DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Tea

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-32
DROPS Design: Mynstur ee-637
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-750-850-950 g litur 06, ólífa

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9: sléttprjón/mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinniuppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2 (á við um síðustu umferð á undan kanti í hálsi):
Til þess að úrtakan verði falleg á undan kanti í hálsmáli er lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman þar sem prjónað er slétt og lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman þar sem prjónað er brugðið.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið fyrst um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 8 lykkjur færri í umferð) þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á fram- /bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á fram-/bakstykki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt.
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki á ermi þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki á ermi þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

Þegar lykkjum hefur verið fækkað 10-12-13-14-17-19 sinnum heldur úrtaka áfram eins og áður á ermum og á bakstykki en nú er fækkað um 2 lykkjur hvoru megin á framstykki (= 10 lykkjur færri í umferð) þannig:
Fækkið um 2 lykkjur á eftir prjónamerki á framstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki á framstykki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 1 lykkja slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-144-150-162-174-186 lykkjur á hringprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 45-51-57-63-69-75 lykkjur, prjónið A.1 (= 45 lykkjur), prjónið (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir þær 42-48-48-54-60-66 lykkjur sem eftir eru. Haldið áfram hringinn þar til 1 umferð er eftir í A.1. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 45-51-57-63-69-75 lykkjur og fækkið um 9-11-12-13-14-14 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðustu umferð í A.1, prjónið sléttar lykkjur yfir þær 42-48-48-54-60-66 lykkjur sem eftir eru og fækkið um 7-9-6-9-8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 117-125-133-141-153-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið nú A.2 (= 46 lykkjur) yfir A.1 og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 9 cm er sett 1 prjónamerki 9-11-13-15-18-21 lykkjur á undan A.2 og 9-11-13-15-18-21 lykkjur á eftir A.2 (= í hvorri hlið). Nú eru 64-68-72-76-82-88 lykkjur á framstykki og 53-57-61-65-71-77 lykkjur á bakstykki. Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-5.-5.-5. hverri umferð alls 3-3-3-2-2-2 sinnum = 105-113-121-133-145-157 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING = 109-117-125-137-149-161 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm í öllum stærðum. Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið fyrir handveg (= 6 lykkjur undir hvorri ermi). Nú eru 54-58-62-68-74-80 lykkjur á framstykki og 43-47-51-57-63-69 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-24-30-30-30 lykkjur á sokkaprjón 8 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 22-22-24-28-28-30 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjón 9. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10-9-10-10-7 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-5.-5.-5.-3.-3. hverri umferð alls 6-8-8-7-10-11 sinnum = 34-38-40-42-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 42-46-48-50-56-60 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur undir ermi (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 36-40-42-44-50-54 lykkjur. Ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg= 169-185-197-213-237-257 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkið). Byrjið umferð í skiptingu á milli vinstri ermi og bakstykkis.
Haldið áfram með mynstur á framstykki eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4-2-2-4-2-1 umferðir byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýring að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-17-19 sinnum = 89-89-93-101-101-105 lykkjur. Haldið síðan áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður á ermum og bakstykki og nú er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið fyrir laskalínu á framstykki.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 49-49-53-61-61-65 lykkjur. Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna kaðla í A.2 á framstykki eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar lykkjur.
Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu er lokið er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur á bakstykki og fækkið um 1-0-1-3-2-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 8 lykkjur á ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjur á framstykki og fækkið um 4-3-4-6-5-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA-2 og munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir 8 lykkjur á ermi = 44-46-48-52-54-56 lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá hálsmáli við miðju að framan og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-6-2-6-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 48-48-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðin af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjon framan við stykkið, 1 lykkja brugðin, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kúla -prjónið þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur. Steypið síðan 2. lykkju á hægri prjóni yfir 1. lykkjuna, síðan er 3. lykkjunni steypt yfir 1. lykkjuna, síðan er 7. lykkjunni steypt yfir 1. lykkjuna og að lokum er 5. lykkjunni steypt yfir 1. lykkjuna (= 1 lykkja eftir).
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Green Tea

Frau Strick Strickt, Germany

Green Tea

Simoneet, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Camilma wrote:

Hei! Kan det stemme at bolen bare skal måle 27 cm før felling til armhull?

31.12.2018 - 09:47

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Ja, det stemmer at bolen måler 27 cm før du feller til ermhull. Det kan du også se på målskissen nederst på siden. Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du strikker bolen lenger om du ønsker det, men vær da obs på at dette øker garnforbuket. God fornøyelse

02.01.2019 - 15:43

country flag Anneli Östman wrote:

Hej, Blir det bra att byta ut garnet Eskimo mot Drops Air i tröjmönstret DROPS / 196 / 32, Green Tea? Mvh Anneli

06.12.2018 - 18:49

country flag Ann Van Gampelaere wrote:

Eindelijk een trui die een beetje is ingenomen in de taille. De wol is besteld. Prachtig!

20.11.2018 - 11:34

country flag Maureen ORourke wrote:

Neat fitted pattern looks lovely.

04.07.2018 - 09:17

country flag Agnès wrote:

Magnifique ! A quand les explications ?

21.06.2018 - 08:56

country flag Charlotte wrote:

Prachtig

17.06.2018 - 23:08

country flag Tanja wrote:

Flott i tjukt garn. Perfekt til vinter og kulde.

10.06.2018 - 00:53

country flag Angela wrote:

Sempre attratta dalle trecce e dagli intrecci sicuramente proverò a farlo proprio in verde il mio colore preferito

08.06.2018 - 12:31

country flag Ľudmila Hoffmanová wrote:

Very nice. Please pattern in Czech:-)

06.06.2018 - 22:11

country flag Anne wrote:

Must have - nice and chunky pattern.

06.06.2018 - 20:24