DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Melt

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-41
DROPS Design: Mynstur e-291
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 g litur 17, hvítur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5: fyrir kanta með garðaprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 158 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 29,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 30. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir kanti með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-8-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

PEYSA:
BERUSTYKKI:
Fitjið upp 153-158-163-171-178-183 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan 2 umferðir slétt með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er aukið út um 0-5-0-2-5-10 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) og mundið eftir HNAPPAGAT = 153-163-163-173-183-193 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 10 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum, A.3 (= 1 lykkja), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka eru 321-343-343-365-387-409 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú mynstur í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S, XL og XXXL:
Prjónið næstu umferð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.5 yfir næstu 22 lykkjur, A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.4B (= 11 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.4, prjónið A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd). Prjónið A.4B (= 11 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.4, prjónið A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), A.5 yfir næstu 22 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað yfir hverja mynstureiningu A.5. Þ.e.a.s. prjónuð er ein mynstureining A.6 hvoru megin við kant að framan (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og prjónaðar eru 3 mynstureiningar A.6 mitt aftan á baki. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 341-441-511 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, A.6 (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 15-21-25 cm.

Stærð M, L og XXL:
Prjónið næstu umferð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.5 yfir næstu 22 lykkjur, A.4 yfir næstu 110-110-132 lykkjur (= 5-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið A.4 yfir næstu 110-110-132 lykkjur (= 5-5-6 mynstureiningar á breidd), A.5 yfri næstu 22 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað yfir hverja mynstureiningu A.5. Þ.e.a.s. prjónuð er ein mynstureining A.6 hvoru megin við kant að framan (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og prjónaðar eru 3 mynstureiningar A.6 mitt aftan á baki. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 373-413-469 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, A.6 (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 17-19-23 cm.

Allar stærðir:
Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-120-140-154-168-189 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-5-5-5-11-13 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 72 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-120-140-154-168-189 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-5-5-5-11-13 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir þær 30 lykkjur sem eftir eru = 351-383-423-451-491-537 lykkjur.
Snúið og prjónið síðustu umferð í berustykki þannig (frá röngu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 54-59-64-69-75-82 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 99-107-117-127-139-153 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið mynstur eins og áður yfir 54-59-64-69-75-82 lykkjur sem eftir eru.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 223-241-265-285-313-341 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka með A.6, sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. ATH: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón á milli fyrstu 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og A.6 í byrjun á umferð (séð frá réttu) og prjónuð er 1 lykkja sléttprjón á milli A.6 og síðustu 5 kantlykkjur að framan í lok umferðar (séð frá réttu).
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 5 sinnum = 203-221-245-265-293-321 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.6 á hæðina (nú eru eftir ca 6 cm til loka), prjónið í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 22 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja.

ERMI:
Setjið til baka 72-79-89-93-101-110 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-87-99-103-113-122 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Fækkið nú um lykkjur mitt ofan á ermi þannig: Prjónið fyrstu 30-33-35-37-41-45 lykkjur, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 20-20-28-28-30-32 lykkjur (= 10-10-14-14-15-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-34-36-38-42-45 lykkjur = 70-77-85-89-98-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Karin wrote:

Tack för svar, men jag har förstått att jag ska sticka A6 över A5, men dom andra maskorna? Är det vanlig slätstickning eller? Jag stickar storlek S.

22.03.2024 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Karin, de andre masker fortsætter som tidligere :)

03.04.2024 - 13:59

country flag Karin wrote:

Hej! Undrar när jag ska få svar på min fråga om mönstret. Ställde min fråga för fyra dagar sedan och vad jag kan se så har andra fått svar efter 1-2 dagar. Hoppas på snabbt svar.

22.03.2024 - 08:58

country flag Karin wrote:

Hej! Hur många A4 efter första A6 innan de 3 A6 mitt bak? Är det så här: 5 kantm 2 släta, A6x1, A4x4, A6x3? Hur är det sedan efter A6x3?

18.03.2024 - 12:04

DROPS Design answered:

Hej Karin. Vilken storlek stickar du? Du stickar A.6 över varje rapport av A.5 efter att A.5 har stickats klart. Sätt gärna ut markörer mellan rapporterna för att göra det enklare att se. Mvh DROPS Design

22.03.2024 - 10:06

country flag Lamaletie wrote:

Bonjour, un peu perdue!! Pour l’empiècement on a 163 mailles ,on tricote ensuite si j’ai bien compris 12 deA1, 14foisles 10 de A2 1deA3 sans oublier les 10 pour obtenir les 342 mailles en tailleL comment doit on procéder ?mon amietrès bonne tricoteuse ne comprend pas Merci

04.11.2023 - 15:39

DROPS Design answered:

Bonjour Lamaletie, tricotez les diagrammes comme indiqués, vous allez ainsi augmenter progressivement dans A.1 et A.2 (cf ovales noirs = 3ème symbole de la légende; lorsque les diagrammes seront terminés vous aurez: 5m de bordure devant, 24 m dans A.1, 22 m dans chaque A.2 soit ( 22x 14= 308m), 1 m de A.3 et 5 m de bordure devant = 343 mailles au total. Bon tricot!

06.11.2023 - 08:16

country flag Chantale wrote:

Au début des explications c est inscrit ,que tous les rangs du points de fantaisie sont vue sur l endroit alors moi je comprend que le diagramme ne montre que les rangs endroits ,quand vous avez répondue à ma question précédente vous avez inscrit que je doit suivre le diagramme de gauche à droite pour les rangs envers ,désolé pour mon incompréhension je suis débutante merci

16.08.2023 - 23:59

DROPS Design answered:

Bonjour Chantale, retrouvez dans cette leçon comment on doit lire des diagrammes tricot, cela pourra fort probablement vous aider. Bon tricot!

17.08.2023 - 09:45

country flag Chantale wrote:

Bonjour vous dite de lire le diagramme de gauche à droite pour l envers?au début des explications c est inscrit,tous les diagrammes montres tous les rangs du point de fantaisie vus sur l endroit ,alors pour moi je comprend que ce ne sont que les rangs endroits qu il y as sur le diagramme .Veuillez excusez mes incompréhensions je ne fait pas du tricot depuis très très longtemps .merci

16.08.2023 - 23:55

DROPS Design answered:

Bonjour Chantale, effectivement, les diagrammes montrent tous les rangs, vus sur l'endroit, autrement dit, les rangs sur l'endroit et les rangs sur l'envers, ainsi, 1 case blanche se tricote en jersey endroit (cf 1er symbole) : à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers, dans ces diagrammes, vous tricoterez tous les rangs à l'envers sur l'envers (tricotez certains des jetés torse à l'envers - cf 3ème symbole). Bon tricot!

17.08.2023 - 09:44

country flag Chantale wrote:

Bonjour ,très beau model merci de le partagé gratuitement .Je ne comprend pas trop je vous dirais ,je fait la grandeur large ,je ne dois pas faire a1 et a2 et a3 en même temps,avec un motif qui se répètes 14x dans mes mailles je n arrivé pas bref je suis mêle, merci pour votre aide

14.08.2023 - 19:32

DROPS Design answered:

Bonjour Chantale, en taille L, vous avez 163 mailles que vous allez tricoter ainsi, sur l'endroit: 5 m de bordure devant au point mousse, puis vous allez tricoter les 12 mailles de A.1, puis vous répétez 14 fois les 10 mailles de A.2, vous tricotez la maille de A.3 (pour que le motif soit symétrique), et vous terminez par 5 m de bordure devant au point mousse; autrement dit: 5+12+140+1+5= 163. Sur l'envers, tricotez ainsi en lisant les diagrammes de gauche à droite: 5 m point mousse, A.3, répétez 14 fois A.2, A.1 et 5 m point mousse. Bon tricot!

15.08.2023 - 09:04

country flag Copla wrote:

Bonjour, je ne comprends pas pourquoi les boutonnières se font en fin de rang alors que le devant droit se tricote au début du tricot à droite. On devrait ouvrir ces boutonnières en début de rang ?

07.06.2023 - 17:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Copla, quand on tricote de haut en bas, on commence (sur l'endroit) par le devant gauche et on termine par le devant droit, on va ainsi ouvrir les boutonnières en fin de rang sur l'endroit. Bon tricot!

08.06.2023 - 09:21

country flag Maureen wrote:

DROPS 19941 Can you tell me whether the A6 pattern is carried (repeat three times) right down the back of the cardigan or does it finish after the first sixteen rows Thanks Love your patterns this is my fifth design I’ve knitted

31.07.2022 - 18:13

DROPS Design answered:

Dear Maureen, you should continue working A.6. Happy knitting!

31.07.2022 - 19:01

country flag Enrica wrote:

Grazie mille per avermi risposto subito! Però quello che non capisco è perché c’è scritto ripetere una volta A6 sul davanti e 6 volte sul dietro 😞

03.06.2022 - 11:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Enrica, A.6 va ripetuto 3 volte sul dietro, come A.5. Buon lavoro!

03.06.2022 - 12:59