Nina Larsen skrifaði:
Hvad er overviden til den trøje 😀 hilsen Nina Larsen
20.01.2019 - 23:20
Elisabetta skrifaði:
Ci provo bellissimo
07.10.2018 - 09:49
Zabeth skrifaði:
Un gilet manches courtes est toujours utile pour les demi-saisons. La simplicité du modèle et les torsades sur le raglan m'ont tout de suite plu. J'espère qu'il fera parti de la sélection.
27.06.2018 - 21:31
Way to Go Cardi#waytogocardi |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað vesti með laskalínu úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, garðaprjóni og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), mínus kanta að framan (= 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,66. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðnar saman og prjónið síðustu lykkjuna brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki er prjónað fram og til baka, síðan skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka í garðaprjóni. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni frá röngu. BERUSTYKKI: Fitjið upp 102-106-110-116-120-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með Kid-Silk. Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið. Kantur að framan er prjónaður brugðið í öllum umferðum (þ.e.a.s. gagnstætt garðaprjón) og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. Prjónið alls 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 12-8-8-14-10-10 lykkjur jafnt yfir þar til 5 lykkjur eru eftir – sjá ÚTAUKNING-1 að ofan og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið = 114-114-118-130-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 5 kantlykkjum að framan brugðið í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 16 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 16-16-18-24-24-28 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið. Kantur að framan er prjónaður brugðið í öllum umferðum til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 138-138-142-154-154-162 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.2 (= 22 lykkjur) yfir A.1 JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í fyrstu umferð í A.2 þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.2 (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð og síðan í garðaprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-13-17-18-20-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 13-14-13-14-15-16 sinnum (þ.e.a.s. aukið út alls 23-27-30-32-35-38 sinnum) = 322-354-382-410-434-466 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og garðaprjón þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 3 lykkjur yfir hvern kaðal (þ.e.a.s. 6 lykkjur í hverju A.2 = alls 24 lykkjur færri) = 298-330-358-386-410-442 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með 5 kantlykkjum að framan brugðið frá röngu. Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 lykkjur brugðið, 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-92-100-110-120-132 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón og endið með 5 lykkjur brugðið = 194-210-230-250-274-298 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á bakstykki og 51-55-60-65-71-77 lykkjur á hvoru framstykki). Haldið áfram í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir kant að framan eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 að ofan. Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 234-250-270-290-314-338 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til fram- og bakstykki mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn herði ekki á stykki. Fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. KANTUR Á ERMI: Setjið til baka 60-68-74-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Fellið af með 2 þráðum í garðaprjóni. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waytogocardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.