DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bee Stripes

Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-3
DROPS Design: Mynstur sk-029
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-100-100-100-150-150 g litur 05, svartur
50-100-100-100-150-150 g litur 04, grár
50-100-100-100-150-150 g litur 16, sítróna
50-100-100-100-150-150 g litur 12, gallabuxnablár
50-100-100-100-150-150 g litur 17, karrí

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Sky 14, 13, 18, 12, 01.
B) DROPS Sky 05, 08, 02, 14, 01.
C) DROPS Sky 03, 19, 01, 02, 18.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 24.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 24. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

RENDUR:
Prjónið 3 cm með litnum svartur eftir stroff. Prjónið síðan rendur í 10½-10½-11-11½-12-13 cm í þessari röð: grár, sítróna, gallabuxnablár og karrí. Þegar rendurnar hafa verið gerðar til loka er prjónað áfram með litnum svartur.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þannig: Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá hálsmáli og niður að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og er síðan prjónað hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

PEYSA:
Fitjið upp 96-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 92-102-104-108-112-116 lykkjur.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem prjónamerki eru sett í stykkið sem merkja laskalínu þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, setjið 2. prjónamerki eftir 10 lykkjur, setjið 3. prjónamerki eftir 36-41-42-44-46-48 lykkjur, setjið 4. prjónamerki eftir 10 lykkjur. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (10 lykkjur í hvorri ermi og 36-41-42-44-46-48 í hvoru fram- og bakstykki).
Prjónið síðan í sléttprjóni, RENDUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, við hvert prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-25-28-30-33-35 sinnum = 284-302-328-348-376-396 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-29 cm frá eftir stroff. Nú skiptist stykkið frá byrjun á umferð þannig (= við 1. prjónamerki): Setjið næstu 58-60-66-70-76-80 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn og prjónið yfir 84-91-98-104-112-118 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 58-60-66-70-76-80 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur á prjóninn og prjónið næstu 84-91-98-104-112-118 lykkjur fram að byrjun á umferð (= bakstykki) = 184-198-216-228-248-264 lykkjur í umferð. Til að skiptingin á röndum sjáist eins lítið og mögulegt er, prjónið fram og byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð. Haldið áfram með rendur og sléttprjón þar til rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, héðan er svo afgangur af stykki prjónaður með litnum svartur.
Þegar stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu undir ermi, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-6-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-232-252-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 58-60-66-70-76-80 lykkjur af þræði á hringprjón 5, prjónið að auki upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur í nýjar lykkjur sem fitjaðar vor upp í hlið á fram- og bakstykki = 66-68-76-80-88-94 lykkjur. Til að skiptingin á röndum sjáist eins lítið og mögulegt er, byrjar umferðin mitt í lykkjum sem prjónaðar voru upp. Setjið eitt prjónamerki mitt í þessar lykkjur. Haldið áfram með rendur og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – SJÁ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 11-11-14-15-18-20 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. ATH! Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, prjónið afgang af stykki í litnum svartur.
Prjónið þar til stykkið mælist 38-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út jafnt yfir um 4-6-4-6-4-6 lykkjur = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 42-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bee Stripes

Caroline, United Kingdom

Bee Stripes

@flamcsi_knitthings, Hungary

Candy Stripes

Kat, Ireland

Bee Stripes Wasp Bitten

Ingrid, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Mie wrote:

Hvorn stort er garnforbruget, hvis man vælger ensfarvet? Eller kun 2 farver.

10.09.2019 - 19:25

DROPS Design answered:

Hej Mie, Du kan bruge samme garnforbrug som i DROPS 202-8 - God fornøjelse :)

12.09.2019 - 10:09

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, Est-il possible de réaliser ce modèle en fausses côtes anglaises ? Merci

23.05.2019 - 07:56

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, ce modèle a été écrit pour du jersey, la tension en hauteur (et éventuellement en largeur) sera différente avec des fausses côtes anglaises, et les explications risquent de ne pas s'appliquer - retrouvez ici tous nos pulls en fausses côtes anglaises/côtes anglaises . Bon tricot!

23.05.2019 - 09:52

country flag Frederika wrote:

Ik begrijp niet goed hoe ik, bij het verdelen van het werk voor de armsgaten, de overgang tussen de strepen niet zichtbaar laat zijn. Moet ik de helft van de nieuw opgezette steken overslaan? En geldt dat ook voor het andere armsgat? En zo ja, wat doe ik met de overgeslagen steken?

08.05.2019 - 17:47

DROPS Design answered:

Dag Frederika,

Het begin van de naald was eerst bij een raglan en vanaf de scheiding met de mouwen is het begin onder de arm, zodat de overgangen van kleur niet opvallen. Je hoeft geen steken over te slaan. Als je wisselt van kleur doe je dat in het midden van de steken onder de arm.

17.06.2019 - 15:51

country flag Ranveig Borgestrand wrote:

Hei jeg strikker str M . Er det riktig at alle partien skal være 10,5 cm ? Da blir den 44 cm før det svarte. De blir veldig kort 😂

08.05.2019 - 17:08

DROPS Design answered:

Hei Ranveig. Det stemmer at stripene måler 10,5 cm. Du strikker først 6 cm i sort (3 cm vrangbord + 3 cm glattstrikk). Videre strikkes 4 striper a 10,5 cm: 42 cm striper. Dvs den totale lengde på plagget = 48 cm når du bytter til sort igjen. God fornøyelse

10.05.2019 - 07:56

country flag Vicki wrote:

There are several different colour options shown. What are the actual colours used in the one with black, grey, pink / lilac?

01.05.2019 - 13:00

DROPS Design answered:

Dear Vicki, you can find the colour combinations just below the needle used. Anyway the colour combination you required is B) DROPS Sky 05, 08, 02, 14, 01. Happy knitting!

01.05.2019 - 13:10

country flag Bente wrote:

Jeg vil gerne strikke den i farvekombination B. Hvilke farver/ numre er det?

23.04.2019 - 16:17

DROPS Design answered:

Hej. Färgkombination B är dessa färger: DROPS Sky 05, 08, 02, 14, 01.

25.04.2019 - 10:59

country flag Anita Thorsén wrote:

Jeg skrev til jer 18/2 og har ikke fået noget svar??

14.04.2019 - 22:12

DROPS Design answered:

Hei Anita. Beklager sent svar. Om du velger "spørsmål" isteden for "kommentar" når du skriver til oss, vil vi se spørsmålet ditt mye raskere. Det ligger en målskisse nederst på siden, med alle plaggets mål i alle størrelser. Om brystvidden er 95 cm rundt, blir dette bli 47,5 cm tvers over. Det blir opp til deg hvor tettsittende du ønsker genseren: S = 48 cm og M = 52 cm, målt tvers over. Lengden er henholdsvis 52 og 56 cm, men dette kan justeres etter ønske. God fornøyelse

23.04.2019 - 12:04

country flag Monica wrote:

Buongiorno, potrei avere le misure degli aumenti/ diminuzioni considerando che il mio campione 10 x10 è fatto di 23 maglie x 25 ferri? Grazie!

03.04.2019 - 23:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica, purtroppo non possiamo fornire un aiuto più personalizzato. Affinché il capo risulti come quello mostrato deve raggiungere la tensione indicata nel modello. In caso contrario può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia per avere tutta l'assistenza necessaria. Buon lavoro!

04.04.2019 - 08:35

country flag Van wrote:

Ou puis je trouver le nombre de pelotes necessaires ? Merci

16.03.2019 - 02:01

DROPS Design answered:

Bonjour Van! Cela depend de votre taille. Dans la taille S il vous faut au total 250 g (5 pelotes), un dans chaque couleur. Dans la taille XXXL, il vous faut au total 750 g (15 pelotes), trois dans chaque couleur. Bon travail!

18.03.2019 - 07:34

country flag Hilde Van Boven wrote:

Meet 20cm vanaf opzet, moet dat toch niet van onder de boord zijn? De lengte wordt dan vanaf dat punt gemeten, 23cm + 5 cm boord Dan kom je toch nooit aan een totale lengte van 54cm?

10.03.2019 - 19:18

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Als er verder niets bij staat, dan meet je vanaf de opzetrand. Maar soms staat er bij dat je vanaf een bepaald punt moet meten, bijvoorbeeld vanaf de scheiding van de mouwen en het lijf. Ik vermoed dat je het laatste bedoelt.

12.03.2019 - 15:36