DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Lemon Heart

Prjónað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og garðaprjóni.

DROPS 200-19
DROPS Design: Mynstur bs-149
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Hæð mæld meðfram miðju lykkju ca 76 cm. Lengd meðfram efri hlið ca 152 cm.

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250 g litur 2110, ljós gulur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út með uppslætti, uppslættirnir eru prjónaðir slétt í næstu umferð svo það myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.21. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónað er ofan frá og niður með gatamynstri og útaukningu.

SJAL:
Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 3 með med BabyAlpaca Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkjuna.
Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT því sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu þannig – sjá ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjuna. Aukið svona út þar til 57 lykkjur eru í umferð (þ.e.a.s. það eru 28 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 kantlykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni.

Prjónið mynsturteikningu A.1-A.3 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.3 yfir 2 lykkjur og prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 þar til eftir eru 4 lykkjur á prjóni, prjónið A.3 yfir 2 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 87 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.4-A.6 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (4 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (4 sinnum á breidd). Prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 111 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu 2 sinnum til viðbótar á hæðina þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur. A.5 er prjónað 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 135 lykkjur í umferð.
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 8 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkjuna í sléttprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 8 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 159 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.7-A.9 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 1 lykkju, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.9 yfir 1 lykkju, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, prjónið A.7 yfir 1 lykkju, prjónið A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.9 yfir 1 lykkju og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 171 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.10-A.12 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 yfir 6 lykkjur, prjónið A.11 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (7 sinnum á breidd), prjónið A.12 yfir 7 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.10 yfir 6 lykkjur, prjónið A.11 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (7 sinnum á breidd), prjónið A.12 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 231 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.13-A.15 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (10 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (10 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 259 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.16-A.18 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.16 yfir 1 lykkju, prjónið A.17 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.18 yfir 2 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.16 yfir 1 lykkju, prjónið A.17 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.18 yfir 2 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 291 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.4-A.6 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (21 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (21 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 315 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina þannig:
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (23 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (23 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Nú eru 339 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.19-A.20 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.19 yfir 5 lykkjur, prjónið A.20 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (13 sinnum á breidd), prjónið A.21 yfir 6 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.19 yfir 5 lykkjur, prjónið A.20 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (13 sinnum á breidd), prjónið A.21 yfir 6 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 411 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu A.13-A.15 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (19 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 6 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (19 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 439 lykkjur í umferð.

Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu *. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.

Í næstu umferð frá réttu er fellt laust af. Til að kanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.05.2019
Leiðrétting: Mynsturteikning A.19, A.20 og A.21 hefur verið leiðrétt þannig að gatamynstrið sé prjónað frá réttu.
Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2019
Mynsturteikning A.19 og A.20 hefur verið leiðrétt

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Það á að myndast gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Natalia wrote:

Dzień dobry, Czy chustę tę można w jakiś sposób powiększyć? :)

28.03.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Witaj Natalio, oczywiście. Należy powtarzać sekwencję wzoru wg schematów A.4-A.6 przez cały rząd. Pozdrawiamy!

29.03.2023 - 08:12

country flag Céline wrote:

Bonjour, À l’aide svp? Quelqu’un pourrait-il me dire : 1) Combien de metre/verge de fils nécessaire pour le châle Lemon Heart Drop 200-19? 2) Et à quoi correspond le fils demandé : DROPS BABYALPACA SILK de Garnstudio (appartient au groupe de fils A) 250 g ? Est-ce grosseur fingering pour les bas? ou Lace pour dentelle ? ou plus gros ? Est-ce comparable au fil de Laine en folie (65% merino, 15%soie,20%bambou) qui donne 350 mètres pour 100 grammes ? MERCI

14.12.2022 - 00:34

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, retrouvez toutes les caractéristiques de DROPS BabyAlpaca Silk dans son nuancier - toutefois, cette laine n'est plus disponible, vous pouvez alors utiliser notre convertisseur pour voir les alternatives possibles - demandez conseil à votre magasin DROPS - nous ne connaissons pas l'autre marque, eux peut être. Bon tricot!

14.12.2022 - 08:11

country flag Marie wrote:

Bonjour, Je rencontre un petit problème au niveau du modèle, quand j'arrive à l'avant dernière augmentation de A1/A3 j'arrive à 85 mailles, hors je doit encore augmenter 4 mailles, alors que quand j'ai terminer normalement je doit être a 87 mailles. Merci

16.10.2022 - 04:41

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vérifiez bien votre nombre de mailles dans chaque diagramme, vous devez bien augmenter 1 m dans chaque A.1 et chaque A.3 jusqu'au 13ème rang des diagrammes où vous augmenterez alors 2 m dans chaque A.1 et toujours 1 m dans A.3 pour avoir 10 m dans chaque A.1 et 9 m dans chaque A.2 et ainsi 87 m au total. Bon tricot!

17.10.2022 - 09:56

country flag Doesjka Meijer wrote:

Bij de eerste toer van A.5 moet je tot 8 steken vóór de middensteek breien, maar bij mij zijn dat 10 steken. Wat moet ik met die “te vele” steken doen?? Vriendelijke groet en dank voor de aandacht, Doesjka Meijer

02.08.2022 - 09:38

DROPS Design answered:

Dag Doesjka,

Je zou 8 steken over moeten hebben voor de middelste steek na 4 herhalingen van A.5 in de breedte. Kan het zijn dat er ergens een foutje in is geslopen?

06.08.2022 - 11:47

country flag Lina Falk wrote:

Hej! Jag får inte till ökningarna efter diagram A1-A3. Jag har 57 maskor efter starten. Sen när jag ska öka enligt diagrammen så blir det inte rätt. Vad jag ser så är det 7m×2 =14 totalt på vänster sida sett från rätsidan. Och 7m+8m = 15 maskor på höger sida sett från rätsidan. 57+14+15=86 maskor inte 87 som det står att det ska vara. Vad är det jag missar?

15.11.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Hej Lina. Du stickar A.1 2 gånger på varvet och A.3 2 gånger på varvet (både A.1 och A.3 stickas på båda sidor av mittmaskan). I A.1 har du totalt 8 ökade maskor när diagrammet stickas färdigt, 1 A.3 har du totalt 7 ökade maskor när diagrammet stickats färdigt. Dvs totalt 8+7+8+7= 30 m ökade. 57+30=87 m. Mvh DROPS Design

16.11.2021 - 09:45

country flag Eliza wrote:

Dzień dobry... W opisie pisze, że po oczku środkowym trzeba robić schematy od początku np A1-A3 ale wydaje mi się, że powinno być odbicie lustrzane czyli po oczku środkowym schematy powinny iść np. A3-A1 . I czy jeżeli w pierwszej połowie było zamykanie oczek na prawo to czy w drugiej nie powinno się zamykać oczek w drugą stronę?

09.09.2021 - 15:26

DROPS Design answered:

Witaj Elizo, wszystko jest w porządku, przerabiaj dokładnie tak jak jest napisane w opisie. Oczka są dodawane na bokach szala i z obu stron oczka środkowego, dzięki temu kształt szala będzie odpowiedni. Powodzenia!

10.09.2021 - 10:03

country flag Lisianne RICHARD wrote:

Bonjour, je voudrais savoir si les diagrammes du châle 200-19 sont bons car il y a eu une correction, je vous remercie amitiés

14.08.2021 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour Lisianne, les diagrammes ont ete corriges et ils sont bons. Bon tricot!

15.08.2021 - 20:36

country flag Jørgine Karlsen wrote:

Jeg har problemer med at strikke i slutningen af 10-12 er der fejl?

27.07.2021 - 16:19

DROPS Design answered:

Hej, det skal der ikke være... hvilken pind i diagrammet får du ikke til at stemme?

05.08.2021 - 13:33

country flag Agnieszka wrote:

Dzień dobry. Moje pytanie dotyczy dwóch ostatnich rzędów, czyli zakończenia. Jeden rząd na prawo z dodawaniem oczek a później jeden rząd na prawo na lewej stronie robótki i powtórzyć. Czy ten rząd na prawo przerabiany na lewej stronie robótki ma mieć oczko środkowe robione dżersejem czy już nie? Nie ma informacji o tym w instrukcji.

25.04.2021 - 01:02

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, rząd na prawo przerabiany na lewej stronie robótki nie ma już oczka środkowego przerabianego inaczej. Pozdrawiamy!

26.04.2021 - 08:32

country flag Agnieszka wrote:

W opisie do całości robótki jest informacja aby narzuty w kolejnym rzędzie przerabiać na prawo. Następnie wchodzą schematy, gdzie po rzędzie prawym pełnym narzutów mamy rząd lewy - wszystkie oczka na lewo. Czy w takim wypadku przerabiać wszystkie oczka na lewo (zgodnie ze schematem) czy też wszystkie oczka na lewo poza narzutami, które robić na prawo?

31.12.2020 - 10:36

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, to dodawanie oczek, o którym piszesz dotyczy części ściegiem francuskim na górze szala. Jak zaczniesz wykonywać schematy, to przerabiasz narzuty zgodnie ze schematami. 8-my rząd schematów A.1-A.3 (za rzędem 7 z narzutami) jest przerabiany w całości na lewo (również narzuty). Powodzenia!

31.12.2020 - 11:51