Samia skrifaði:
Bonjour j'ai commencé ce magnifique gilet en taille L, mais au premier rang de l'empiècement à la fin du rang j'ai 3 mailles en plus ! Vous précisez qu'il y a des modifications ou les trouver pour le modèle DROP 205-15 MERCI
16.09.2020 - 14:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Samia, tricotez ainsi: 4 m point mousse, 1 m endroit, A.1a (= 14 m), A.1b (= 2 m), (= devant gauche), 1 m endroit, 1 jeté, 8 m endroit, 1 jeté, 1 m endroit (= manche gauche), A.1c (= 3 m), 2 x A.1a (= 28 m), A.1b (= 2 m), (= dos), 1 m endroit, 1 jeté, 8 m endroit, 1 jeté, 1 m endroit, (= manche droite), A.1c (= 3 m), A.1a ( = 14 m) et 4 m point mousse (devant droit). Vous avez augmenté 2 m pour chaque manche (cf jetés soulignés) + 1 m dans chaque A.1b/A.1c = 8 m au total soit 95+8= 103 m sur l'aiguille. Vous pouvez mettre un marqueur entre chaque diagramme pour bien vérifier votre nombre de mailles à chaque fois. Bon tricot!
16.09.2020 - 14:35
Gro E Hammerstad skrifaði:
Strikker str. XXXL. Når 48 omg i høyden og 49 m på forstykket har jeg IKKE 5 blader langs raglan men 3,5. Hva har jeg gjort feil?
10.08.2020 - 23:02DROPS Design svaraði:
Hej Gro, Strikker du i DROPS Nord og Kid-Silk? Holder du strikkefastheden med 17m x 22pinde på 10x10 cm. Det lyder til at du eventuelt kan strikke lidt løsere... Men hvis du er tilfreds med strukturen, gør det så noget?
19.08.2020 - 12:03
Cho Cho Lwin skrifaði:
Thank you very much for your quick and informative response. Happy with the customer services and quality products. Always Thumbs up for Drops products!!!
30.05.2020 - 08:12
Cho Cho Lwin skrifaði:
Thank you very much for your quick response. I am sorry to have clarification. I am still not very clear. I am working on size L. To start row 49 with the instruction of A.2b (shown 9 stitches in diagram)? But I only have 2 stitches left on each front piece after A.1ax3+4 band stitches. Same for A.2c. I only have only 3 stitches but in the diagram for A.2c, it is shown with 10 stitches. What to do? FYI, I worked with my drops Nord in Golden rod and it is fabulous. I love it. Thank you.
26.05.2020 - 16:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cho Cho Lwin, you will now work A.2c over the first sts from previous A.1c, then repeat the leaf pattern as before, ie finish the first leaf as before (= as in A.1a), then repeat A.1a as before until 9 sts remain and work A.2b. Happy knitting!
26.05.2020 - 16:47
Cho Cho Lwin skrifaði:
Hello , after completing 48 rows of pattern in height in YOKE, how to proceed A2b and A2c? row 49, A1a x3+2 stitches for A2b? how? , Reagan increases, A2c for 3 stitches? how? +A1ax4+2 stitches for A2b?how?+Reagan increases+ A2c for 3 stitches? how?+A1ax3? Please help me. Many thanks for all your hard work.
25.05.2020 - 17:24DROPS Design svaraði:
Dear Cho Cho Lwin, you will work A.2b and A.2c at the transitions to raglan (last st in A.2b and 1st st in A.2c are the 2 raglan sts = last st in A.1b/first st in A.1c) and the sts between A.2b and A.2c will be worked in A.1a as before - just adjust the lace pattern so that the leaf continue. Happy knitting!
26.05.2020 - 08:31
Isabel skrifaði:
Bom dia Continuo com dúvidas na 21ª carreira, se só diminuo junto das orlas (2 vezes) ou como nos esquemas ( mais diminuições), Nas costas quando repetir o A.1a. também faço as estrelas? Obrigada. Isabel
25.02.2020 - 13:16DROPS Design svaraði:
Boa tarde, Já conferimos o diagrama A.1a e só faz as diminuições (representadas pelos símbolos da estrela branca e da estrela peta) antes e deois das orlas da frente. Sendo assim, faz a primeira diminuição depois da orla da frente, não faz nenhuma diminuição cada vez que tricotar o diagrama A.1a ATÉ à última repetição: tricota A.1a e faz a diminuição antes da orla da frente . Bom tricô!
26.02.2020 - 15:13
Isabel skrifaði:
Gostaria de saber como consigo aceder às correções dete modelo. Tenho dúvidas na 21ª carreira, se só diminuo junto das orlas (2 vezes) ou como nos esquemas ( mais diminuições). Obrigada.
22.02.2020 - 20:19DROPS Design svaraði:
As correcções encontram-se acima dos diagramas_ Foram feitas correcções no dia 26.09.2019 Novas explicações e novos diagramas. Bom Tricô!.
24.02.2020 - 11:23
Celine skrifaði:
Merci pour votre réponse rapide et pour tous vos merveilleux modèles .cordialement. Celine.
25.01.2020 - 15:50
Celine skrifaði:
Bonjour , je suis entrain de réaliser ce modèle en taille L et j’en suis après le 48 eme rang. J’ai donc pris les explications de la taille L mais je ne comprend pas comment réaliser A2b et À 2 c après la dernière feuille ( j’en ai donc 3 pour le devant ) car jusqu’au marqueur du ranglan je n’ai que 2 mailles. J’ai vu qu’il y avait des modifications sur ce modèle mais je n’arrive pas à y accéder. Pouvez- vous m’aider ? Merci.
22.01.2020 - 10:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Céline, quand A.1 est terminé, tricotez simplement A.2b et A.2c côté raglans (= fin du devant gauche, de chaque côté du dos et début du devant droit) - continuez bien les augmentations des manches - Continuez jusqu'au rang avec la flèche, quand toutes les augmentations sont faites et les diagrammes tricotés jusqu'au rang avec la flèche inclus, vous devez avoir 52 m pour chaque devant, 95 m pour le dos soit 319 m au total. Bon tricot!
22.01.2020 - 15:54
SANDRINE skrifaði:
Bonjour, J'ai commencé ce modèle comme indiqué dans les explications, même fil, même taille d'aiguille et je me retrouve avec un col rond alors que le modèle montre un col avec une encolure très large. Je précise que je ne tricote pas serré et que l'échantillon est identique à celui donné pour le modèle. Merci.
21.01.2020 - 07:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, si vous avez bien le bon échantillon et si vous conservez bien la bonne tension en tricotant le gilet, vous devriez avoir les mêmes mesures que celles indiquées dans le schéma. Bon tricot!
21.01.2020 - 10:07
Blue Spruce Jacket#bluesprucejacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-15 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á ermi innan við prjónamerki og 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7½-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 82-86-90-94-94-98 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði Nord + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona í 3 cm - munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 91-95-95-99-99-103 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni til loka). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni,1 lykkja slétt, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkinu – prjónamerkin fylgja nú með í stykkinu). Fyrir utan útaukningar í mynsturteikningu, hefur nú verið aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 18-19-22-21-20-20 sinnum til viðbótar og í 4. hverri umferð 2-2-2-3-5-6 sinnum (= alls 21-22-25-25-26-27 útaukningar í hvorri hlið á ermi). JAFNFRAMT í 21. umferð í A.1a er prjónað eins og útskýrt er við hvíta stjörnu eftir kantlykkjum að framan í byrjun á umferð (séð frá réttu) og eins og útskýrt er við svarta stjörnu á undan kantlykkjum að framan (séð frá réttu) – sjá útskýringu í mynsturtáknum. Þegar gA.1a, A.1b og A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. prjónið A.1b og A.1c að röngu í hliðum á framstykki og bakstykki og prjónið blaðamynstur (= A.1a) eins og áður á milli laskalínu og bakstykkis (= A.1b og A.1c) og á milli laskalínu og kanta að framan á framstykki þar til prjónaðar hafa verið 36-46-48-48-48-48 umferðir með mynstri á hæðina og það eru 42-47-49-49-49-49 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 75-85-89-89-89-89 lykkjur á bakstykki. Nú eru 3-4-4-4-5-5 blöð meðfram laskalínu. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð M: Nú heldur blaðamynstrið áfram alveg eins, en að prjónamerkjum í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur A.2 (þ.e.a.s. ekki eru auknar út fleiri lykkjur fyrir laskalínu). Nú eru 47 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 85 lykkjur á bakstykki. Prjónið nú upp til og með umferð með ör í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 287 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 22 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli. STÆRÐ S. L, XL, XXL og XXXL: Nú heldur blaðamynstur áfram alveg eins, en við prjónamerki í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur eins og útskýrt er í A.2b og A.2c. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, eru 45-52-53-57-59 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og það eru 81-95-97-105-109 lykkjur á bakstykki. Þegar prjónað hefur verið upp til og með umferð með ör í þinni stærð í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 271-319-327-347-363 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 21-25-25-28-30 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli. ALLAR STÆRÐIR: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð (= umferð eftir þessa með ör) frá röngu er prjónuð þannig - ATH: Í stærð XXL og XXXL prjónið 1-3 af lykkjum í hvorri hlið á ermum inn á bakstykki/framstykki. Prjóni fyrstu 45-47-52-53-58-62 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-85-95-97-107-115 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-47-52-53-58-62 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 179-195-215-227-251-267 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 4-8-8-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur frá réttu þannig - ATH: Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki, passið uppá að byrja í réttri umferð í mynsturteikningu: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, blaðamynstur yfir næstu 15-29-29-29-36-36 lykkjur, A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, A.3c yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 28-56-56-56-70-70 lykkjur (= 2-4-4-4-5-5 mynstureiningar A.1a á breiddina), A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, A.3c yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 14-28-28-28-35-35 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm = 187-203-223-235-259-275 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 17-16-14-13-15-14 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er eins og 12. umferð í A.1a, eru eftir ca 5 cm með mynstri og 5-6-7-9-6-7 cm með sléttprjóni á undan stroffi neðst á fram- og bakstykki. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M, L og XL: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.4a yfir næstu 14-28-28-28 lykkjurnar (= 1-2-2-2 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 28-56-56-56 lykkjur (= 2-4-4-4 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 14-28-28-28 lykkjur (= 1-2-2-2 mynstureiningar), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri þar til A.4a-A.4c hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. Stærð XXL og XXXL: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.5a yfir næstu 7 lykkjurnar, A.4a yfir næstu 28-28 lykkjurnar (= 2-2 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 70-70 lykkjur (= 5-5 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur. A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 28-28 lykkjur (= 2-2 mynstureiningar), A.5b yfir næstu 7 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri þar til A.4a-A.4c, A.5a og A.5b hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan í garðaprjóni þar til fram- og bakstykki mælist 27-27-26-27-26-26 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður) þegar aukið er út um 27-31-35-35-39-43 lykkjur jafnt yfir = 214-234-258-270-298-318 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 50-54-60-62-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna/hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-12-14-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hlið = 54-62-68-74-76-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-13-15-17-17-16 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-37-35-36-34-33 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluesprucejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.