Lily skrifaði:
I do not understand the paragraph AT THE SAME TIME... It follows the heel decrease. Very confusing. It sounds like the top of the sock is being decreased but that is not what the photo shows. Please assist.
19.01.2021 - 19:49DROPS Design svaraði:
Dear Lily, after you have all 68-72-80 stitches on needle you need to decrease this number of stitches to 52-56-60 stitches. You will then decrease 1 stitch on each side of the middle 27-29-31 sts for the top of foot as described, ie decrease 2 stitches on every other round a total of 8 or 10 times depending on the size. This is for the gusset and you can see that gusset on the 3rd picture for example. Hope this helps. Happy knitting!
20.01.2021 - 07:36
Stefanie skrifaði:
Insgesamt 2 x in der Höhe arbeiten, aber in der letzten Runde von A.2 (im letzten Rapport von A.2 in der Höhe) wie folgt stricken... ICH WEIß NICHT , WIE WEIT ICH NUN STRICKEN SOLL, WEIL A.3 A HAT JA DEN GLEICHEN RAPPORT AM ANFANG WIE A.2 AM ENDE, DANN SIND DIE BEIDEN ÜBEREINANDER? ODER STRICKE ICH NUR BIS ZUR 8TEN RUNDE UND NEHME DA MASCHEN AB? ICH HOFFE SIE VERSTEHEN MICH WAS ICH MEINE...
30.09.2020 - 11:44DROPS Design svaraði:
Liebe Stefanie, Sie sollen die Diagramme A.2 insgesamt 2 Mal in der Höhe stricken = 2 x 16 Reihen = 32 Runden insgesamt und bei der letzten Runde der letzten A.2 nehmen Sie wie erklärt ab. Nach der Fersen werden Sie A.3 ab 1. Reihe stricken. So werden die Diagramme in der Höhe übereinander gestrickt sein. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2020 - 14:05
Lena Silverdal skrifaði:
Det fungerar ej att skriva ut mönstret! Tråkigt
13.06.2019 - 16:37
Lois Egenes skrifaði:
I am going to learn how to knit something other than vanilla sock.
05.06.2019 - 19:36
JULIE skrifaði:
PLEASE PRINT PATTERN SOON.
13.02.2019 - 00:48
Step into Spring#stepintospringsocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 198-18 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með DROPS Nord. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 66-66-77 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 6-6-7 mynstureiningar með 11 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 60-60-70 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum). A.2 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina en í síðustu umferð í A.2 (síðasta endurtekning A.2 á hæðina) er prjónað þannig: Prjónið 14-13-12 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 12-12-10 lykkjur slétt), prjónið 27-29-31 lykkjur slétt, prjónið 19-18-27 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 4-1-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 15-17-21 lykkjur slétt) = 54-58-62 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 17 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Haldið eftir fyrstu 12-12-10 lykkjum á prjóni, setjið næstu 27-29-31 lykkjur á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir 15-17-21 lykkjum sem eftir eru á prjóni = 27-29-31 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 merki fyrir miðju í síðustu umferð – merkið er notað síðar þegar mæla á frá lengd á fæti. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 15-15-17 hællykkjur, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið 1 merki, prjónið 1-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.3A yfir næstu 20 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3B (= 5 lykkjur), prjónið 1-2-3 lykkjur, setjið 1 merki og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 62-72-80 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur í sléttprjóni og A.3 yfir 25 lykkjur fyrir miðju á fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 27-29-31 lykkjur á milli merkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra merki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna merki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá merki á hæl (nú eru ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Takið frá öll fyrri merki og setjið 2 ný merki í stykkið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti (það á að vera 1 merki í hvorri hlið á sokk og merkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir tá). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði merkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt merkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 5-7-11 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-0 sinnum = 12-12-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðin í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá merki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stepintospringsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.