Green Tea#greenteasweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 196-32 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinniuppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (á við um síðustu umferð á undan kanti í hálsi): Til þess að úrtakan verði falleg á undan kanti í hálsmáli er lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman þar sem prjónað er slétt og lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman þar sem prjónað er brugðið. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið fyrst um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 8 lykkjur færri í umferð) þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á fram- /bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á fram-/bakstykki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á ermi þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á ermi þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Þegar lykkjum hefur verið fækkað 10-12-13-14-17-19 sinnum heldur úrtaka áfram eins og áður á ermum og á bakstykki en nú er fækkað um 2 lykkjur hvoru megin á framstykki (= 10 lykkjur færri í umferð) þannig: Fækkið um 2 lykkjur á eftir prjónamerki á framstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki á framstykki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 1 lykkja slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-150-162-174-186 lykkjur á hringprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 45-51-57-63-69-75 lykkjur, prjónið A.1 (= 45 lykkjur), prjónið (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir þær 42-48-48-54-60-66 lykkjur sem eftir eru. Haldið áfram hringinn þar til 1 umferð er eftir í A.1. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 45-51-57-63-69-75 lykkjur og fækkið um 9-11-12-13-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðustu umferð í A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir þær 42-48-48-54-60-66 lykkjur sem eftir eru og fækkið um 7-9-6-9-8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 117-125-133-141-153-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið nú A.2 (= 46 lykkjur) yfir A.1 og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm er sett 1 prjónamerki 9-11-13-15-18-21 lykkjur á undan A.2 og 9-11-13-15-18-21 lykkjur á eftir A.2 (= í hvorri hlið). Nú eru 64-68-72-76-82-88 lykkjur á framstykki og 53-57-61-65-71-77 lykkjur á bakstykki. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-5.-5.-5. hverri umferð alls 3-3-3-2-2-2 sinnum = 105-113-121-133-145-157 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING = 109-117-125-137-149-161 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið fyrir handveg (= 6 lykkjur undir hvorri ermi). Nú eru 54-58-62-68-74-80 lykkjur á framstykki og 43-47-51-57-63-69 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 24-24-24-30-30-30 lykkjur á sokkaprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 22-22-24-28-28-30 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjón 9. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10-9-10-10-7 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-5.-5.-5.-3.-3. hverri umferð alls 6-8-8-7-10-11 sinnum = 34-38-40-42-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 42-46-48-50-56-60 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur undir ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 36-40-42-44-50-54 lykkjur. Ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg= 169-185-197-213-237-257 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkið). Byrjið umferð í skiptingu á milli vinstri ermi og bakstykkis. Haldið áfram með mynstur á framstykki eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4-2-2-4-2-1 umferðir byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-17-19 sinnum = 89-89-93-101-101-105 lykkjur. Haldið síðan áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður á ermum og bakstykki og nú er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið fyrir laskalínu á framstykki. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 49-49-53-61-61-65 lykkjur. Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 á framstykki eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu er lokið er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur á bakstykki og fækkið um 1-0-1-3-2-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 8 lykkjur á ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjur á framstykki og fækkið um 4-3-4-6-5-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA-2 og munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir 8 lykkjur á ermi = 44-46-48-52-54-56 lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá hálsmáli við miðju að framan og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-6-2-6-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.