Pat skrifaði:
Hi there, I have just finished knitting this jacket. It was very interesting to knit, and is lovely. Fits perfectly, knit up exactly to the pattern and will be a warm, comfy wear for winter months. Now looking for my next project to build my skills. I l also love your wool, and have used it for both my own items and to knit for my husband. Kind regards, Pat
13.06.2021 - 18:25
LEVAL skrifaði:
Bonjour, Je ne trouve pas de tutoriel pour le modèle DROPS/205/6 winter delight jacket pour les manches. Merci de bien vouloir me guider
02.06.2021 - 17:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Leval, les explications des manches se trouvent après le premier paragraphe ASSEMBLAGE juste après le devant gauche, et avant le 2ème ASSEMBLAGE, juste avant le col. Bon tricot!
03.06.2021 - 08:11
Geneviève skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas cela : A.1 au-dessus des 8-12-16-16-20-28 mailles suivantes . Cela veut dire que l'on commence le schéma à la 8,,12,16... maille du diagramme ? ou que l'on commence au 8,12,16... rang du diagramme ? ou que l'on saute 8-12-16.. mailles avant de commencer le diagramme ? L'expression est curieuse .. au-dessus des mailles suivantes ...
02.06.2021 - 14:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Geneviève, vous devez en fait tricoter ces 8-12-16-16-20-28 mailles suivantes en suivant A.1 - le diagramme A.1 se composant de 4 mailles, vous allez répéter 2-3-4-4-5-7 ces 4 mailles. Bon tricot!
02.06.2021 - 16:12
Ann-Jeanette Andersson skrifaði:
Denna är stickad nu i isblå, mörk rosröd, vit och skogsgrön. På den mörk rosröda (färgbad 32 parti 55953) saknas två nystan och på den vita (färgbad 01 parti 58678) saknas ett nystan. Kan ni hjälpa mig att skaffa detta i rätt färgbad?
21.04.2021 - 15:43DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Jeanette. Ta kontakt med den återförsäljare som du köpte garnet av för att höra om de har kvar av de partierna (eller om någon av våra andra återförsäljare har det). Om du inte hittar det så finns det Facebook-sidor/grupper där man kan efterlysa särskilda partier för att hitta det man söker. Mvh DROPS Design
22.04.2021 - 07:33
Ann-Jeanette Andersson skrifaði:
Tröjan är klar! Det gick ganska exakt 700 gram till stl M. Nu är det dags för knappar. Vilka knappar är det på mönstret? Har ni dom till försäljning?
15.03.2021 - 07:02DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Jeanette, ja du ser här vilka butiker som har våra knappar; Pärlemor rund pärlgrå nr 614 Butiker
17.03.2021 - 15:53
Ann-Jeanette Andersson skrifaði:
Jag ska sticka storlek M. Hur många nystan går det åt? I will knit size M. How many skeins does it take?
16.02.2021 - 11:51DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Jeanette, till storlek M behöver du 700g = 14 nystan DROPS Merino Extra fine :)
16.02.2021 - 12:27
Eva Frisnes skrifaði:
Diagram 205-6. flette over 9 masker. Sett 3 masker foran arbeidet, strikk 3 masker rett, strikk 3 masker fra hjelpepinnen, hva med de neste tre maskene?
04.01.2021 - 21:23DROPS Design svaraði:
Hei Eva, De 3 maskene til overs er strikket i glattstrikk. God fornøyelse!
05.01.2021 - 06:49
Samira skrifaði:
Bonjour, pour les manches est ce que je peux ne pas utiliser des aiguilles circulaire ?
02.04.2020 - 21:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Samira, tout à fait, vous trouverez ici comment les adapter en rangs plutôt qu'en rond. Bon tricot!
03.04.2020 - 07:51
Aase Jordhus skrifaði:
Hei, jeg skrev samme spørsmål et annet sted, men strikker denne oppskriften. Strikker står M, men ønsker den i ekstra lengde, ca 10 cm. Hvor mye ekstra garn må jeg ha?
07.03.2020 - 15:29DROPS Design svaraði:
Hej Aase, du skal nok regne med 2 nøgler mere :)
10.03.2020 - 10:06
Bagat skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas comment diminuer mes devants au niveau de l’encolure. J’ai bien mes 59 mailles je diminue de 6 mailles au niveau des diagrammes A2 et A4 il me reste donc 53 mailles dont 35 mailles pour l’épaule. Il faut mettre 9 mailles en attente et diminuer 9 mailles côté encolure mais que faire des 9 mailles qui sont en attente. Merci de venir à mon secours car je suis bloquée pour finir mes 2 devants
02.11.2019 - 16:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bagat, les 9 mailles en attente sur chacun des devants seront repris quand on va tricoter le COL : on reprend les 9 m du devant droit, on relève les mailles le long de l'encolure et on reprend les 9 m du devant gauche. Bon tricot!
04.11.2019 - 16:20
Winter Delight Jacket#winterdelightjacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og tvöföldu perluprjóni. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S – XXXL.
DROPS 205-6 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Á þessu módeli eru lykkjurnar prjónaðar upp meðfram handveg og ermarnar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að stýra betur lengdina á ermum. Ef óskað er eftir því að prjóna ermarnar sér og sauma þær í, þá er mjög einfalt að gera það með því að fitja upp jafn margar lykkjur og prjóna á upp meðfram handveg og fylgja útskýringu á ermum. Saumið ermarnar í (ermarnar liggja undir kanti í garðaprjóni meðfram handveg þannig að kanturinn í garðaprjóni sjáist og saumað er í ystu lykkju meðfram kanti í garðaprjóni). ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt eða prjónið 2 lykkjur brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Byrjið frá réttu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: S: 2, 11, 21, 30 og 40 cm M: 2, 12, 22, 32 og 42 cm L: 2, 10, 19, 27, 36 og 44 cm XL: 2, 11, 20, 29, 38 og 46 cm XXL: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm XXXL: 2, 12, 21, 31, 40 og 49 cm ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Axlasaumar saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar – sjá LEIÐBEININGAR! Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. Að lokum er handvegur saumaður saman og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-127-135-145-153-169 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstur. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 8-12-16-16-20-28 lykkjur (= 2-3-4-4-5-7 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 48-48-48-53-53-53 lykkjur), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið A.4 (= 48-48-48-53-53-53 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 8-12-16-16-20-28 lykkjur (= 2-3-4-4-5-7 mynstureiningar með 4 lykkjum), og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 109-113-121-131-139-155 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir miðju 43-43-43-48-48-48 lykkjur í umferð = 97-101-109-119-127-143 lykkjur eftir. Í næstu umferð er fækkað um miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 33-35-38-43-46-54 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli á öxl = 29-31-34-39-42-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 62-66-70-75-79-87 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 (= 48-48-48-53-53-53 lykkjur), prjónið A.5 8-12-16-16-20-28 lykkjur (= 2-3-4-4-5-7 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umverð frá röngu = 57-59-63-68-72-80 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4 kantlykkjum í garðaprjóni að handveg. Þegar stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir frá réttu yfir fyrstu 18 lykkjur í A.4 = 51-53-57-62-66-74 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru ystu 9-9-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli (án þess að prjóna þær). Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum í öllum stærðum og síðan 1 lykkja 3-3-4-4-4-4 sinnum = 33-35-38-43-46-54 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli á öxl = 29-31-34-39-42-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykki mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 62-66-70-75-79-87 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 8-12-16-16-20-28 lykkjur (= 2-3-4-4-5-7 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 48-48-48-53-53-53 lykkjur og endið með 5 kanltykkjum við miðju að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umverð frá réttu = 57-59-63-68-72-80 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4 kantlykkjum í garðaprjóni að handveg. Þegar stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir frá réttu yfir síðustu 18 lykkjur í A.2 = 51-53-57-62-66-74 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru ystu 9-9-9-9-10-10 lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá eru lykkjur prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum í öllum stærðum og síðan 1 lykkja 3-3-4-4-4-4 sinnum = 33-35-38-43-46-54 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli á öxl = 29-31-34-39-42-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 76-80-84-88-92-96 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 4,5 með Merino Extra Fine (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg) – sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3-4-4-4-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina við botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki! Prjónið nú ermina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 2-3-2-3-3-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-43-42-39 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 52-52-51-49-48-45 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma – saumið i ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermi við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu á hringprjón 3,5, ca 90 til 100 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til 99-101-103-105-109-111 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: S, M og L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að frama í garðaprjóni. XL, XXL og XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * prjónið 1 lykkju brugðið,1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin á hægri kanti að framan. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm frá kanti með garðaprjóni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterdelightjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.