Federica skrifaði:
Salve, volevo chiedere se è possibile lavorare il modello in tondo con ferri circolari. Quali modifiche si dovrebbero apportare? Grazie. Il modello è bellissimo.
13.11.2022 - 18:49DROPS Design svaraði:
Buonasera Federica, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
13.11.2022 - 20:13
Elżbieta skrifaði:
Też mi podoba się, bardzo oryginalny, czekam
06.06.2019 - 09:39
Teresa Machała skrifaði:
Bardzo podoba mi się ten wzór oraz lubie kid silk, mam z niej kilka swetwrków i są moje ulubione. Czekam na ten wzór
05.06.2019 - 22:45
City Chic Set#citychicset |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól með pepita mynstri úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og rúðumynstri með löngum lykkjum.
DROPS 204-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 180-192-204 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 4 cm. Takið frá annan þráðinn, nú er einungis prjónað með 1 þræði. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur á meðan fækkað er um 8-10-12 lykkjur jafnt yfir = 172-182-192 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3, 1. umferð er frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 1 lykkju, A.2 er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið A.3 yfir 1 lykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram að prjóna mynsturteikningu svona, endurtakið A.x á hæðina. Prjónið þar til stykkið mælist ca 23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé umferð með litnum svartur. Haldið áfram með litinn svartur og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 176-188-196 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Bætið við 1 þræði í litnum svartur, þannig að prjónað er áfram með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Notið 1 þráð svartur, leggið stykkið saman þannig að stykkið mæti hvort öðru. Saumið saman, saumið í ystu lykkjubogana á ystu lykkju. ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 32-136-140 lykkjur á hringprjón 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 10 cm (það á að brjóta uppá stroffið við notkun). Takið frá annan þráðinn, prjónið síðan einungis með 1 þræði. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur á meðan fækkar um 5-4-3 lykkjur jafnt yfir = 127-132-137 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3, 1. umferðin er frá réttu: Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 1 lykkju, A.2 er endurtekið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið A.3 yfir 1 lykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram að prjóna mynsturteikningu þannig, endurtakið A.x á hæðina. Prjónið þar til stykkið mælist alls 25-26-27 cm (nú eru eftir ca 3,5 - 4 cm til loka lengdar). Nú á að fækka lykkjum fyrir toppinn á húfunni, passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en í annarri hverri einingu af A.2 er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 síðustu lykkjurnar slétt saman. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 4 lykkjur í annarri hverri einingu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en nú á að fækka á saman hátt eins og í 1. umferð í einingu af A.2 sem hafa 5 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 4 lykkjur í öllum einingum af A.2. Það eru 102-106-110 lykkjur í umferð. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en í annarri hverri einingu af A.2 er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjurnar slétt saman. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 3 lykkjur í annarri hverri einingu af A.2. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en fækkið lykkjum alveg eins og í 5. umferð í einingu af A.2 sem hafa 4 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 3 lykkjur í öllum einingum af A.2. Það eru 77-80-83 lykkjur í umferð. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en í annarri hverri einingu af A.2 er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjurnar slétt saman. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 2 lykkjur í annarri hverri einingu af A.2. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en fækkið jafnframt lykkjum á sama hátt og í 9. umferð í einingu með A.2 sem hafa 3 lykkjur. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 2 lykkjur í öllum einingum af A.2. Það eru 52-54-56 lykkjur í umferð. UMFERÐ 13 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en í annarri hverri einingu af A.2 er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú er 1 lykkja í annarri hverri einingu af A.2. UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður, en fækkið jafnframt lykkjum á sama hátt og í 13. umferð í einingu með A.2 sem hafa 2 lykkjur. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, en nú eru 1 lykkja í öllum einingum af A.2. Það eru 27-28-29 lykkjur í umferð. Héðan er prjónað með svartur til loka. UMFERÐ 17 (= rétta): Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Það eru 14-14-15 lykkjur í umferð. UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 19 (= rétta): Prjónið 0-0-1 lykkjur slétt, * prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Það eru 7-7-8 lykkjur í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar nokkrum sinnum og festið vel. FRÁGANGUR: Notið 1 þráð í litnum svartur, leggið stykkið þannig að hliðarnar mæti hvor annarri. Saumið saman meðfram hliðum, saumið í ystu lykkjubogana. Brjótið uppá stroffi 5 cm þannig að það liggi tvöfalt, ef óskað er eftir þá er hægt að sauma stroffið niður með nokkrum smáum sporum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citychicset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.