DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 198-19
DROPS Design: Mynstur ne-302
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

STÆRÐ: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 6273, kirsuberjarauður
50 g litur 0206, ljós beige
50 g litur 2923, gulur
50 g litur 3720, millbleikur

Ef óskað er eftir því að hafa stykkið einlitt þá þarf DROPS Nepal: 100 - 150 - 150 g

HEKLFESTA:
17 stuðlar á breidd og 20 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Sjá heklaður ferningur mynsturteikning A.1 og lesið LITASKIPTI í útskýringu að neðan.
Uppfitjunarhringur og 1. umferð er heklað með litnum millibleikur.
UMFERÐ 2: Heklið með litnum kirsuberjarauður.
UMFERÐ 3: Heklið með litnum gulur.
UMFERÐ 4: Heklið með litum ljós beige.
UMFERÐ 5: Heklið með litnum gulur – og þessi umferð byrjar í horni á ferningi við ör og er bara hekluð í 3 af hliðunum.

RENDUR-TÁ:
Hversu margar rendur eru heklaðar í hverjum lit er valfrjálst. T.d:
UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur
UMFERÐ 2: Heklið með litnum gulur eða millibleikur.
UMFERÐ 3: Heklið með litnum millibleikur eða ljós beige.
UMFERÐ 4: Heklið með litnum ljós beige eða kirsuberjarauður.
Heklið til loka með kirsuberjarauður.

RENDUR-NEÐRI HLUTI:
UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur.
UMFERÐ 2: Heklið með litnum millibleikur.
UMFERÐ 3: Heklið með litnum ljós beige.
UMFERÐ 4 og áfram: Heklið til loka með gulur.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum.

ÚRTAKA-1:
HEKLIÐ 2 HÁLFA STUÐLA SAMAN Í 1 LYKKJU = 1 LYKKJA FÆRRI:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni.

ÚRTAKA-2 (á við jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 4. Í þessu dæmi þá eru heklaðar 3. og 4. hver lykkja saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er ferningur A.1 heklaður, síðan er neðri hlutinn heklaður á tvær gagnstæðar hliðar á ferningi, síðan er táin hekluð og að lokum hælstykkið.

TÁTILJA:
Byrjið á að heklað ferning mitt á fæti – sjá mynsturteikningu A.1 og lesið HEKLAÐUR FERNINGUR að ofan. Tilbúinn ferningur mælist ca 10 x 10 cm.

NEÐRI HLUTI:
Neðri hlutinn samanstendur af 2 alveg eins stykkjum, sem eru bæði hekluð fram og til baka á viðkomandi hlið-B og hlið-D, þessar hliðar eru saumaðar saman undir fæti í lokin.
Fyrri hlutinn er heklaður á fernings hlið-B, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá lit sjá RENDUR-NEÐRI HLUTI í útskýringu að ofan.
Heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju = alls 17 hálfir stuðlar.
Heklið hálfa stuðla fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-6-7 cm (snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum). Klippið frá og festið enda.
Saumið síðan saman þessi stykki mitt undir fæti – saumið í ystu lykkjubogana á síðustu umferð á lykkjum svo að saumurinn verði ekki þykkur og verði óþægilegur þegar tátiljurnar eru notaðar.

TÁ:
Táin er hekluð í hring meðfram hlið-E, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá liti sjá RENDUR-TÁ í útskýringu að ofan, lesið LITASKIPTI í útskýringu að ofan.
Heklið 1 hálfan stuðul í hverja lykkju meðfram hlið-E (= 17 hálfir stuðlar), síðan eru heklaðir 19-21-23 hálfir stuðlar í kringum neðri hluta á fæti = alls 36-38-40 hálfir stuðlar. Endið hverja umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð og heklið 2 loftlykkjur. Haldið áfram hringinn með hálfa stuðla í alls 4-4-5 umferðir.
Heklið síðan 3-4-5 umferðir þar sem fækkað er um 9-7-6 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð – SJÁ ÚRTAKA-1 og 2 = 9-10-10 lykkjur. Klippið frá og þræðið þræðinum upp og niður í kringum toppinn, dragið saman og festið vel.

HÆLSTYKKI:
Heklið með litnum gulur. Um loftlykkjuboga í horni á hlið-C eru heklaðir 3 hálfir stuðlar og síðan eru heklaðir upp 22-24-26 hálfir stuðlar meðfram neðri hluta á fæti, að lokum eru heklaðir 3 hálfir stuðlar um loftlykkjuboga í horni á fernings hlið-C = 28-30-32 lykkjur.
Heklið nú hæl áfram með hálfum stuðlum með litnum millibleikur. Snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum. JAFNFRAMT í 2. umferð er aukið út um 1 hálfan stuðul í lok umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lok hverrar umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lokin á hverri umferð alls 6 sinnum (þ.e.a.s. 3 sinnum í hvorri hlið) = 34-36-38 lykkjur. Haldið áfram þar til öll tátiljan mælist ca 22-24-27 cm.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman kant í kant mitt aftan á hæl.
Að lokum er hekluð 1 umferð með hálfum stuðlum í litnum gulur í kringum opið á tátiljunni.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 1 fastalykkja á milli 2 lykkja
symbols = 1 hálfur stuðull á milli 2 lykkja
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = í bilið á milli 2 fyrstu loftlykkja og fyrstu fastalykkju í umferð að neðan er heklað: 2 tvíbrugðnir stuðlar saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um bilið á milli lykkja, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman á milli 2 lykkja þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um bilið á milli lykkja, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 2 tvíbrugðna stuðla til viðbótar alveg eins og þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í bilið á milli 2 lykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = byrjið síðustu umferð hér
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Jenny wrote:

Hej! Är helt ny på virkning och vet inte om jag läst konverteraren rätt- kan jag byta rakt av nepalgarnet till denna toffla och använda paris istället? Om jag vill anvönda alpaca ska jag då använda 2 trådar då? Tack på förhand 😊Mvh jenny

14.08.2023 - 10:06

DROPS Design answered:

Hej Jenny, ja du förstår konverteraren helt rätt :)

16.08.2023 - 11:58

country flag Sus Leth wrote:

I would like to know when this pattern was published?

20.06.2020 - 17:08

country flag Michelle wrote:

Cute and easy to fallow making for Christmas thanks for this awesome pattern

14.08.2019 - 02:08

country flag Laura wrote:

Podrías hacer video de pantuflas? pars que sea más fácil de realizar

17.06.2019 - 16:06

DROPS Design answered:

Hola Laura. Cada día publicamos nuevos vídeos. Síguenos en las redes sociales para poder ver qué vídeos se publican. Enviaremos tu sugerencia al departamento de vídeos.

20.06.2019 - 23:09

country flag Marie Josee Giangreco wrote:

Merci pour ses beaux modèles et vos vidéos bien expliquées

04.06.2019 - 17:00

country flag Marina wrote:

ORIGINALI BABBUCCE CON I QUADRATI GRANNY

12.12.2018 - 16:21