Caroline skrifaði:
Bonjour, je suis arrivée à la fin du corps de mon pull. Je dois faire 3 côtes mousses. Est-ce que je tricote simplement en mousse ou je fais des côtes 1/1? Merci d'avance pour votre réponse ☺️🙏🏻
08.04.2026 - 13:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, le pull se termine ici par 3 côtes mousse, autrement dit, on tricote 3 fois (1 tour endroit, 1 tour envers), si vous voulez tricoter des côtes à la place, pensez à ajuster le nombre de mailles si besoin pour éviter que les côtes ne resserrent le bas du pull (les côtes des manches sont des côtes 2/2). Bon tricot!
09.04.2026 - 10:06
Caroline skrifaði:
Bonjour, je suis à la séparation des manches, je dois monter 8 mailles mais je bloque, je ne comprends pas à quel niveau je dois les monter ni comment faire... Pouvez vous m'aider s'il vous plaît? Merci d'avance 🙏🏻🙏🏻
30.03.2026 - 19:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, regardez la video DROPS ICI a partir de 6 min 50 sec. Bon tricot!
30.03.2026 - 20:52
Johanna skrifaði:
Ich würde mir den Pullover so gern stricken, habe aber Größe XS. Könntet ihr die Anleitung auch für diese Größe schreiben?
29.03.2026 - 15:05DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, hier finden Sie alle unsere Pullover für Größe XS, sicher kann das Ihnen helfen bzw inspirieren. Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2026 - 13:05
Caroline skrifaði:
Bonjour, j'ai oublié de faire mes augmentations de la flèche 5, et j'ai tricoté 19rangs depuis le rang où j'aurais dû les faire. Est-ce que je peux les faire à la fin du jacquard ou je dois absolument défaire ce que j'ai tricoter pour les faire au bon endroit? Merci pour votre réponse
25.03.2026 - 21:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, il vaudrait peut être mieux défaire pour faire ces augmentations à la flèche -5 et ainsi conserver la bonne circonférence au bon endroit, mais si vous voulez en avoir le coeur net, glissez toutes les mailles en attente sur un fil et enfilez le pull, vous pourrez ainsi voir si vous devez plutôt défaire ou bien si vous pouvez faire les augmentations au niveau où vous en êtes. Bon tricot!
26.03.2026 - 09:23
Caroline skrifaði:
Bonjour, sur le diagramme de l'empiècement aux rangs12 à 15 (taille L) il n'y a que 4mailles d'indiquées sur les 6 initiales. Du coup de quelle couleur sont les mailles non indiquées s'il vous plaît? Merci d'avance
19.03.2026 - 10:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, après la flèche 2, on va répéter A.1 sur 4 mailles tout le tour (et plus sur 6 mailles comme avant) - répétez simplement les 4 mailles du diagramme tout le tour, au tour avec la flèche-3 vous augmentez à nouveau et vous répétez de nouveau A.1 sur 6 mailles tout le tour. Bon tricot!
19.03.2026 - 16:19
Pamela skrifaði:
A qué se refiere " A.1A " en el párrafo que explica los aumentos en el canesú? What does " A.1A " means wheres increases are explained? The second A confused me! Thank you.
04.03.2026 - 04:08DROPS Design svaraði:
Hola Pamela, parece que se trata de un error, quiere decir el diagrama A.1, la A sobra.
08.03.2026 - 23:54
Julie Morley skrifaði:
I’m knitting this sweater for someone who wants super wash Is Merino extra fine the best substitute for sky? Thanks
15.10.2024 - 14:15DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Morley, use the yarn converter to find all possible alternatives, if it needs to be a superwash, then Merino Extra Fine, Karisma, Cotton Merino or Fiesta could work - see superwash yarns from yarn group B here. Happy knitting!
15.10.2024 - 16:57
Kerrie Carter skrifaði:
I am not a spammer! Can you post Drop Sky wool to Australia?
19.03.2024 - 21:43DROPS Design svaraði:
Dear Carrie, we cannot ship, but if you search teh stores that carry out yarns, you can find ones that have worldwide shipping ( HERE. I hope this helps. Happy Knitting!
20.03.2024 - 01:12
Kerrie Carter skrifaði:
Why don’t you ship to Australia? I can’t source the wool here or online
19.03.2024 - 04:50DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Carter, please find list of DROPS stores shipping worldwide here. Happy knitting!
19.03.2024 - 11:35
LLP Syl skrifaði:
Merci pour ce beau modèle que j'ai effectué sans difficulté avec votre belle laine toute douce ! Il fait sensation !! Syl
07.03.2024 - 16:57
After Midnight Sweater#aftermidnightsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-27 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós beige og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-95-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 2,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða hægt er að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum karrí. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós beige. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út u m 40-42-44-46-48-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 132-138-144-150-156-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykki er mælt frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn (= 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar með A.1 með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út um lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1! Ör-1: Aukið út um 42-48-48-54-60-60 lykkjur jafnt yfir = 174-186-192-204-216-222 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-32-34-36-37 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 38-42-48-52-52-58 lykkjur jafnt yfir = 212-228-240-256-268-280 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-57-60-64-67-70 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-3: Aukið út um 28-30-36-44-50-50 lykkjur jafnt yfir = 240-258-276-300-318-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-43-46-50-53-55 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-4: Aukið út um 18-24-30-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 258-282-306-330-354-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 43-47-51-55-59-62 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-5: Aukið út um 12-18-18-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 270-300-324-354-378-408 lykkjur (nú er pláss fyrir 45-50-54-59-63-68 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 19-19-19-25-25-25 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið síðan sléttprjón með svartur þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með litnum svartur þannig: Prjónið 40-44-47-52-57-63 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 40-44-47-52-57-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-95-105-115-127 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 54-61-67-72-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-45-48-53-58-64 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-190-206-226-250-274 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 198-214-230-250-274-298 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-61-67-72-74-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-67-75-80-84-87 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-6-7-8-9-8 sinnum = 52-55-61-64-66-71 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-16-13-13-12 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 18-16-17-20-20-20 sinnum = 88-87-95-104-106-111 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 88-87-95-104-104-111 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-1-1-0-0-1 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 44-44-48-52-52-56 lykkjur eftir. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aftermidnightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.