Zlata skrifaði:
Dobrý deň končím A1 veľkosť L330ociek a ako rátam očká na ďalšie pletenie vychádza mi až 374 .A2a aj A3 samé hladké očká a neviem ako sa potom dopracujeme k A4.dakujem za pomoc
26.06.2026 - 07:36DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Zlato, vidím, že záhada je nakonec vyřešena - jsem ráda, že vše sedí, jak má! Příjemné zaplétání, Hana
02.07.2026 - 05:51
Annie Thiffault skrifaði:
Bonjour je tricote le modèle e-293 en taille xxl, après l’empiètement je fais A2 x2, A3x5, 11 premières m de A3, A2x3, 11 dernières m de A3, A3x5, A2x1 par la suite quand A2 a été tricoté 1 x en hauteur je tricote A4 au dessus de chaque A2 donc 3 motifs pour le dos et 3 motifs pour le devant mais entre les A4, je tricote les A3 ? Les tours suivant je continue les A3 A4 jusqu’au temps que le A3 sois fait en hauteur et poursuit avec A4 et en jersey
12.06.2026 - 23:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thiffault, quand A.2 est terminé, vous tricotez A.4 au lieu de A.2, et, en même temps, quand A.3 est terminé, vous tricotez les mailles de A.3 en jersey. Vous continuez ensuite en jersey et A.4. Bon tricot!
15.06.2026 - 09:34
Marjolaine skrifaði:
Est-ce que je dois faire 3 fois les 16 rangs de a4 si mes 16 rangs me donnent 5 cm de hauteur? Ou je fais une fois et je divise pour mes manches etc merci
06.06.2026 - 15:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Marjolaine, vous allez diviser les mailles de l'empiècement pour continuer le dos/le devant et les manches séparément lorsque l'ouvrage mesure 15 cm (en taille S). Vous continuerez A.4 sur le bas du top. Bon tricot!
08.06.2026 - 09:01
Marjolaine Prevost skrifaði:
Quand j’ai fini de tricoter A2-A3 mon prochain tour je tricote a2 et a3 en faisant mes augmentations pour avoir 24 ml - partout ensuite 1 autre tour et après je fais a4 dans ch a2 et a3 qu’est-ce que je fais?
01.06.2026 - 21:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Marjolaine, quand vous avez tricoté les 2 tours de A.2 et A.3 vous avez augmenté 20 m au total (2 m dans chaque A.2 et 1 m seulement en S dans chaque A.3), au tour suivant, vous tricotez A.4 au lieu de A.2 et vous tricotez les mailles de A.3 en jersey. Bon tricot!
02.06.2026 - 10:07
MARJOLAINE PREVOST skrifaði:
Bonjour je tricote en S-apres l\'empiecement j\'ai 308- je tricote 11 mailles end et il me reste 297ml que je réparti dans les explication A2 et A3. Pour mes 11 mailles est ce que je les tricote toujours en jersey? Merci
26.05.2026 - 09:03DROPS Design svaraði:
Cf. Réponse ci-dessous :) Bonne continuation!
26.05.2026 - 17:44
Marjolaine skrifaði:
Bonjour je tricote en S-apres l'empiecement j'ai 308- je tricote 11 mailles end et il me reste 297ml que je réparti dans les explication A2 et A3. Pour mes 11 mailles est ce que je les tricote toujours en jersey? Merci Marjolaine
24.05.2026 - 21:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Marjolaine, lorsque vous tricotez les 11 premières mailles du tour, vous décalez le début du tour et vous continuez ainsi: 22 m de A.2, 88 m de A.3, 66 m de A.2, 88 m de A.3 et 44 m de A.2 (= y compris les fameuses 11 dernières mailles) ainsi vous avez bien: 22+88+66+88+44=308 mailles et vos tours commencent avant les 22 m de A.2 (après les 44 de A.2). Bon tricot!
26.05.2026 - 16:30
Delavelle skrifaði:
Dans le paragraphe Taille S....Dans la phrase " continuer en rond ainsi : quand A.2 a été tricoté 1 fois etc . Etc .....jusqu'à la fin est-ce que je dois tricoté entièrement le diagramme A.4 (taille S) modèle 199-42
05.05.2026 - 23:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delavelle, vous devez tricoter ainsi: 2 tours avec A.2 et A.3, puis 2 tours avec A.4 au lieu de A.2 et les tours 3 et 4 de A.3, puis continuez A.4 et tricotez les mailles de A.3 en jersey jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 15 cm. Passez au paragraphe "toutes les tailles" et augmentez entre les A.4 comme indiqué = vous avez désormais 340 mailles. Au tour suivant, divisez l'ouvrage pour le dos/le devant et les manches que vous terminerez séparément. Bon tricot!
06.05.2026 - 08:44
Delavelle skrifaði:
Suite a votre réponse si je comprends bien je tricote A.4 pendant 24m En jersey sur 92m A.4 sur 72m En jersey sur 92m et A.4 sur 48m
05.05.2026 - 20:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delavelle, mettez un marqueur entre chaque diagramme pour bien repérer ceux que vous tricotez, vous aurez ainsi tout juste en nombre de mailles et pourrez tricoter simplement A.4 au-dessus de A.2 en continuant A.3 en même temps. Bon tricot!
06.05.2026 - 08:12
Delavelle skrifaði:
Je tricote le modèle 199-42 taille S Comment je sais où est le devant et le dos car si je tricote 3 motifs de A4 ( 72m) pour le devant et 72m pour le dos total = 144m J'ai 328m-144= 184m que je tricote suivant quel diagramme ?
04.05.2026 - 23:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delavelle, je vous laisse lire les réponses précédentes, si vous avez encore des questions, n'hésitez pas. Bonne continuation!
05.05.2026 - 09:42
Delavelle skrifaði:
Je tricote le modèle 199-42 taille S Comment je sais où est le devant et le dos car si je tricote 3 motifs de A4 ( 72m) pour le devant et 72m pour le dos total = 144m J'ai 328m-144= 184m que je tricote suivant quel diagramme ?
04.05.2026 - 22:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delavelle, tricotez vos 328 m ainsi: A.4 (24 m), jersey (88m A.3 + 4 augm = 92 m jersey) jusqu'au A.4 suivant (3x24= 72 m), jersey (88 m A.3 + 4 augm = 92 m jersey) jusqu'au A.4 suivant, A.4 (2x24 m = 48 m) = 24+92+72+92+48=328m. Bon tricot!
05.05.2026 - 09:40
Spring Melt Top#springmelttop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Safran eða DROPS Magic. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-42 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 36. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 36. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 35. og 36. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. ATH: Það er mismunandi fjöldi mynstureininga A.1 í berustykki eftir stærðum. Í stærð S, XL og XXXL er fjöldi mynstureininga A.1 jafn og mynstrið kemur til með að líta eins út á framstykki og bakstykki. Í stærð M, L og XXL er fjöldi mynstureininga með A.1 ójafn og mynstrið kemur því að færast til um hálfa mynstureiningu á bakstykki, þannig að mynstrið kemur til með að líta öðruvísi út á framstykki og bakstykki. BERUSTYKKI: Fitjið upp 144-148-153-161-168-173 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 140-150-150-160-170-180 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L og XL er fækkað um 4-3-1 lykkjur og í stærð M, XXL og XXXL er aukið út um 2-2-7 lykkjur) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNINGU/ÚRTAKA (jafnt yfir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 10 lykkjur) alls 14-15-15-16-17-18 sinnum í umferð. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 308-330-330-352-374-396 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XL og XXXL: Prjónið 11 lykkjur slétt. Setjið eitt merki hér. Þetta er núna byrjun á umferð! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) 1 sinni, prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir þær 44 lykkjur sem eftir eru (= 2 mynstureiningar). Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 328-434-504 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.4 þar til stykkið mælist 15-21-25 cm. Stærð M, L og XXL: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) yfir fyrstu 44 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið fyrstu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið A.2 yfir þær 22 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 360-396-452 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.4 þar til stykkið mælist 17-19-23 cm. Allar stærðir: Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir fyrstu 24-48-48-24-48-24 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir næstu 72 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir þær 48-24-24-48-24-48 lykkjur sem eftir eru = 340-370-414-442-482-528 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í berustykki þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 37-65-71-52-82-65 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið næstu 98-106-118-128-140-154 lykkjur með mynstri eins og áður, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið þær 61-41-47-76-58-89 lykkjur sem eftir eru með mynstri eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-256-276-304-332 lykkjur. Setjið eitt merki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við merki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 3 mynstureiningum A.4 á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merki í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 5 sinnum = 192-208-236-256-284-312 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.4 á hæðina (nú eru eftir ca 6 cm til loka), prjónið í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja. ERMI: Setjið til baka 72-79-89-93-101-110 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-87-99-103-113-122 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Fækkið nú um lykkjur mitt ofan á ermi þannig: Prjónið fyrstu 30-33-35-37-41-45 lykkjur, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 20-20-28-28-30-32 lykkjur (= 10-10-14-14-15-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-34-36-38-42-45 lykkjur = 70-77-85-89-98-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springmelttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.