DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Country Fair Socks

Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað í vinkil og röndum frá tá og upp. Stærð 35 - 43.

DROPS 198-20
DROPS Design: Mynstur fa-429
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 16 - 18 - 20 cm

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 903, gulur/bleikur
50-50-50 g litur 153, texmex

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm, 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Stykkið er prjónað í röndum þannig:
Prjónið 1 umferð með litnum gulur/bleikur.
Prjónið 1 umferð með litnum texmex.

HÆLL:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum texmex þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
Haldið áfram með snúninga alveg eins þar til 14 lykkjur eru eftir mitt í umferð.
Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) yfir hæl. Til að koma í veg fyrir göt í hverri skiptingu við snúninga er lárétta þræðinum lyft á undan lykkju sem prjónuð var upp og settur snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju á vinstri prjón (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá tá og upp. Fyrst er prjónað fram og til baka í vinkil með stuttum umferðum, áður en stykkið er prjónað áfram í hring á sokkaprjóna. Hællinn er prjónaður fram og til baka með stuttum umferðum. Stroffið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 2,5 með texmex.

HLUTI 1:
Skiptið yfir í litinn gulur/bleikur.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 23-25-27 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki, prjónið 23-25-27 lykkjur brugðið, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu (= alls 50-54-58 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 3 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt), snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til alls 5-7-9 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu (= alls 52-56-60 lykkjur í umferð):
UMFERÐ 5 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 5-7-9 lykkjur eru eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt), snúið stykkinu.
UMFERÐ 6 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til alls 10-12-14 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu (= alls 54-58-62 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 7 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 10-12-14 lykkjur eru eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt), snúið stykkinu.
UMFERÐ 8 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 15-17-19 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 9 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 15-17-19 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 10 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 20-22-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 11 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 20-22-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 12 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 13 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Skiptið yfir í litinn texmex.
UMFERÐ 14 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.

HLUTI 2:
Skiptið yfir í litinn gulur/bleikur.
UMFERÐ 16 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 17 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 18 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 5-7-9 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 19 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 5-7-9 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 20 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 10-12-14 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 21 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 10-12-14 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 22 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 15-17-19 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 23 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 15-17-19 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 24 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til alls 20-22-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 25 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið brugðnar lykkjur þar til alls 20-22-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 26 (= rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 27 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Skiptið yfir í litinn texmex.
UMFERÐ 28 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 29 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Endurtakið HLUTI 2 (umferð 16-29) alls 3 sinnum. Síðan er HLUTI 2 endurtekinn 1 sinni til viðbótar, en í 2 síðustu umferðunum (= með litnum texmex) er fyrsta kantlykkjan felld af í hvorri hlið á stykki = 52-56-60 lykkjur. Nú færist umferðin til með því að lyfta yfir fyrstu 39-42-45 lykkjum frá réttu yfir á hægri prjón. Klippið frá.
Byrjun á umferð = mitt undir fæti.
Setjið nú stykkið saman og prjónað er í hring á sokkaprjóna. Prjónið RENDUR í sléttprjóni – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 17-18½-21 cm, sjá TEIKNING.1 (þegar stykkið er mælt er það lagt niður flatt með uppfitjunarkantinn í hlið, mælt mitt í stykki frá horni/tá). Nú skiptist stykkið fyrir hæl og stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð með litnum texmex. Látið miðju 22 lykkjur ofan á fæti hvíla á prjóninum (þ.e.a.s. 11 lykkjur á 2. og 3. sokkaprjóni). Skiptið þeim 30-34-38 lykkjum sem eftir eru á 1. og 4. sokkaprjóni með 15-17-19 lykkjur í hverri umferð. Prjónið HÆLL – sjá útskýringu að ofan (hællinn er prjónaður í sléttprjóni).
Þegar hællinn hefur verið prjónaður til loka er haldið áfram með rendur og sléttprjón – ATH: Til að koma í veg fyrir göt í horni á hæl þegar prjónuð er fyrsta umferðin á eftir hæl, takið lárétta þráðinn á undan næstu lykkju á vinstri prjón upp og setjið snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju á vinstri prjón.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá hæl, aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8 cm frá hæl = 56-60-64 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá hæl, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með litnum gulur/bleikur, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með gulur/bleikur í ca 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppfitjunarkantinn saman og saumið saman, saumið upp þar sem stykkið var sett saman og prjónað í hring, fallega með litnum texmex.

VINSTRI SOKKUR:
Prjónið á sama hátt og hægri sokkur, en þegar búið er að prjóna bæði stykkin og umferðin er færð til mitt undir fæti þá er fyrstu 13-14-15 lykkjum frá réttu lyft yfir á hægri prjón.

Mynstur

symbols = horn/tá, mælið héðan
symbols = horn/tá, mælið héðan
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Susanna wrote:

Hallo, ich brauche bitte Hilfe bei der Ferse :) Ich verstehe die Anleitung so, dass die Ferse lediglich mit den 22 Maschen gestrickt wird, da die anderen stillgelegt werden. Dadurch wird die Ferse aber sehr schmal und kurz für Größe 43, nur 16 Reihen. Oder muss ich mit den 38 Maschen stricken?

26.03.2023 - 14:17

DROPS Design answered:

Liebe Susanna, die Ferse stricken Sie über die 38 Maschen - die deutsche Anleitung wird angepasst. Viel Spaß beim stricken!

27.03.2023 - 09:23

country flag Undine wrote:

Hallo liebes DropsTeam, der Teil 2 soll insgesamt 3x gearbeitet werden und dann noch 1x wiederholen. Verstehe ich es richtig, dass Teil 2 dann insgesamt 4x gearbeitet wird? Dankeschön. Liebe Grüße

23.01.2022 - 11:00

DROPS Design answered:

Liebe Undine, Teil 2 stricken Sie 4 Mal gestrickt und gleichzeitig am Anfang der 2 letzten Reihen beim 4. Mal werden die Randmaschen beidseitig abgekettet. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2022 - 09:23

country flag Anja wrote:

Hallo liebes Team, ich komme bei der Ferse einfach nicht klar. Kann man mir das bitte besser erklären? WAS genau soll gemacht werden, nachdem mir 14 Maschen in der Mitte geblieben sind? Maschen aufnehmen, wenn ja WO? Zwischen den 14 Maschen? Ich versteh das leider überhaupt nicht. Danke für eure Hilfe.

07.05.2020 - 20:38

DROPS Design answered:

Liebe Anja, dieses Video zeigt, wie man solche Ferse strickt, dh in 2 Teilen: zuerst 1 Masche weniger am Ende jeder Reihe bis 14 Maschen übrig sind, dann 1 Masche mehr am Ende jeder Reihe bis alle Maschen der Fersen wieder gestrickt sind. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2020 - 08:52

country flag Ugne wrote:

My bad - forgot about increases in Part 1. "Bind off" is correct (decrease by 2 sts)

10.07.2019 - 11:19

country flag Ugne wrote:

I think, there is an error in pattern. "Repeat PART 2 (row 16 to 29) a total of 3 times. Then repeat PART 2 again, but on the last 2 rows (= with texMex) ----bind off---- first edge stitch in each side of piece = 52-56-60 stitches." It should be "cast on" as stitch count increases by 4.

10.07.2019 - 11:02

country flag Magda Roos wrote:

Dank voor de uitleg

25.03.2019 - 18:30

country flag Magda Roos wrote:

Bezig met country fair sock maar snap niet hoe ik de steken moet verdelen om rond te gaan breien heb de 42 steken op rechter NLD gezet maar hoe moet ik zelf verder gaan verdelen. Kunt u me aub verder op weg helpen welk deel wordt hiel? Heb dit nog nooit gedaan. Bij voorbaat dank

12.03.2019 - 16:49

DROPS Design answered:

Dag Magda Roos,

Bij naald 1 wordt aangegeven waar je markeerdraden moet plaatsen, op deze plek zou je ook over kunnen gaan naar een nieuwe naald als je met sokkenbreinaalden werkt. Verder kun ze naar eigen inzicht verdelen. Tijdens het breien wordt precies aangegeven wat je moet doen en dan wijst het zich ook wel hoe je de steken over de naalden moet verdelen.

Kijk anders ook even bij de video's die bij het patroon staan.

25.03.2019 - 10:22

country flag Garnbaciller wrote:

Det är jävligt beklagligt att ni återigen snor andras mönster!

06.03.2019 - 08:21

country flag Carmen wrote:

Sehr nah am Original eines anderen Designers !!!

18.01.2019 - 09:58

country flag Jensen wrote:

Smart måde at afslutte tæerne på - følger fint fodens form.

16.12.2018 - 09:26