Pavla skrifaði:
Is there a mistake in chart A5 and A6 on the row 25 and 26? I ended up with 2 more stitches on row 26 in each leave pattern
16.09.2019 - 21:14DROPS Design svaraði:
Dear Pavla, thanks for your feedback, diagrams will be edited. Happy knitting!
19.09.2019 - 13:47
Laila skrifaði:
Farven synes ikke at være på farvekortet. Er den planlagt til at komme? Hvornår?
25.08.2019 - 14:40DROPS Design svaraði:
Hei Laila. Fargen er ny og den er ventet inn på lagret iløpet av nærmeste fremtid. mvh DROPS design
09.09.2019 - 12:18
Liliana skrifaði:
Liebe Redaktion, würde liebend gerne dieses Model stricken, und wollte das Muster ausdrucken finde aber den Button nicht mehr, und wollte fragen ob das vielleicht an meinem PC liegt. Ich habe viele Ihre Modelle gestrickt und nehme gerne die Anleitung mit für unterwegs, ohne wird es schwierig wenn man nicht in der Nähe des Computers ist. Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen!
23.08.2019 - 10:16DROPS Design svaraði:
Liebe Liliana, Drucken können Sie beim drücken den Button (mit Icon Drücker), den finden Sie nach dem Kopftext - neben "Kommentare/FAQ/Lieblingsmodellen". Viel Spaß beim stricken!
23.08.2019 - 12:08
Marie skrifaði:
Pour la légende des diagrammes, le carré avec un trait horizontal ne devrait-il pas être remplacé par un carré avec un trait vertical pour être cohérent avec les diagrammes ?
19.08.2019 - 18:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, il semble que vous ayez raison, le symbole de la légende va probablement être corrigé, merci pour votre retour. Bon tricot!
20.08.2019 - 09:01
Irene Ritter skrifaði:
Ein sehr schönes Tuch, werde ich in den nächsten Tagen annadeln.
08.08.2019 - 07:38
Johanna skrifaði:
Hallo liebes DROPS Team! Die Farbe Haselnuss/9025 gibt es in der aktuellen Farbkarte nicht.. ist das eine neue Farbe? Wann kommen ggf. die neuen Farben? Danke für die Info! Sind wieder so schöne neue Muster dabei!
07.08.2019 - 17:06DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, ja richtig, es handelt sich um eine neue Farbe, die Ende August ankommen sollte. Viel Spaß beim stricken!
08.08.2019 - 09:46
Kiki skrifaði:
Underbart mönster och en underbar färg
25.06.2019 - 21:35
Sylvie skrifaði:
C'est vraiment un très joli châle, le point est magnifique et bien rendu avec ce point en forme de feuille et la couleur est très belle.
10.06.2019 - 20:08
Andrea skrifaði:
Ein absolutes Highlight.
10.06.2019 - 19:53
Milena Pišlová skrifaði:
Překrásné!
10.06.2019 - 16:46
Lacey Laurels#laceylaurelsshawl |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og sjal úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og blaðamynstri í hálfu klukkuprjóni.
DROPS 203-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1B og A.3B. Sjal: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MYNSTURTEIKNING: Þessi uppskrift inniheldur nokkrar mynsturteikningar. Það getur auðveldað að klippa út mynsturteikningarnar og raða þeim í flokka í réttri röð (sjá skiptingu í sjálfri uppskriftinni). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 12,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir í sjali): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum hvoru megin við miðju lykkju, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan og miðju lykkju (= 5 lykkjur), deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er 76 lykkjur með 2 (til að finna út lykkjufjölda hvoru megin við miðju lykkju = 38 lykkjur) og deilið 38 lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera í hvorri hlið (t.d. 18) = 2,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur eða miðju lykkju. Ef fækka á lykkjum þá eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-154 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið A.3B hringinn (= 6-7 mynstureiningar með 22 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3B hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 16-17 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14 lykkjur jafnt yfir = 144-168 lykkjur. Prjónið A.1B hringinn. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B er fækkað um 16-24 lykkjur jafnt yfir = 128-144 lykkjur. Prjónið A.1B einu sinni til viðbótar á hæðina. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1B eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 64-72 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 þar til 8 lykkjur eru eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og prjónað er ofan frá og niður. Vegna lykkjufjölda er gott að skipta lykkjunum á nokkra hringprjóna með sama grófleika þegar þar að kemur. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga). Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo að það myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 3 og 4 þar til 83 lykkjur eru í umferð og síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið næstu umferð sem er umferð 4 (= ranga) og aukið jafnframt út 17 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkju (aukið út alls 34 lykkjur í umferð í viðbót við útaukningu innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 119 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 52 lykkjur (26 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 159 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 10 lykkjur jafnt yfir og aukið út um 2 lykkjur í mynsturteikningu) – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 151 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.3 og A.4 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.3C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.4A yfir 14 lykkjur, prjónið A.3B yfir 44 lykkjur (2 sinnum á breidd), prjónið A.4C yfir 15 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.3 og A.4 er eftir, eru 263 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 43 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 86 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu = 351 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 168 lykkjur (84 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 391 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 395 lykkjur. Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni til viðbótar á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 190 lykkjur (95 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 435 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og fækkið jafnframt um 11 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (fækkið alls 22 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu) = 415 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.5 og A.6 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.5A yfir 14 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.5C yfir 15 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.6A yfir 14 lykkjur, prjónið A.5B yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.6C yfir 15 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.7 og A.8 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7A yfir 18 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7B yfir 32 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.7D yfir 33 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.8A yfir 32 lykkjur, prjónið A.7C yfir 176 lykkjur (8 sinnum á breidd), prjónið A.8C yfir 33 lykkjur, prjónið A.8D yfir 18 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.7 og A.8 er eftir, eru 593 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 72 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 144 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu = 739 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 362 lykkjur (181 sinni á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 362 lykkjur (181 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, eru 779 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð og aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkjuna (aukið út alls 2 lykkjur jafnt yfir og aukið út 2 lykkjur í mynsturteikningu = 783 lykkjur. Prjónið nú A.1 og A.2 einu sinni á hæðina, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A yfir 2 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið A.1B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.1C yfir 3 lykkjur (1 sinni á breidd), prjónið 1 lykkju sléttprjón (= miðju lykkja), prjónið A.2A yfir 3 lykkjur, prjónið A.2B yfir 384 lykkjur (192 sinnum á breidd), prjónið A.2C yfir 2 lykkjur og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 825 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 65 cm meðfram miðju lykkju. Fellið af eins og útskýrt er að neðan. TEYGJANLEGUR AFFELLINGARKANTUR: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, * stingið vinstri prjóni inn í 2 lykkjur á hægri prjóni frá vinstri til hægri og prjónið lykkjurnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda. FORMUN: Bleytið stykkið og leggið það til í rétt form eftir réttu máli. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #laceylaurelsshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.