DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Spring Melt Top

Prjónaður toppur með hringlaga berustykki úr DROPS Safran eða DROPS Magic. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 199-42

#springmelttop

DROPS Design: Mynstur e-293
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 gr litur 17, hvítur

Eða notið:
DROPS MAGIC frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 gr litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm, 60 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 144 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 36.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 36. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 35. og 36. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. ATH: Það er mismunandi fjöldi mynstureininga A.1 í berustykki eftir stærðum. Í stærð S, XL og XXXL er fjöldi mynstureininga A.1 jafn og mynstrið kemur til með að líta eins út á framstykki og bakstykki. Í stærð M, L og XXL er fjöldi mynstureininga með A.1 ójafn og mynstrið kemur því að færast til um hálfa mynstureiningu á bakstykki, þannig að mynstrið kemur til með að líta öðruvísi út á framstykki og bakstykki.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 144-148-153-161-168-173 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 140-150-150-160-170-180 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L og XL er fækkað um 4-3-1 lykkjur og í stærð M, XXL og XXXL er aukið út um 2-2-7 lykkjur) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNINGU/ÚRTAKA (jafnt yfir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 10 lykkjur) alls 14-15-15-16-17-18 sinnum í umferð. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 308-330-330-352-374-396 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, XL og XXXL:
Prjónið 11 lykkjur slétt. Setjið eitt merki hér. Þetta er núna byrjun á umferð! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) 1 sinni, prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið A.3 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.2 yfir þær 44 lykkjur sem eftir eru (= 2 mynstureiningar). Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 328-434-504 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.4 þar til stykkið mælist 15-21-25 cm.

Stærð M, L og XXL:
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 22 lykkjur) yfir fyrstu 44 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið fyrstu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.2 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.3, prjónið A.3 yfir næstu 88-88-110 lykkjur (= 4-4-5 mynstureiningar), prjónið A.2 yfir þær 22 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn. Þegar A.2 Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.4 yfir hverja mynstureiningu A.2. Þ.e.a.s. prjónið 3 mynstureiningar A.4 bæði á bakstykki og framstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 360-396-452 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.4 þar til stykkið mælist 17-19-23 cm.

Allar stærðir:
Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir fyrstu 24-48-48-24-48-24 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir næstu 72 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-108-126-145-154-180 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-5-9-4-15-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur með A.4 eins og áður yfir þær 48-24-24-48-24-48 lykkjur sem eftir eru = 340-370-414-442-482-528 lykkjur.
Prjónið síðustu umferð í berustykki þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 37-65-71-52-82-65 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið næstu 98-106-118-128-140-154 lykkjur með mynstri eins og áður, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið þær 61-41-47-76-58-89 lykkjur sem eftir eru með mynstri eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-228-256-276-304-332 lykkjur. Setjið eitt merki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við merki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 3 mynstureiningum A.4 á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merki í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 5 sinnum = 192-208-236-256-284-312 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.4 á hæðina (nú eru eftir ca 6 cm til loka), prjónið í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 22 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja.

ERMI:
Setjið til baka 72-79-89-93-101-110 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-87-99-103-113-122 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Fækkið nú um lykkjur mitt ofan á ermi þannig: Prjónið fyrstu 30-33-35-37-41-45 lykkjur, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 20-20-28-28-30-32 lykkjur (= 10-10-14-14-15-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-34-36-38-42-45 lykkjur = 70-77-85-89-98-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Diagram for DROPS 199-42
Diagram for DROPS 199-42
Diagram for DROPS 199-42
Diagram for DROPS 199-42
Diagram for DROPS 199-42
Diagram for DROPS 199-42
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (77)

country flag Connie Bach skrifaði:

Str xxxl når 1. del af bærestykket er strikket, så opstår der et problem: strik 11 m ret osv. denne del går men når jeg skal starte med næste omg. hvor A2 strikkes over af A4 går det galt! Maskeantallet passer ikke for jeg ender med 410 m ! Forstår ikke helt om der skal strikkes 3 rap. af A4 over A2 ? I begyndelsen står der strik A2 1 gang !

30.09.2026 - 15:17

DROPS Design svaraði:

Hei Connie. Man starter omgangen med å strikke bare 1 rapport av A.2, deretter strikkes A.3 6 ganger, så strikkes A.2 3 ganger (= forstykket), så 6 ganger med A.3 og avslutt omgangen med 2 rapporter av A.2 (= bakstykket). Man har 396 masker og når man har strikket A.2 1 gang i høyden (2 omganger) er det også økt med 2 masker hver gang A.2 strikkes (= A.2 strikkes 6 ganger = 12 økte masker = 369 + 12 = 408 masker). mvh DROPS Design

05.10.2026 - 11:22

country flag Marina Wald skrifaði:

Nach Muster A1 sind 330 M auf der Nadel, das sind 15 Rapporte. Das Muster A4 ist 3x vorn und 3x hinten vorgesehen, also 6 Rapporte, bleiben 9 übrig. Das lässt sich aber nicht durch 2 teilen. Um die Muster vorn und hinten gleich mittig zu haben müsste eine gerade Anzahl von Rapporten vorhanden sein. Ich hoffe mich verständlich ausgedrückt zu haben. Vielleicht habe ich auch was falsch verstanden.

05.09.2026 - 16:22

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Wald, aber nach A.1 wird man nicht nur A.4 stricken sondern auch A.2 und A.3 dazwischen und zwar: A.2 x 2 Mal, A.3 (4 Mal), 11 ersten M A.3, 3 x A.2, 11 letzten maschen A.3, A.3 x 4 Mal, und A.2 = 44+88+11+66+11+88+22=330 M; dann nehmen Sie wie in A.2/A.3 zu, so stricken Sie dann A.4 anstatt A.2 und die Maschen A.3 stricken Sie glattrechts. Viel Spaß beim Stricken!

07.09.2026 - 07:53

country flag Sonia skrifaði:

Hi! Thank you for responding to my question. I unravelled everything and started again from A.1 and continued following the instructions. Well, I am stuck again since I got 370 stitches, but the pattern says I need to have 396. I am missing 29 stitches. What sequence do I need to work to reach that amount of sts for the medium size? Do I need to have 396 stitches before separating for the sleeves? thank you

22.08.2026 - 22:56

DROPS Design svaraði:

Dear Sonia, in M you should have 330 sts when A.1 is done (15 repeats of A.1 with each 22 sts each = 330). Then you will work: A.2 2 times, A.3 4 times, first 11 sts A.3, A.2 3 times, first 11 sts A.3, A.3 4 times and A.2 1 time, you will increase 2 sts in each A.2 (you work A.2 a total of 6 times = 12 sts increased) and 2 sts in each whole A.3 + 1 st in each half A.3 (you work a total of 4+4= 8 whole A.3 + 2 half A.3 = 18 sts increased), so that you will have 330+12+18=360 sts in M (396 sts are for size L). Happy knitting!

24.08.2026 - 08:48

country flag Gunilla skrifaði:

Hi, I am doing size medium as Sonia. I have done A1, A2 and A3 finish, and I have only 360 stitches. And I should have 396 stitches.

02.08.2026 - 11:34

country flag Sonia skrifaði:

Hi! I am doing size medium. I have a question: after finishing Diagram A1, I have 330 stitches. Now, how do I work the rest of the diagrams A2, A3 and A4 because I don't understand the explanation to come to my Medium size. Do I work A2, A3 and A4 because I don't reach the total of stitches, or do I work A2 and A3 with their repeats on the row and do A4 after finishing A2 and A3 Diagrams? Please reply as soon as possible since I can not continue with my top. Thank you, Sonia

31.07.2026 - 00:29

DROPS Design svaraði:

Dear Sonia, work now: A.2 2 times (22x2 = 44 sts), then A.3 4 times (22x4=88 sts), work the first 11 sts A.3 only, then A.2 3 times (22x3=66 sts), work the last 11 sts A.3 then 4 times A.3 (22 x4 = 88 sts), and A.2 over the last 22 sts. On the first row A.2 you will increase 2 sts in each A.2 (= 24 sts for each A.2) so you work now A.4 instead of A.2 and continue A.3, on 3rd row in M.3 increase 2sts in each A.3 (only 1 stitch when working the first /the last 11 sts), and then work stitches A.3 in stocking stitch continuing A.4 to the end of diagram. Happy knitting!

10.08.2026 - 11:09

country flag Annie Thiffault skrifaði:

Bonjour je crois que j’ai mal posé ma question, dans le paragraphe de toutes les tailles il a 15 augmentations 2fois ce qui me donne bien 483 m, mais l’autre paragraphe le dernier rang de l’empiecement là ou nous mettons les manches en attente est-ce que je dois faire un tour à l’endroit avant car je dois tricoter ses aug torses ou je les mets sur le fil quand meme en attente.

01.07.2026 - 13:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Thiffault, ah oui pardon, tout à fait, si vous avez fait des jetés pour augmenter alors tricotez-les torse au tour suivant (attention juste à ne pas tricoter les jetés de A.4 torse). Si certains des jetés ne sont pas tricotés car mis en attente pour les manches, vous les tricoterez torse au 1er tour des manches. Bon tricot!

02.07.2026 - 09:14

country flag Anne-Christine Fält skrifaði:

Jag förstår inte hur jag ökar i A3 när A1 är färdigstickat. 330 m nu. Ska efter ökningar i A3 bli 396m. Var ska jag öka? I början o slut på varje rapport i A3? Och ska jag även öka i de 2 11 maskors rapporterna? Och hur isåfall? Mvh Anne-Christine

30.06.2026 - 14:08

DROPS Design svaraði:

Hei Anne-Christine. I str. L skal man ha 330 masker når A.1 er ferdig strikket. Deretter strikker det slik (økningen i parentes): A.2/22 m (+2) + A.2/22 masker (+2) + A.3/ 22 masker (+6) + A.3/ 22 masker (+6) + A.3/ 22 masker (+6) +A.3/ 22 masker (+6) + A.3/ 11 masker (+3) + A.2/22 masker (+2) + A.2/22 masker (+2) + A.2/22 masker (+2) + A.3/ 11 masker (+3) +A.3/ 22 masker (+6) + A.3/ 22 masker (+6) + A.3/ 22 masker (+6) +A.3/ 22 masker (+6) + A.2/22 masker (+2) = 396 masker. Det økes i begynnelsen i den ene 11 masker og i slutten av den andre, som vist i diagrammet. mvh DROPS Design

06.07.2026 - 11:37

country flag Annie Thiffault skrifaði:

Bonjour je suis rendu à faire le dernier tour de l’empiecement avant de mettre les manches en attente, ma question est-ce que je dois faire un tour en premier afin de tricoter les jetées torses (augmentations) ou je met les jetées qui ne son pas tricotés quand même en attente et seront tricoter quand je reprendrai les manches ? Merci

30.06.2026 - 12:47

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Thiffault, les augmentations doivent être terminées avant la division, les seuls jetés que vous avez avant de diviser sont ceux de A.4, vous pouvez diviser l'empiècement sur un tour sans jetés/diminutions, si vous aviez des jetés, tricotez les comme indiqué dans A.4 (à l'endroit). Bon tricot!

01.07.2026 - 07:09

country flag Annie Thiffault skrifaði:

Bonjour je veux rallonger le chandail car trop court pour moi, dans le dos et le devant après les diminutions des 12 mailles j’imagine que c’est à ce moment que je peux continuer d’allonger le tricot ? Merci beaucoup !

28.06.2026 - 14:03

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Thiffault, vous pouvez effectivement probablement l'allonger après les diminutions sur les côtés, mais notez que l'on va diminuer 5 fois 4 mailles (5 x 2 m de chaque côté), donc 20 m au total pas 12. Bon tricot!

29.06.2026 - 11:23

country flag Zlata skrifaði:

Dobrý deň veľmi sa ospravedlňujem ale prišla som na to mala spočítala som si zle očká každé z inej veľkosti.Je to dobre napísané všetko chápem.Pekny deň

28.06.2026 - 05:08