DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blossoming Beauty

Hekluð ferningspeysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-16
DROPS Design: Mynstur cm-109
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L – XL/XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-900-950 g litur 28, púður

HEKLFESTA:
20 stuðlar á breidd og10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. (A.5 á við um stærð XL/XXL og XXXL).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipti út fyrir 3 loftlykkjur. Þessar 3 loftlykkjur teljast sem einn af stuðlum í lykkjufjölda.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í einn stuðul.

ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= stuðull færri).

ÚRTAKA-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 16. Í þessu dæmi þá eru heklaðir ca 15. og 16. hver stuðull saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

FERNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Fyrst er bakstykkið heklað, síðan er hekluð hægri hlið, handvegur og framstykki. Síðan er vinstri hlið hekluð, handvegur og framstykki. Ermar eru heklaðar í hring ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Heklið 163-163-183-183 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Merino. Snúið og heklið mynstur fram og til baka í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S/M og L:
Heklið A.1 yfir fyrstu 6 loftlykkjurnar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, A.2a yfir næstu 24 loftlykkjur, A.3a yfir næstu 108 loftlykkjur (= 3 mynstureiningar), A.4a yfir næstu 19 loftlykkjur, A.1 yfir þær 6 loftlykkjur sem eftir eru í umferð = 138-138 lykkjur.

Stærð XL/XXL og XXXL:
Heklið A.1 yfir fyrstu 6 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, A.2a yfir næstu 24 loftlykkjur, A.3a yfir næstu 108 loftlykkjur (= 3 mynstureiningar), A.4a yfir næstu 19 loftlykkjur, A.5 yfir næstu 20 lykkjur, A.1 yfir þær 6 loftlykkjur sem eftir eru í umferð = 155-155 lykkjur.

Allar stærðir:
ATH: A.1 er heklað í hvora hlið þar til stykkið hefur verið heklað til loka. Fyrsta umferðir sem er hekluð, er hekluð frá réttu, setjið prjónamerki til að merkja hvað sé réttan í stykkinu.
Haldið síðan áfram með A.2b, A.3b, A.4b og A.5b (á við um stærð XL/XXL og XXXL) á hæðina alls 3 sinnum. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga (A.1 er heklað eins og áður í hvorri hlið), jafnframt er aukið út um 1-1-0-0 stuðla í umferð – sjá ÚTAUKNINGU = 139-139-155-155. Stykkið mælist ca 32 cm í öllum stærðum. Klippið frá.
Setjið eitt prjónamerki í síðustu umferð sem var hekluð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

HÆGRI HLIÐ, HANDVEGUR OG FRAMSTYKKI:
Heklið nú áfram frá röngu, þ.e.a.s. það verða 2 umferðir frá röngu á eftir hverri annarri: Heklið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, A.6 fram að næsta A.1, en í síðasta skipti sem A.6 er heklað hoppar síðasta fastalykkjan/loftlykkjan í mynsturteikningu yfir (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið) = 32-32-36-36 mynstureiningar A.6, A.1. Heklið næstu umferð í mynsturteikningu til baka frá réttu. Nú er stærð S/M lokið. Í stærð L, XL/XXL og XXXL eru þessar 2 lykkjur endurteknar þar til heklaðar hafa verið 4-4-6 umferðir í mynstri.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið nú handveg þannig (frá röngu): A.1, heklið 8 mynstureiningar A.6, heklið 36-40-40-44 loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 9-10-10-11 mynstureiningar A.6, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju og haldið síðan áfram með A.6 fram að næsta A.1, en í síðasta skipti sem A.6 er heklað hoppar síðasta fastalykkjan/loftlykkjan í mynsturteikningu yfir (þannig að stykkið verði samhverft innan við A.1 í hvorri hlið), A.1.
Haldið síðan áfram fram og til baka með A.6 og A.1 í hvorri hlið á stykki, yfir lausar 36-40-40-44 loftlykkjur sem voru heklaðar fyrir handveg eru heklaðar 9-10-10-11 mynstureiningar A.6 = alls 32-32-36-36 mynstureiningar A.6 innan við A.1 í hvorri hlið. Endurtakið síðustu 2 umferðir í A.6 þar til stykkið mælist ca 6-8-8-10 cm frá prjónamerki – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð er hekluð eins og síðasta umferð í mynsturteikningu.
Heklið nú 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju (A.1 er heklað í hvora hlið á stykki eins og áður), jafnframt er aukið út um 1-1-0-0 stuðul = 140-140-155-155 lykkjur. Heklið síðan mynstur þannig: A.1, A.7 fram að næsta A.1, en í síðasta skipti sem A.7 er heklað hoppar síðasti stuðullinn í mynsturteikningu yfir (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið), endið með A.1. Þegar A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðir endurteknar í A.7 þar til stykkið mælist 26-28-32-34 cm frá prjónamerki, stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé frá röngu. Heklið nú 1 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju (A.1 er heklað í hvorri hlið eins og áður). Heklið nú mynstur þannig: A.1, A.8 fram að næstu mynstureiningu A.1, en í síðasta skipti sem A.8 er heklað hoppar síðasti stuðullinn í mynsturteikningu yfir (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið), endið með A.1. Í síðustu umferð í A.8 er fækkað um 2-2-0-0 stuðla jafnt yfir = 138-138-155-155 stuðlar. Heklið nú mynstur í mismunandi stærðum þannig:

Stærð S/M og L:
Heklið A.1, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 20 stuðlum (= A.2a), * heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 16 stuðlum (= A.3a) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 16 stuðlum (= A.4a), endið með A.1.
Heklið nú A.2b-A.4b eins og áður innan við A.1 í hvorri hlið. Þegar A.2b-A.4b hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið síðustu umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju innan við A.1 í hvorri hlið á stykki. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 42-44 cm frá prjónamerki (40-40 cm frá handveg):

Stærð XL/XXL og XXXL:
Heklið A.1, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 20 stuðlum (= A.2a), * heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 16 stuðlum (= A.3a) *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 16 stuðlum (= A.4a), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 17 stuðlum (= A.5), endið með A.1. heklið nú A.2b-A.5b eins og áður innan við A.1 í hvorri hlið. Þegar A.2b-A.5b hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið síðustu umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju innan við A.1 í hvorri hlið á stykki.
Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 48-50 cm frá prjónamerki (44-44 cm frá handveg).

VINSTRI HLIÐ, HANDVEGUR OG FRAMSTYKKI:
Heklið út yfir hina hliðina frá loftlykkjuumferð sem var hekluð í byrjun á stykki með byrjun frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 6 loftlykkjur, heklið 2-2-1-1 stuðla í næstu loftlykkju, haldið síðan áfram með 1 stuðul í hverja loftlykkju, þar til 6 lykkjur eru eftir, en hoppið yfir sömu loftlykkjur sem hoppað var yfir í fyrstu umferð á fyrra hlutanum sem var heklaður, heklið A.1 yfir næstu 6 loftlykkjur = 139-139-155-155 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið nú áfram frá röngu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 6 lykkjur, A.6 fram að næsta A.1, en í síðasta skipti sem A.6 er heklað hoppar síðasta fastalykkjan í mynsturteikningu yfir (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið), A.1. Heklið næstu umferð í mynsturteikningu til baka frá réttu. Nú er stærð S/M lokið. Í stærð L, XL/XXL og XXXL er mynstrið endurtekið á hæðina þar til heklaðar hafa verið alls 4-4-6 umferðir í mynstri.

Allar stærðir:
Heklið nú handveg þannig (frá röngu): A.1, heklið 15-14-18-17 mynstureiningar A.6, heklið 36-40-40-44 lausar loftlykkjur fyrir handveg, hoppið yfir næstu 9-10-10-11 mynstureiningar A.6, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju, heklið síðan 8 mynstureiningar A.6, en í síðasta skipti sem A.6 er heklað hoppar síðasta fastalykkjan í mynsturteikningu yfir (þannig að mynstrið verði samhverft í hvorri hlið), endið með A.1 = 32-32-36-36 mynstureiningar A.6 innan við A.1 í hvorri hlið. Haldið síðan áfram fram og til baka með A.6 og A.1 í hvorri hlið á stykki, yfir lausar 36-40-40-44 loftlykkjur sem voru heklaðar fyrir handveg eru heklaðar 9-10-10-11 mynstureiningar A.6 = alls 32-32-36-36 mynstureiningar A.6 innan við A.1 í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með mynstur alveg eins og á hægra framstykki.

ERMI:
Ermar eru heklaðar í hring frá handveg og niður.
Byrjið mitt undir handveg með A.9 (= byrjun á umferð), heklið A.6 (= umferð með loftlykkjubogum + 1 fastalykkju) upp að topp á handveg (= 9-10-10-11 mynstureiningar), heklið 9-10-10-11 mynstureiningar A.6 um loftlykkjuumferð sem var hekluð fyrir handveg = alls 18-20-20-22 mynstureiningar A.6 fyrir ermi. Haldið áfram hringinn svona. Þegar stykkið mælist 4 cm er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Heklið A.9, A.10, heklið A.6 þar til 2 mynstureiningar eru eftir í A.6 í umferð, heklið A.11. Þegar A.10 og A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina hefur fækkað um 2 mynstureiningar A.6 í umferð og nú er pláss fyrir 16-18-18-20 mynstureiningar A.6 í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur og endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 12 cm og 20 cm = 12-14-14-16 mynstureiningar. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 52 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.6. Heklið nú 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju, jafnframt er fækkað um 3-5-5-4 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 45-51-51-60 stuðlar eftir í umferð. Heklið A.8 hringinn í umferð. Ermin mælist ca 56 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í næstu umferð í mynsturteikningu. ATH: lykkjufjöldinn sem er gefinn upp í mynsturteikningu á við frá fyrstu umferð sem er hekluð í mynsturteikningu
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð – byrjið í næstu umferð í mynsturteikningu
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur – í næstu umferð hoppar sú fyrri af þessum 2 loftlykkjum yfir og heklaður er 1 stuðull í síðustu af 2 loftlykkjum
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 7 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Jayne wrote:

I know that this pattern is a drops one but who designed it and is there a urine tutorial for how to make it I know written pattern is here but I like a tutorial to follow please help

13.04.2024 - 02:27

country flag Jette Svensson wrote:

Hej Jeg er virkelig lun på dette mønster, men der er et par ting jeg ikke forstår og tør derfor ikke gå i gang. Første gang man hækler A1 er det så vrangsiden eller retsiden? er luftmaskerne retsiden? Tak

03.04.2024 - 12:26

DROPS Design answered:

Hei Jette. Når man hekler 1. rad av A.1 er dette retten. Altså, du starter fra retten med staver, start fra høyre og hekle mot venstre, (luftmaskerekken er bare oppleggsrekken). mvh DROPS Design

08.04.2024 - 13:12

country flag Lena wrote:

Sizing help please. Is the chest measured all the way around the fullest part of the bust? If so, XXXL size (chest 89cm) seems to correlate to a UK size 10. Is this correct? If so, it's very small. Most professional models are size 8-10 and the rest of us haven't got a hope! Thanks.

10.10.2023 - 11:05

DROPS Design answered:

Dear Lena, in this chart, you can check the total width on back piece (not around the bust), ie from armhole to armhole, back piece will measure 37-41-41-45 cm. Compare to a similar garment you have and like the shape to make sure you choose the correct size. Happy crocheting!

10.10.2023 - 16:22

country flag Emma wrote:

Hello again, I just finished the back piece and im confused as to what im supposed to do next. The pattern says to make 32-32-36-36 repeats of A.6, A.1. but that leaves it with no armholes, am I supposed to make an armhole first and THEN 32 repeats? The order of the pattern seems wrong.

18.08.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Dear Emma, you first work the 32 repeats of A.6 (as under RIGHT SIDE, ARMHOLE AND FRONT PIECE:, then work next row from RS, repeat these 2 rows in size L (4 rows), then work the armhole (starting from WS) as explained under All sizes: below. Happy crocheting!

21.08.2023 - 09:44

country flag Emma wrote:

I don't understand this part of the pattern, what does "2 rows after one another" mean? RIGHT SIDE, ARMHOLE AND FRONT PIECE: Now continue working from the wrong side, i.e. 2 rows after one another

17.08.2023 - 09:19

DROPS Design answered:

Dear Emma, before you cut the yarn at the end of previous row, the last row you worked was a row from wrong side. When you work the right side of piece, you will begin with a row from wrong side too, this means there will be 2 rows from wrong side worked next to each other. Happy crocheting!

17.08.2023 - 10:41

country flag Kayleigh Workman wrote:

Hello I just started this pattern and have completed the back I have now moved to the next section of the pattern right side arm hole and front section . I have stalled here because I don't understand how you have written it please can you tell me where I'm supposed to join for this section please can you help thank you

31.05.2023 - 01:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Workman, place the first part of piece/back piece from wrong side and crochet now A.1 over the first 6 stitches, repeat then A.6 a total of 31-31-36-36 times in width, now work A.6 one more time but over the first 3 stitches only (just make the 5 chain stitches but not the double crochet) and end with A.1 at the end of the row (as before). Continue like this, to create the armhole, you will then crochet chain stitches and skip some repeats of A.6 and then continue as before. Then work A.7 then A.8 between both A.1 on each side. Happy crocheting!

31.05.2023 - 08:26

country flag Kaija Thomassen wrote:

Viser til mitt spørsmål 18/5 og til svar fra dere 23/5. Er det da slik at jeg skal bare overse de ekstra maskene mellom 138 og 163 og ikke ha de med videre? Ellers så har æ jo fulgt oppskriften til punkt og prikke.

27.05.2023 - 13:06

DROPS Design answered:

Hej Kaija, ja det var ekstra masker til kanten. Nu skal du følge diagrammet over de 138 masker ifølge din størrelse :)

29.05.2023 - 11:40

country flag Kaija Thomassen wrote:

Skal hekle modell 200-16. det legges opp 163 masker i str S/M . Men når jeg hekler første rad etter oppskriften så utgjør det bare 138 masker. Kan ikke forstå det, for det skal jo legges opp 163 luftmasker ved start. Hva med de resterende maskene??

18.05.2023 - 10:27

DROPS Design answered:

Hej Kaija, husk at du hopper over en af luftmaskerne ifølge diagrammet. Vi starter altid med flere luftmasker for at kanten ikke skal blive for stram :)

23.05.2023 - 09:58

country flag Fiorella wrote:

Scusate, tornando indietro con le pagine, ho trovato la risposta alla mia domanda... 😊 Buona giornata Fiorela

24.03.2023 - 15:20

DROPS Design answered:

Buonasera Fiorella, la quantità di filato è indicata di fianco alle foto ed è possibile scegliere la lingua del modello nel menù a tendina sotto ogni foto. Buon lavoro!

26.03.2023 - 22:17

country flag Fiorella wrote:

Buongiorno, premesso che non so l'inglese, non ho trovato l'indicazione di quanto filato acquistare per le varie taglie. Grazie Fiorella

24.03.2023 - 15:15

DROPS Design answered:

Buonasera Fiorella, la quantità di filato è indicata di fianco alle foto ed è possibile scegliere la lingua del modello nel menù a tendina sotto ogni foto. Buon lavoro!

26.03.2023 - 22:17