Beate Greuel skrifaði:
Nachdem Muster 1 in der Höhe fertig ist, sind bei Größe M 330 Maschen auf der Nadel. Die nächste Runde wird im Wechsel mit A2 und A3 gestrickt. Lt. Anweisung für Größe M hat man danach 308 Maschen gestrickt, 22 Maschen bleiben übrig, wo ist der Fehler?
16.06.2019 - 18:58DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Greuel, die 330 M stricken Sie wie folgt: 44 m (A.2 x 2), 88 M (A.3 x 4), 11 M (die ersten 11 M in A.3), 66 M (A.2 x 3), 11 M (die letzten 11 M in A.3), 88 M (A.3 x 4), 22 M (A.2 x 2): 44+88+11+66+11+88+22 = 330 M. Viel Spaß beim stricken!
17.06.2019 - 08:21
Jeanne skrifaði:
A quand les explications ? J'ai hâte de le commencer !
25.02.2019 - 14:31
Cathy skrifaði:
Vite les explications svp. Il est trop beau
21.02.2019 - 08:31
Mauvet skrifaði:
Ravissant modèle, vite les explications.
25.01.2019 - 10:17
Lone skrifaði:
En meget smuk bluse, jeg gerne vil strikke
04.01.2019 - 20:00
Ehret Ingrid skrifaði:
Hoffentlich kommt bald die Anleitung ich werde dies nacharbeiten
29.12.2018 - 12:42
Doris skrifaði:
Sehr schöner leichter Sommerpulli, bestimmt auch zusammen mit der Jacke hübsch.
19.12.2018 - 12:24
Spring Melt Top#springmelttop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-42 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 36. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 36. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 35. og 36. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. ATH: Það er mismunandi fjöldi mynstureininga A.1 í berustykki eftir stærðum. Í stærð S, XL og XXXL er fjöldi mynstureininga A.1 jafn og mynstrið kemur til með að líta eins út á framstykki og bakstykki. Í stærð M, L og XXL er fjöldi mynstureininga með A.1 ójafn og mynstrið kemur því að færast til um hálfa mynstureiningu á bakstykki, þannig að mynstrið kemur til með að líta öðruvísi út á framstykki og bakstykki. BERUSTYKKI: Fitjið upp 144-148-153-161-168-173 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 140-150-150-160-170-180 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L og XL er fækkað um 4-3-1 lykkjur og í stærð M, XXL og XXXL er aukið út um 2-2-7 lykkjur) – sjá ÚTAUKNINGU/ÚRTAKA (jafnt yfir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 10 lykkjur) alls 14-15-15-16-17-18 sinnum í umferð. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 308-330-330-352-374-396 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XL og XXXL: Prjónið 11 lykkjur slétt. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) 1 sinni, prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir þær 44 lykkjur sem eftir eru (= 2 mynstureiningar). Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 328-434-504 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.4 þar til stykkið mælist 15-21-25 cm. Stærð M, L og XXL: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) yfir fyrstu 44 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið fyrstu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið A.2 yfir þær 22 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 360-396-452 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með sléttprjón og A.4 þar til stykkið mælist 17-19-23 cm. Allar stærðir: Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir fyrstu 24-48-48-24-48-24 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir næstu 72 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir þær 48-24-24-48-24-48 lykkjur sem eftir eru = 340-370-414-442-482-528 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í berustykki þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 37-65-71-52-82-65 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið næstu 98-106-118-128-140-154 lykkjur með mynstri eins og áður, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið þær 61-41-47-76-58-89 lykkjur sem eftir eru með mynstri eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-256-276-304-332 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 3 mynstureiningum A.4 á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 5 sinnum = 192-208-236-256-284-312 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.4 á hæðina (nú eru eftir ca 6 cm til loka), prjónið í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja. ERMI: Setjið til baka 72-79-89-93-101-110 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-87-99-103-113-122 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Fækkið nú um lykkjur mitt ofan á ermi þannig: Prjónið fyrstu 30-33-35-37-41-45 lykkjurnar, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 20-20-28-28-30-32 lykkjur (= 10-10-14-14-15-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-34-36-38-42-45 lykkjur = 70-77-85-89-98-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springmelttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.