DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 143-38
DROPS Design: Mynstur nr ne-092
Garnflokkur C + C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 0618, camel
150-150-200-200-200-200 gr litur nr 2923, skærgulur
150-150-200-200-200-200 gr litur nr 2920, appelsínugulur
Og einnig:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
300-300-300-400-400-400 gr litur nr 912, súkkulaði
Og einnig:
DROPS ALPACA BOUCLE frá Garnstudio
100 gr í allar stærðir litur nr 2020, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st á breiddina og 5½ umf á hæðina verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Rendur eru heklaðar þannig: * Heklið 1 umf með litnum appelsínugulur Nepal, 1 umf Big Fabel, 1 umf með litnum skærgulur Nepal, 1 umf Alpaca Bouclé, 1 umf Big Fabel, 1 umf með litnum camel Nepal *, endurtakið frá *-* til loka.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi):
Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum í byrjun umf með því að hekla kl yfir þá st sem fækka á. Fækkið lykkjum í lok umf með því að hekla þar til eftir verður sá fjöldi st sem fækka á, snúið við.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 8 ll með litnum appelsínugulur Nepal með heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið með litnum appelsínugulur Nepal. Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um hringinn, * 4 ll, 3 st um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 4 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: LESIÐ RENDUR! Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, * 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, *2 ll, hoppið yfir 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 2 st, endið með kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, * 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 ll um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st,* 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, endið með einni kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st,* 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st*, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st um næsta ll-boga, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Endurtakið umf 5 og 6, með útaukningu, það verða 2 st-hópar fleiri á milli horna í annarri hverri umf.

HANDVEGUR:
Þegar ferningurinn mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm er heklað þannig – passið uppá að þetta er umf sem er hekluð sem umf 5: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni, heklið 2 st, 4 ll, 2 st í hornið. Heklið nú ll að miðjunni í næstu hlið – heklið 1 ll yfir hvern st/ll að st í miðju, heklið 1 st í miðju st og heklið að þriðja horni eins og áður, heklið að miðju í næstu hlið, heklið nú 1 ll yfir hvern st/ll að fjórða horni, heklið 2 st, 4 ll, 2 st í hornið, og heklið að byrjun umf eins og áður. Í næstu umf er heklað eins og áður, um ll-bogann fyrir handveg er heklaður 1 st um hverja ll.

Haldið áfram eins og áður þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum fyrir handveg), passið uppá að síðasta umf er hekluð eins og umf 5. Klippið frá, nú er heklað fram og til baka milli fyrsta og annars horns. Heklið frá fyrsta horni þannig: Heklið 2 st um ll-boga í horninu, 1 st í hvern st/ll fram að öðru horninu, 2 st um ll-boga í hornið. Snúið við og heklið til baka, haldið áfram með mynstur eins og í umf 5 og 6. Haldið áfram svona þar til heklað hefur verið fram og til baka (án útaukninga) í 19-20-21-22-23-24 cm, klippið frá. Endurtakið í hinni hliðinni, nú er heklað fram og til baka frá þriðja að fjórða horni. Að lokum er hekluð ein umf með litnum camel hringinn í kringum ferninginn, heklið 1 st í hvern st, um ll-boga í hverju horni eru heklaðir 4 st.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka með litnum camel. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
Heklið 44-44-46-46-49-49 lausar ll (meðtaldar eru 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal.
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll*, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 5-5-0-0-3-3 ll, hoppið yfir 1 ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 4-4-0-0-2-2 ll = 36-36-38-38-40-40 st. Heklið nú 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6-5-5-4-4-3½ cm millibili 6-8-8-9-10-11 sinnum til viðbótar = 50-54-56-58-62-64 st. Heklið þar til stykkið mælist 49 cm (sama mál í öllum stærðum vegna breiðari axla á fram- og bakstykkjum í stærri stærðum). Nú er lykkjum fækkað í byrjun og lok hverrar umf fyrir handveg – SJÁ ÚRTAKA: Heklið 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 3 st 1 sinni = 30-34-36-38-42-44 st eftir. Klippið frá og festið enda, ermin mælist nú ca 56 cm í öllum stærðum.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar saman. Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.11.2012
FRAM- OG BAKSTYKKI: UMFERÐ 4: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvern og einn af 2 næstu st, * 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern og einn af 2 næstu st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 ll um sama ll-boga...
Yfirfarið á vefsvæði: 06.05.2013
HANDVEGUR: Haldið áfram eins og áður þar til ferningurinn mælist 78-80-82-84-86-88 cm x 78-80-82-84-86-88 cm (þ.e.a.s. 21 cm í öllum stærðum fyrir handveg), passið uppá að síðasta umf er hekluð eins og umf 5. Klippið frá, nú er heklað fram og til baka milli fyrsta og annars horns. Heklið frá fyrsta horni þannig: Heklið 2 st í ll-boga í horninu, 1 st í hvern st/ll fram að öðru horninu, 2 st um ll-boga í hornið....
Yfirfarið á vefsvæði: 04.12.2013
UMFERÐ 6: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvern og einn af 2 næstu st,* 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern og einn af 3 næstu st, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern og einn af 2 næstu st, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Marika wrote:

Vorrei provare a realizzare questo cardigan con il filato brushed alpaca silk. Non so se è una buona idea! Per calcolare quanto filato devo acquistare, sommo i 3 tipi di filato nella descrizione e poi uso il convertitore?

26.07.2021 - 22:44

DROPS Design answered:

Buonasera Marika, può usare 3 capi di Brushed Alpaca Silk. Per calcolare la quantità deve trovare il metraggio totale utilizzato con i filati indicati nel modello per la sua taglia, poi calcolare il numero di gomitoli di Brushed Alpaca silk necessari. Buon lavoro!

29.07.2021 - 09:56

country flag Fabiana Luchete wrote:

Não tem gráfico da parte das costas???

12.02.2021 - 20:12

country flag Barb Alber wrote:

Is it possible to crochet this without the sleeves?

17.04.2018 - 01:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Albert, it's probably possible, you may like then to just crochet a small finishing edge around both armholes. Happy crocheting!

17.04.2018 - 09:19

Gen Hart wrote:

Hello, I’m working on my first sleeve and not sure if I’m on the right track... This section here... “repeat inc every 6-5-5-4-4-3½ cm / 2 3/8"-2"-2"-1½"-1½"-1 1/4" 6-8-8-9-10-11 more times = 50-54-56-58-62-64 dc.” I’m making the second size so in need to increase every 5cm. My question is, do I crochet 5cm then increase the next row or increase on the row which makes 5cm? I hope I’m making sense! Thank you!

16.03.2018 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Gen, I would crochet 5 cm and increase in the next row. The next time start measuring from the row in which the increase was done. I hope this helps. Happy crocheting!

17.03.2018 - 12:15

country flag Karen wrote:

Jullie hebben ooit gezegd dat het haken tussen eerste en tweede hoek moest zijn in plaats van haken tussen tweede en derde hoek. Maar er is volgens mij nog iets blijven hangen van deze zin in het patroon : ==> Knip de draad af, haak nu heen en weer tussen de eerste en tweede hoek. Haak vanaf de eerste hoek als volgt: 2 stk in de l-lus in de hoek, 1 stk in elk stk/l tot de derde hoek Het voorlaatste woord moet tweede hoek zijn ipv derde hoek. Klopt ?

29.04.2016 - 15:00

Adriana wrote:

I understand the sizes are S - M - L - XL - XXL - XXXL. But with knowing that, what size in inches would each size be?

25.04.2016 - 07:40

DROPS Design answered:

Dear Adriana, scrolling down the page, you can find a measurement chart, compare it with a similar garment you have, and you'll find the right size. Happy crocheting!

25.04.2016 - 10:32

Ximena Gomez wrote:

Buenas tardes, estoy feliz por haberlos encontrado, estoy en el proceso del segundo proyecto y estoy encantada, pero ya tengo una pregunta: no me es muy clara la forma de hacer la manga, no entiendo esto de "hasta que resten 5-5-0-0-3-3 cadenetas...", me podrian ayudar con esto? Muchas gracias.

09.04.2016 - 03:44

DROPS Design answered:

Hola Ximena. Aquí quiere decir: " hasta que queden por trabajar 5-5-0-0-3-3 cadenetas en la fila". Cada número corresponde a una talla (S – M – L – XL – XXL – XXXL). Para que el trabajo sea más fácil marca los números que corresponden a la talla elegida antes de empezar la labor.

10.04.2016 - 21:04

country flag Hannelore wrote:

Und gibt es vielleicht ein Foto von diesem Abschnitt?

24.04.2015 - 20:46

DROPS Design answered:

Leider nein. In der Maßskizze ist der senkrechte Strich die Stelle, an der Sie statt des Musters die Lm häkeln (= Armausschnitt) und danach mit dem Muster wie zuvor weiterhäkeln.

03.05.2015 - 12:55

country flag Hannelore wrote:

Hallo, wenn ich die Lm Kette mit den Stb gehäkelt habe dann zählen diese doch zum Quadrat dazu,hab ich das richtig verstanden?Wenn ja wird dann das was für den Halsrand gedacht ist nicht zu lang?

24.04.2015 - 20:42

DROPS Design answered:

Mit der Lm-Kette überspringen Sie Maschen, die Lm kommen also nicht zusätzlich zum Quadrat hinzu, sondern sind die Methode, um einen "Schlitz" in das Quadrat für den jeweiligen Armausschnitt zu bekommen. Sie überspringen so viele M, wie Sie Lm häkeln, und häkeln dann wieder wie gehabt weiter.

03.05.2015 - 12:53

country flag Marion wrote:

Was bedeutet "schulternaht schliessen" - es wird doch außer den ärmeln alles im ganzen gehäkelt?

10.02.2015 - 22:18

DROPS Design answered:

Liebe Marion, das ist einfach nur ein Übersetzungsfehler gewesen, er wird gleich korrigiert. Es sind die Ärmelnähte gemeint. Vielen Dank für Ihren Hinweis und viel Spaß beim Tragen der Jacke!

12.02.2015 - 10:08