DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Spruce

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-16
DROPS Design: Mynstur z-870
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 6309, turkos/grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 27, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 12. og 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA (á við um ermar):
Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á ermi innan við prjónamerki og 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri í umferð + lykkjur sem auknar voru út í mynsturteikningu á framstykki og bakstykki). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður á milli vinstri ermi og bakstykki. Berustykkið skiptist síðan fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-88-92 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 82-86-86-90-90-94 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að mæla berustykkið frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), prjónið A.1a yfir fyrstu 3 lykkjur, A.1b yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar á breidd), A.1c yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), prjónið A.1a yfir næstu 3 lykkjur, A.1b yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar á breidd), A.1c yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttar lykkjur yfir næstu 6-8-8-10-10-12 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkinu – prjónamerkin fylgja nú með í stykkinu). Fyrir utan útaukningar í mynsturteikningu, hefur nú verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við ermar fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 18-19-22-21-20-20 sinnum til viðbótar og 4. hverri umferð 2-2-2-3-5-6 sinnum (= alls 21-22-25-25-26-27 útaukningar í hvorri hlið á ermi). Þegar A.1a til A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með mynstur alveg eins (þ.e.a.s. prjónið A.1a og A.1c að laskalínu í hliðum á framstykki og bakstykki, blaðamynstur eins og áður á milli þessa mynsturteikninga á framstykki og bakstykki og sléttprjón á ermum) þar til prjónaðar hafa verið 36-46-48-48-48-48 umferðir með mynstri á hæðina og það eru 75-85-89-89-89-89 lykkjur á framstykki og bakstykki. Nú eru 3-4-4-4-5-5 blöð meðfram laskalínu. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ M:
Nú heldur blaðamynstrið áfram alveg eins, en að prjónamerkjum í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur A.2 (þ.e.a.s. ekki eru auknar út fleiri lykkjur fyrir laskalínu). Nú eru 85 lykkjur á framstykki og bakstykki. Þegar prjónað hefur verið upp til og með umferð með ör í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 278 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 22 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

STÆRÐ S. L, XL, XXL og XXXL:
Nú heldur blaðamynstur áfram alveg eins, en við prjónamerki í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur eins og útskýrt er í A.2a og A.2c (ekki er prjónað nýtt blað að röngu, en prjónið sléttprjón og í stærð L, XL, XXL og XXXL er lítið gatamynstur á milli ysta blaðs og útaukninga fyrir laskalínu eins og útskýrt er í A.2a/A.2c). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 81-95-97-105-109 lykkjur á framstykki og bakstykki. Þegar prjónað hefur verið upp til og með umferð með ör í þinni stærð í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 262-310-318-338-354 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 21-25-25-28-30 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú er næsta umferð prjónuð (= umferð eftir þetta með ör) þannig: Prjóni fyrstu 81-85-95-97-106-112 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-85-95-97-107-115 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Í stærð XXL og XXXl eru nú eftir 1-3 lykkjur í umferð. Prjónið þessar lykkjur slétt – þær tilheyra bakstykki = 81-85-95-97-107-115 lykkjur fyrir bakstykki. Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 170-186-206-218-242-258 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 4-8-8-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur í hvorri hlið á prjónamerki). Byrjið við eitt af prjónamerkjunum og prjónið mynstur þannig – ATH: Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki, stillið af þannig að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu: * Prjónið 12-2-7-10-9-13 lykkjur (= 2-4-4-4-5-5 mynstureiningar), A.3c yfir næstu 16 lykkjur,12-2-7-10-9-13 lykkjur slétt, (prjónamerki situr hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm = 178-194-214-226-250-266 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 17-16-14-13-15-14 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er eins og 12. umferð í A.1b, eru eftir ca 5 cm með mynstri og 5-6-7-9-6-7 cm með sléttprjóni á undan stroffi neðst á fram- og bakstykki. Nú er prjónað A.4a yfir A.3a, A.4c yfir A.3c, og A.4b yfir A.1b. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er prjónað sléttprjón hringinn þar til fram- og bakstykki mælist 27-27-26-27-26-26 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-30-34-34-38-42 lykkjur jafnt yfir = 204-224-248-260-288-308 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 50-54-60-62-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna/hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-8-8-12-14-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hlið = 54-62-68-74-76-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-13-15-17-17-16 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-37-35-36-34-33 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Mynstrið hefur verið endurskrifað og ný mynsturteikning.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = örin sýnir hvaða umferð í mynsturteikningu er endað á í mismunandi stærðum – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blue Spruce

Agnes, Sweden

Blue Spruce

Joe, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Jeanette wrote:

Hvordan kan i få så bred en galskaber med Max 92 masker. Min sidder tættere på selve halsen, hvor det på billede er mere ud mod skulderen

31.03.2024 - 22:19

DROPS Design answered:

Hej Jeanette, hvis du vil have halsen bredere kan du slå op med dobbelt garn, så bliver den mere elastisk :)

05.04.2024 - 12:18

country flag Lotta Ottosson wrote:

Jag får inte varv 2 på diagrammet a1a att stämma….visst ska jag läsa diagrammet från höger till vänster….och då kommer på varv 2 avig maska på avig och det stämmer inte på A1b….heller eller är det nåt jag gör fel…..gör xl med 90 maskor på stickan…ska jag flytta markörerna på raglanärmen….är det det som blir fel…..…

08.10.2023 - 18:55

DROPS Design answered:

Hej Lotta, du strikker ifølge diagrammet med start nederst i højre side. Den økede maske strikkes ret på næste varv, så på varv 2 blir det; 1rm, 1am, 1rm, 1rm osv :)

17.10.2023 - 12:05

country flag Evi Chatzichronoglou wrote:

I see many differences in YOCKE section and some differences in BODY section. Thank you for your help!

19.10.2022 - 11:11

country flag Evi Chatzichronoglou wrote:

I can see now than there is a difference between patterns in English(GBP/EUR) and English(USD/CAD). Maybe the pattern is not updated in English(GBP/EUR).

19.10.2022 - 10:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chatzichronoglou, can you tell us which kind of difference you noticed between both patterns so that we could check which one is the right one and edit the other one? Thanks for your help!

19.10.2022 - 10:31

country flag Evi Chatzichronoglou wrote:

Hello! I cannot understand how to work A.1a in 17 sts when A.1a is worked in 3 sts as shown in the diagram. The same is for A.1b which I should work in 16sts and the diagram shows A.1b in 14 sts. I shoud count the yo in these sts? Also, I cannot see where I have to work A.1c and I cannot see any arrow in sizes S,M for A.1a and A.1b. Maybe the pattern is not updated? Thank you

19.10.2022 - 09:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chatzichronoglou, after diagrams have been worked one time in height, work A.1a (3 sts) over the first of the 17 sts previous A.1a and work A.1b over the next 14 sts previous A.1a, then repeat A.1b as before, and work one more A.1b over the first 14 sts previous A.1c, and finish with the 2 sts A.1c over the last 2 sts previous A.1c - that way you work A.1b 2 more times in width. Hope it can help. Happy knitting!

19.10.2022 - 10:21

country flag Corinna Reicherter wrote:

Vielen Dank für die schnelle Antwort. ... Aber A4 kam bisher in der Anleitung noch gar nicht vor....? Leider verstehe ich Ihre Antwort nicht... Ich weiß nicht, wo genau A2a und A2c hin müssen, da die Maschenanzahl dieser Diagrammen nirgends hin zu passen scheint.... VG Coco

26.09.2022 - 17:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reicherter, oops es war einen Tippfehler, entschuldigung, es sollte A.2a über A.1a A.2c über A.1c sein, so stricken Sie: A.2a über die ersten Maschen vom vorrigen A.1a, die Blätter stricken Sie wie zuvor bis die letzten Maschen A.1c, wo Sie dann A.2c stricken. Viel Spaß beim stricken!

27.09.2022 - 08:25

country flag Coco wrote:

Danke für die Antwort. Jetzt bin ich mit A.1a bis A.1c 2x durch. Maschenanzahl stimmt, aber ich habe 3,5 Blätter an jeder Ragelanlinie, nicht 4! Und jetzt soll es am Rand mit A.2a und A.2b weiter gehen. Die haben aber 10 bzw. 9 Maschen. Wo kommen die her? Oder müssen erst die Reihen 1-12 von A.1a und A.1c nochmal gestrickt werden und dann erst A.2a und A.2b? Danke für eure Antwort. VG Coco

26.09.2022 - 15:11

DROPS Design answered:

Liebe Coco, in XL stricken Sie 48 Runden im Muster, dh die Diagramme A.1a bis A.1c stricken Sie 2 Mal in der Höhe , 2 Mal die Diagramme sind 4 Blätter - das 4. Blatt enden Sie in A.2a/c gleichzeitig als Sie das 5. Blatt anfangen sollten. A.2a wird jetzt über die ersten Maschen vorrigen A.4 und A.2c über die letzten Maschen A.1c gestrickt. Dazwischen stricken Sie die Blätter wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!

26.09.2022 - 17:11

country flag Coco wrote:

Hallo :-) der Pulli sieht toll aus und ich habe gerade angefangen zu streichen - und leider schon eine Frage. Man soll für Größe XL 88 Maschen für die Halsblende anschlagen. Das scheint mir sehr eng... Ob da überhaupt der Kopf durch passt? Auf dem Foto sieht der Halsausschnitt recht weit aus.... Vielen Dank im Voraus für eure Antwort. VG Coco

20.09.2022 - 20:36

DROPS Design answered:

Liebe Coco, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie die korrekte Breite für den Halsauschnitt bekommen - sollte es immer noch zu eng für Sie sein, können Sie dann gerne die Maschenanzahl entsprechend anpassen und dann vor der Passe anpassen. Viel Spaß beim stricken!

21.09.2022 - 09:11

country flag Veronika wrote:

Hallo,\r\nDanke nochmal, das war mein Fehler, ich stricke doch XXL und nicht XXXL, also stimmen meine Maschenzahl mit der Vorlage überein 😄 Ich wünsche Ihnen noch ein schönes Wochenende Veronika

17.09.2022 - 07:47

country flag Veronika wrote:

Hallo, Eine Frage, wo kommen die Maschen her, nach Aufteilung + 14Maschen habe ich auf jede Seite 121 also 242 und nicht 258,habe ich wieder ein Denkfehler. Mit den Angaben alle Größen (115+3 auf jeder Seite) stimmt es noch und beim Rumpfteil stehen auf einmal 258??Danke für eine kurze Antwort 🤗

11.09.2022 - 08:23

DROPS Design answered:

Liebe Veronika, bei XXXL haben Sie je 115 Maschen für Rücken und Vorderteil + 14 neuen angeschlagen Maschen bei jeder Ärmel so bekommen Sie: 115+14+115+14=258 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2022 - 10:06