Lucia Blom skrifaði:
Volgens mij klopt het aantal steken niet na in mijn geval 25x meerderen voor het raglangedeelte.\r\n Bij mij zou het op 202 uitkomen. Er staat 302. De andere berekeningen kloppen dus ook niet. Mvg. L. Blom
04.03.2019 - 10:36
Natasja skrifaði:
Meet het werk vanaf de boordsteek. Is dit boorsteek bij gerekend of erboven, is wat dubbel hoe ik het lees... Bedankt voor uw antwoord
26.02.2019 - 20:27DROPS Design svaraði:
Dag Natasja,
Er wordt bedoeld dat je vanaf het begin, dus vanaf het opzetten moet meten. Het staat er inderdaad niet duidelijk, dus ik zal het even aanpassen :). Veel breiplezier!
27.02.2019 - 19:44
Anita Thorsén skrifaði:
Kan i hjælpe mig med om jeg skal strikke en str S eller M, når brystmålet er 95 cm, ærmelængde er 52 cm , længde er 52. Vh Anita
18.02.2019 - 13:16
Jette Pedersen skrifaði:
Skal den strikkes med enkelt eller dobbelt garn ?
14.02.2019 - 12:35DROPS Design svaraði:
Hej Jette, den er strikket i enkelt garn. God fornøjelse!
14.02.2019 - 14:35
Natasja skrifaði:
Heb je de naalden zonder knop ook nodig of kan dat ook met de rondbreinaald?
14.02.2019 - 09:28DROPS Design svaraði:
Dag Natasja,
Het hangt een beetje van je maat af, maar deze kan je ook wel op de rondbreinaald doen. Als er te weinig steken op de naald zijn, dan moet je even een 'lus' in de draad van der rondbreinaald maken.
14.02.2019 - 13:38
Katka skrifaði:
Prosím bude aj prelozeni do češtiny?
13.02.2019 - 19:36DROPS Design svaraði:
Milá Katko, návod je nyní dostupný i v češtině. Příjemné pletení! Hana
23.04.2019 - 19:04
Solveig Kongsmark skrifaði:
Hej Skal der ikke bruges flere nøgler gråt garn end af de øvrige farver. I opskriften er det samme antal af alle farver. Mvh. Solveig
25.01.2019 - 23:34DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, nej du skal ikke bruge flere nøgler af den grå, den grå skal kun bruges øverst på bærestykket, den du ser mellem de 2 gule er jeansblå. God fornøjelse!
30.01.2019 - 09:17
Olga Spies skrifaði:
Text fällt? !
24.01.2019 - 09:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Spies, danke für de Hinweis, die Anleitung kommt bald! Viel Spaß beim stricken!
24.01.2019 - 10:37
Monica skrifaði:
Lättstickad randig tröja.
05.01.2019 - 15:32
Irena skrifaði:
Cudowny sweterek i pięknie skomponowane kolory. Muszę mieć !
04.01.2019 - 20:03
Bee Stripes#beestripessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 24. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 24. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR: Prjónið 3 cm með litnum svartur eftir stroff. Prjónið síðan rendur í 10½-10½-11-11½-12-13 cm í þessari röð: grár, sítróna, gallabuxnablár og karrí. Þegar rendurnar hafa verið gerðar til loka er prjónað áfram með litnum svartur. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þannig: Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá hálsmáli og niður að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og er síðan prjónað hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. PEYSA: Fitjið upp 96-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 92-102-104-108-112-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem prjónamerki eru sett í stykkið sem merkja laskalínu þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, setjið 2. prjónamerki eftir 10 lykkjur, setjið 3. prjónamerki eftir 36-41-42-44-46-48 lykkjur, setjið 4. prjónamerki eftir 10 lykkjur. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (10 lykkjur í hvorri ermi og 36-41-42-44-46-48 í hvoru fram- og bakstykki). Prjónið síðan í sléttprjóni, RENDUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, við hvert prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-25-28-30-33-35 sinnum = 284-302-328-348-376-396 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-29 cm frá eftir stroff. Nú skiptist stykkið frá byrjun á umferð þannig (= við 1. prjónamerki): Setjið næstu 58-60-66-70-76-80 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn og prjónið yfir 84-91-98-104-112-118 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 58-60-66-70-76-80 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn og prjónið næstu 84-91-98-104-112-118 lykkjur fram að byrjun á umferð (= bakstykki) = 184-198-216-228-248-264 lykkjur í umferð. Til að skiptingin á röndum sjáist eins lítið og mögulegt er, prjónið fram og byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð. Haldið áfram með rendur og sléttprjón þar til rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, héðan er svo afgangur af stykki prjónaður með litnum svartur. Þegar stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu undir ermi, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-6-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-232-252-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 58-60-66-70-76-80 lykkjur af þræði á hringprjón 5, prjónið að auki upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur í nýjar lykkjur sem fitjaðar vor upp í hlið á fram- og bakstykki = 66-68-76-80-88-94 lykkjur. Til að skiptingin á röndum sjáist eins lítið og mögulegt er, byrjar umferðin mitt í lykkjum sem prjónaðar voru upp. Setjið eitt prjónamerki mitt í þessar lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – SJÁ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 11-11-14-15-18-20 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. ATH! Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, prjónið afgang af stykki í litnum svartur. Prjónið þar til stykkið mælist 38-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út jafnt yfir um 4-6-4-6-4-6 lykkjur = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beestripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.