Sara skrifaði:
Hej, jag förstår inte denna del: "OBS! Avsluta varvet i A.1 med omslag och 2 maskor räta tillsammans, med att sticka 0-1-0-0-0-1 rätmaska" Kan ni förklara det lite tydligare? Sista varvet i diagrammet är ju avigt, men skall jag avsluta det med att, när det är 2 maskor kvar, först ett omslag och sedan sticka ihop de två sista maskorna rät? Förstår inte alls vad "010001 maska" betyder och vart den skall in?
28.01.2019 - 10:11DROPS Design svaraði:
Hei Sara. Den setningen var itt uklar, dette vil vli rettet med en gang. Det det skal stå er at på slutten av omgang 4 i diagrammet (den som slutter med 2 rett sammen, 1 kast) skal du strikke 0-1-0-0-0-1 maske rett. Det er fordi det i 2 størrelser vil gjenstå 1 maske før omgangen er ferdig (M og XXXL). De andre størrelsene trenger ikke å strikke denne rettmasken, derfor står det 0 for dem. God fornøyelse.
30.01.2019 - 13:38
Petra skrifaði:
Gibt es diese Anleitung auch als Jacke?
26.12.2018 - 14:53DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, dieses Modell gibt es nur als Pullover, aber hier finden Sie eine ähnliche Jacke. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2019 - 09:57
Maria skrifaði:
Posso lavorare con ferri diritti?
29.10.2018 - 13:57
Monique skrifaði:
Bitte als Jacke und Pollver veröffentlichen!
13.07.2018 - 08:59
Monique skrifaði:
Il a l'air si douillet qu'il donne envie de le tricoter
05.06.2018 - 16:28
Belfast#belfastsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BIG MERINO. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, með áferðamynstri og sléttprjóni
DROPS 195-33 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNINGA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Þegar prjónað er fyrir handveg skiptist stykkið. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 82-84-88-92-96-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Haldið áfram með stroff í 2-3-2-3-2-3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan þannig: Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 10-14-14-18-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 92-98-102-110-118-126 lykkjur. Prjónið stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff í 4-4-5-5-6-6 cm. Í næstu umferð er A.1 prjónað yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-44-50-58-62-64 lykkjur jafnt yfir = 132-142-152-168-180-190 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður í 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið síðan A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 172-187-202-226-242-255 lykkjur. ATH! Endið umferð 4 í A.1 með því að prjóna 0-1-0-0-0-1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið stroff eins og áður í 4-4-5-5-6-6 cm, prjónið síðan A.1, í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 40-45-50-58-62-65 lykkjur jafnt yfir = 212-232-252-284-304-320 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-24-25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 31-34-37-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-74-82-90-98 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-34-37-41-45-49 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8-6½-5-4½-4½-4½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-8 sinnum = 156-172-192-212-232-252 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-38-38-39-39-40 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-20-20-18-22-24 lykkjur jafnt yfir = 180-192-212-230-254-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm, fellið síðan af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 44-48-52-60-62-62 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 8-9-11-14-15-15 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 37-37½-36-35½-34-33½ cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm (eða að óskaðri lengd) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42½-42-40½-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #belfastsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.