24

#candybarjacket

DROPS Design: Mynstur ai-016-bn
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(12/18 mánaða) – 2 – 3/4 – 5/6 – 7/8 – 9/10 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(80/86) - 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
(50)-50-50-50-50-100 gr litur nr 20, bleikur
(50)-50-50-50-50-100 gr litur nr 08, ljós bleikur
(50)-50-50-100-100-100 gr litur nr 22, gulur
(50)-100-100-100-100-100 gr litur nr 27, sægrænn

Eða notið:
DROPS NEPAL / PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
(50)-50-50-100-100-100 gr litur nr 8909, kórall / 38, hindber
(100)-100-100-100-100-150 gr litur nr 3720, millibleikur / 59, bleikfjólublár
(100)-100-100-100-150-150 gr litur nr 2923, gulur / 41, sinnep
(100)-100-150-150-150-150 gr litur nr 7120, ljós grágrænn / 62, sægrænn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 33 umferðir á hæð með garðaprjóni og 17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kant í hálsmáli og stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (bleikur) NR 617: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Rendur eru prjónaðar í öllu stykkinu þannig:
Prjónið (10½)-11-12-13-14-15 cm með litnum bleikur, (8½)- 9-10-11-12-13 cm með litnum gulur og (8½)- 9-10-11-12-13 cm með litnum sægrænn. Prjónið síðan stykkið til loka með litnum ljós bleikur.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 5)-5-5-6-6-6 með ca (5)-5½-6-6½-7 cm millibili.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 47 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 1,1.
Í þessu dæmi er aukið út næstum því á eftir hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp (47)-53-55-57-61-61 lykkjur á hringprjón 4 með Air – allt stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón, en fyrsta HNAPPAGATIÐ er gert eftir ca 1 cm – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Í næstu umferð er aukið út um (40)-42-42-44-48-50 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = (87)-95-97-101-109-111 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (3)-3-3-3-3-3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er aukið út jafnt yfir (36)-38-38-40-46-48 lykkjur = (123)-133-135-141-155-159 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (7)-7-7-7-7-7 cm. Í næstu umferð er aukið út um 30-32-38-40-42-42 lykkjur jafnt yfir = (153)-165-173-181-197-201 lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (11)-11-12-12-13-13 cm – munið eftir röndum.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig:
Setjið 1 prjónamerki eftir (25)-26-27-28-30-31 lykkjur (= framstykki), setjið næsta prjónamerki eftir (31)-35-37-39-43-43 lykkjur (= ermi), setjið næsta prjónamerki eftir (41)-43-45-47-51-53 lykkjur (= bakstykki) og setjið síðasta prjónamerki eftir (31)-35-37-39-43-43 lykkjur (= ermi). Nú eru 25-26-27-28-30-31 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki).
Prjónið síðan í sléttprjóni (ystu 5 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka) og í fyrstu umferð frá réttu á að auka út lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri í hverri útaukningu). Aukið nú út í hverri umferð frá réttu alls (2)-3-3-4-4-5 sinnum = (169)-189-197-213-229-241 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist (13)-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Berustykkið skiptist nú fyrir fram og bakstykki og ermar þannig: Prjónið (27)-29-30-32-34-36 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu (35)-41-43-47-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (45)-49-51-55-59-63 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu (35)-41-43-47-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær (27)-29-30-32-34-36 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (111)-119-123-131-139-147 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni (kantar að framan í garðaprjóni) og rendur eins og áður þar til stykkið mælist (12)-14-16-19-22-25 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið kanta að framan í garðaprjóni og prjónið stroff með 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca (30)-33-36-40-44-48 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið (35)-41-43-47-51-53 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (41)-47-49-53-57-59 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6 lykkjur undir ermi, þetta verður byrjun á umferð. Prjónið í hring í sléttprjóni og rendur þar til stykkið mælist ca (12)-16-21-24-27-31 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca (4)-4-4-4-5-5 cm að loka máli).
Í næstu umferð er fækkað um (13)-17-17-21-23-25 lykkjur jafnt yfir í umferð = (28)-30-32-32-34-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist ca (4)-4-4-4-5-5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2020
ERMI:..Í næstu umferð er fækkað um (13)-17-17-21-23-25 lykkjur jafnt yfir í umferð = (28)-30-32-32-34-34 lykkjur.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Children 34-24

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Hej Se Nedenstående Kommentar skrifaði:

Jeg har købt Drops Air garn hos jer og har strikket en trøje til mit barnebarn pige 9 år. Jeg har meget garn i overskud, har I en opskrift på en hue og luffer (vanter) i dette garn , pinde 5?. Med venlig hilsen Rise Skovsgaard 20627499

14.02.2025 - 18:05

DROPS Design svaraði:

Hej Rise, ja det har vi Tilbehør i DROPS Air

18.02.2025 - 10:42

country flag Marjolein Roosen skrifaði:

My next step is dividing the work. Now i have to make 32 stitches (left front piece), and then put the next 47 stitches on a thread. So do the first 32 stitches stay on the needle? And do i stitch the next 47 stitches (sleeve) before i put them on a thread? How and where should i start these six new stitches? And where will i leave them afterwards?

09.09.2024 - 13:08

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Roosen, yes work the first 32 sts and keep them on needle, slip the next 47 sts on a thread and cast on 6 sts, then work the 55 sts for back piece, slip the next 47 sts on a thread for 2nd sleeve and cast on 6 sts then work the last 32 sts on needle for front piece. Find also these steps in this lesson, from picture 9) - applies to a jumper but the technique will be the same for a jacket. Happy knitting!

10.09.2024 - 08:50

country flag Martina skrifaði:

Hallo, ich habe eine Frage zum Anschlag der Passe: Zu Beginn sollen 61 Maschen angeschlagen werden. Im Originalgarn mit einer Maschenprobe von 17M pro 10cm entspricht dies einer Breite von ca. 36 cm (35,88 cm). Im Schaubild sind aber für die Hälfte 15 cm angegeben - wird der Anschlag mit 61 M dann nicht zu weit? Oder ist hier die Mehrweite für die Knopfleiste berücksichtigt, die (weil überlappend) im Schaubild nicht sichtbar ist? Danke vorab!

19.07.2024 - 14:48

DROPS Design svaraði:

Liebe Martina, ja, zum einen überlappt die Knopfleiste, zum anderen wird der Beginn der Passe mit der dünneren Nadel gestrickt, dadurch wird der Halsausschnitt auch noch ein wenig enger im Vergleich zu dem, was Sie mit der genannten Maschenprobe errechnet haben. Erst nach 3 Krausrippen wird dann ja zur dickeren Nadel gewechselt. Viel Spaß beim Stricken!

23.07.2024 - 01:01

country flag Marjolein Roosen skrifaði:

Hello, I would love to create this for my daughter. A visual aide helps me often to better understand the pattern. Sometimes you have video lessons of a whole sweater, socks or cardigans. Is there a video lesson of a similar vest?

08.07.2024 - 11:51

DROPS Design svaraði:

Hi Marjolein, there is not a video for this whole pattern. In each pattern you will find the list of video and lessons to help you. If you have any questions when making the cardigan, please feel free to leave a question in the comment section at the bottom of the page, we will answer you as soon as possible. Happy knitting!

13.07.2024 - 14:28

country flag Marie-Claude FARGEON skrifaði:

Bonjour, Je ne comprends pas bien ce qu'il faut faire au moment où l'on divise l'empiècement entre devant, dos et manches. Les 6 nouvelles mailles montées avant ou après les manches ( leur emplacement ne me semble par ailleurs pas symétrique par rapport au dos dans vos explications... ) se tricotent ensuite avec quelle partie? Merci pour les précisions que vous pourrez m'apporter! Marie-Claude

13.02.2024 - 20:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Fargeon, si votre nombre de mailles est juste à la fin de l'empiècement, les 6 mailles doivent être symétriques, sous chaque manche. Retrouvez dans cette leçon comment on procède à partir de la division: à partir de la photo 9). Bon tricot!

14.02.2024 - 08:07

country flag Patty Walk skrifaði:

On the yoke section of this sweater, in size 9-10 the directions say to increase to 241 stitches using raglan increase. Then it says to continue working until the piece measures 7 inches from the marker. What marker? And where do you measure the 7 inches from? Thank you for your time.

23.01.2024 - 08:32

DROPS Design svaraði:

Hi Patty, You should have inserted a marker after the 3 ridges at the top of the yoke (as you change to needle size 5 mm). This is where you measure from and it should be 7 cm not 7 inches. You then increase again and work until the piece measures (11)-11-12-12-13-13 cm, before inserting 4 new markers. Hope this helps and happy knitting!

24.01.2024 - 07:03

country flag Cathie Calagna skrifaði:

Greetings! Could you tell me how wide the pink stripe above the sleeve ribbing should be for size 9/10? Thank you!

21.01.2024 - 07:25

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Calagna, you should have approx. 25 cm light pink over rib (neck edge 2 cm + yoke 13 cm pink + 5 cm yellow on yoke then 8 cm yellow on sleeve (13 cm yellow in total) + 13 cm green + 25 cm light pink = 31 cm before ribbing). Happy knitting!

22.01.2024 - 09:17

country flag Cathleen Castaneda skrifaði:

Hello! Can you tell me what method of casting on is used for pattern Children 34-24? Thanks so much!!!

12.01.2024 - 21:13

DROPS Design svaraði:

Dear Cathleen, there is no specific method for casting on. We usually use the continental method; you can see more information on it here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=1&cid=19. Happy knitting!

14.01.2024 - 19:22

country flag Cathleen Castaneda skrifaði:

Hello! Can you tell me what method of casting on is used for pattern Children 34-24? Thanks so much!!!

12.01.2024 - 21:08

DROPS Design svaraði:

Dear Cathleen, there is no specific method for casting on. We usually use the continental method; you can see more information on it here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=1&cid=19. Happy knitting!

14.01.2024 - 19:22

country flag Denise skrifaði:

Est-ce que je peux convertir ce gilet pour une fille de 6 ans ? Combien de mailles et combien de laine ?

19.12.2022 - 17:22