Annemieke Blom skrifaði:
Beste lezer, Ik heb een vraag over de trui Soft Moonlight: de hals heb ik op de korte rondbreinaald nr. 4 gebreid en voor de pas ga ik verder met rondbreinaald nr. 5, doe ik dit op de korte van 40 cm. of op de lange van 80 cm.? Ik weet niet wanneer ik dit moet wisselen en zie het niet in de beschrijving staan. Ik hoor het graag. M.vr.gr. Annemieke Blom
05.03.2020 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dag Annemieke,
Als de steken niet meer op de naald passen dan kun je wisselen en een naald met een langere draad nemen. Wat je ook kunt doen is, als de draad nog te lang is, dat je halverwege een stukje van de breidraad eruit laat steken.
10.03.2020 - 19:40
Manuela Schmidt skrifaði:
Ich habe die Größe M gestrickt mit dem Originalgarn. Er fällt viel kleiner aus. Wie kann das sein? Ich habe ihn vorher mit der Air gestrickt, da hat alles gestimmt. Das originalgarn sieht sehr löcherig aus. Sehr ärgerlich
15.01.2020 - 16:53DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmidt, stimmt Ihre Maschenprobe? Haben Sie die 17 Maschen x 22 Reihen glatt rechts mit 1 Faden BabyAlpaca Silk + 1 Faden Kid-Silk zusammengestrickt = 10 x 10 cm? Hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
16.01.2020 - 08:57
Malinn skrifaði:
Kan jeg strikke denne i brushed alpaca silk , vil det bli rett i forhold til strikkefasthet?
17.12.2019 - 11:56DROPS Design svaraði:
Hej Malinn, ja du kan strikke denne bluse i DROPS Brushed Alpaca Silk, men lav gerne en strikkeprøve så du er sikker på at du har samme strikkefasthed som der står i opskriften. God fornøjelse!
17.12.2019 - 12:29
Anne Marie Carlsen skrifaði:
Hej Drops kan i hjælpe mig der jeg er gået helt i stå, der jeg ikke lige forstå hvor jeg skal tælle fra . Skal til at dele det i ærme og ryg og forstikke. Jeg strikker i størrelse L . Der står strik 40 masker og sæt 58 masker på en tråd . Jeg ved ikke rigtig hvor jeg skal tælle de 40 masker fra ? Venlig hilsen Anne Marie
22.09.2019 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hej Anne Marie, du er midt på bagstykket, strikker de sidste 40 masker på bagstykket, sætter 58 m på en tråd til højre ærme, slår masker op under ærmet, strikker maskerne over forstykket, og sætter 58 masker på en tråd i den anden side til ærme, slår nye masker op under det andet ærme og strikker de sidste masker på bagstykket. Her klipper du tråden, så omgangen nu starter midt under det ene ærme. Se også gerne vores video :) God fornøjelse!
25.09.2019 - 12:13
Ivonne skrifaði:
Hallo! Wie kann ich die Garnmenge berechnen wenn ich den Pulli aus Garngruppe C stricken möchte? Dann benötige ich ja nur einen Faden statt der angegebenen 2 Fäden in A+A. Danke!
19.09.2019 - 09:55DROPS Design svaraði:
Liebe Ivonne, hier wird erklärt, wie man die neue Garnmenge kalkuliert. Viel Spaß beim stricken!
19.09.2019 - 09:56
Jessica skrifaði:
Ska modellen stickas med två trådar från två olika garner rakt igenom eller är det bara på vissa partier? Hur kommer det sig att det är olika åtgång på de två föreslagna garnerna?
22.07.2019 - 16:28DROPS Design svaraði:
Hej Jessica, Ja du stickar med 2 trådar, en av varje kvalitet rakt igenom. Det är olika antal meter pr gram (nystan), så du behöver olika antal gram. Lycka till :)
09.08.2019 - 10:23
Pascale skrifaði:
Is the diagram reflecting the real measurements at the neck level? The raglan looks more like a "real" or almost contiguous sleeve on the lady and the colar larger than the diagram shows.
09.03.2019 - 13:58DROPS Design svaraði:
Dear Pascale, the diagram is just a schematics to show the measurements, and the picture rflects how the sweater actually sits on a realfigure. The slightly curved raglan line reflects the effect of putting a real arm in the sleeves and the weight of the sweater pulling it down. Happy knitting!
10.03.2019 - 16:43
Dana skrifaði:
Please, post this one
27.02.2019 - 12:55
Chantal skrifaði:
Romantic
20.02.2019 - 22:43
Rossana skrifaði:
Presto a tradurlo!!!! Non vedo l'ora di farlo!!!
01.02.2019 - 23:04
Soft Moonlight#softmoonlightsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu og blöðruermum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,25. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-100 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 100-104-108-116-120-120 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin er notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 18-19-20-22-23-23 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 36-38-40-44-46-46 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 18-19-20-22-23-23 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í 2. Umferð með sléttprjóni er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-18-21-22-25-27 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 220-248-276-292-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 33-36-40-43-48-52 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 44-52-58-60-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 66-72-80-86-96-104 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-52-58-60-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 33-36-40-43-48-52 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-172-188-208-228 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hliðinni á stykkinu, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 160-172-192-208-228-248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-52-58-60-64-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjurnar undir ermi. Prjónamerki á að nota síðar þegar aukið er út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-3½-3-3½-2½-3 cm millibili alls 15-11-12-10-12-11 sinnum = 80-80-88-88-96-96 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-44-43-41-40-39 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm (eða að óskaðri lengd) – passið uppá að stroffið sé ekki prjónað of laust. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 50-48-47-45-44-43 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softmoonlightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.